Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 81
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 81
En stiklum aðeins betur á stærstu og þekktustu fyrirtækjunum
í Borgartúnshverfinu sem afmarkast af Borgartúni, Laugavegi,
Skúlatúni og Kringlumýrarbraut. Við teygum okkur að vísu að
Kirkjusandi. Yfir hverfinu trónir svo Kauphöllin við Laugaveg;
musteri mammons; höll verðbréfaviðskipta á Íslandi.
Stærstu og þekktustu fyrirtæki í Borgartúnshverfinu eru
Kaupþings banki, Glitnir, Straumur, Byr, Sparisjóðurinn í Keflavík,
(með útibú), Íbúðalánasjóður, Lánasjóður námsmanna, KPMG,
Ernst& Young, Vörður, Capacent, Veita, A4, Hugsandi menn,
Útflutningsráð, Icelandic Group, Hagstofan, Samtök atvinnulífsins,
Lögfræðistofa Reykjavíkur, Nýherji, Eykt, Nóatún, Jóhann Rönning,
Öryggismiðstöðin, Smith og Norland, veitingastaðurinn Maður lifandi,
Hegri, Nóatún, Hótel Cabine, Samkeppniseftirlitið, Vegagerðin,
Ríkisskattstjóri, Fasteignamat ríkisins, Útlendingaeftirlitið, Umferðar-
stofa, Ríkissáttasemjari, Hús atvinnulífsins með öll helstu hagsmuna-
samtök landsins, Kauphöllin, og svo auðvitað Höfði; tákn leið-
togafundar Reagans og Gorbatsjov.
Heimur, útgefandi viðskiptatímaritanna Frjálsrar verslunar og Vís-
bendingar, er við Borgartúnið. Það fer vel á því að þau haldi utan um
hverfið og taki púlsinn á viðskiptalífinu.
Borgartún 35;
glansandi glerbygging.
Táknræn fyrir hverfið.