Frjáls verslun - 01.02.2008, Side 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
K
yn
n
in
G
Þú getur sjálfur gert greiðslumat á
netinu. Ef þú þarft á aðstoð að halda
geturðu hringt í okkur, komið á staðinn
og hitt ráðgjafa okkar eða haft sam-
band á netinu.
Þegar þú hefur fundið draumaíbúðina
sækir þú um lánið á www.ils.is. Lánið
er afgreitt á fjórum virkum dögum.
Gengið frá greiðslumati
Sótt um íbúðalán
Sótt um lengingu og
styttingu á lánstíma
Á ils.is getur þú:
Bráðabirgðamat
Breyting á lánstíma
Netsamtal við ráðgjafa
Umsókn um rafræna
innheimtuseðla
Ýmsar reiknivélar
Önnur þjónusta á ils.is:Um áramótin voru gerðar skipulagsbreytingar hjá Íbúða-lánasjóði. Stofnað var nýtt svið, lögfræðisvið, sem sinnir innheimtumálum og lögfræðilegri ráðgjöf fyrir sjóð-inn. Þá var þróunarsvið lagt niður og verkefni þess færð yfir á önnur svið, þar á meðal rekstrarsvið, sem
Ásta H. Bragadóttir stýrir. Ásta tók jafnframt við nýju starfi aðstoðar-
framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs:
„Verkefni aðstoðarframkvæmdastjóra eru margþætt en snúa fyrst
og fremst að innviðum í rekstri sjóðsins. Guðmundur Bjarnason fram-
kvæmdastjóri mun einbeita sér að ytri samskiptum fyrir hönd Íbúða-
lánasjóðs, eins og við félagsmálaráðuneytið og önnur stjórnvöld, sam-
starfsaðila sjóðsins, bygginga- og félagasamtök o.s.frv.
Framundan er verulegt átak í skráningu verkferla og einnig er í fullum
gangi innleiðing á nýju afgreiðslukerfi sem við erum sannfærð um að
verði mikil framför í þjónustu okkar við viðskiptavini. Nýja afgreiðslu-
kerfið býður einnig upp á að tengja samstarfsaðila okkar beint í hluta
kerfisins, þannig að þeir geti fyrir hönd viðskiptavina sinna og okkar
fylgst með stöðu umsókna og þjónustubeiðna og prentað út veðskulda-
bréf til undirritunar og þinglýsingar.“
Ásta er spurð hvort hún sjái fram á einhverjar grundvallarbreytingar
á Íbúðalánasjóði á næstunni: „Starfsemi Íbúðalánasjóðs byggist á lögum
nr. 44/1998 og þar með ákvörðunum Alþingis á hverjum tíma. Allar
grundvallarbreytingar eru því í höndum stjórnvalda. Á vegum félags-
málaráðuneytisins hefur starfað nefnd til að móta tillögur sem miða
að því að efla hinn félagslega þátt húsnæðislánakerfisins, þar á meðal
leigumarkaðinn, og lánveitingar til fólks undir skilgreindum eigna-
og tekjumörkum. Ennfremur á nefndin að leggja fram tillögur um
hvernig megi tryggja aðgengi að lánsfé fyrir þá sem eru að kaupa hús-
næði í fyrsta sinn, íbúa á landsbyggðinni og lágtekjufólk.“
Að sögn Ástu ríkir sátt um tilvist Íbúðalánasjóðs meðal almennings
á Íslandi: „Í viðhorfskönnunum meðal þeirra er festu kaup á fasteign
á síðari hluta ársins 2007 og hins vegar meðal almennings kom fram
skýr vilji til þess að Íbúðalánasjóður starfaði áfram í óbreyttri mynd.
Hlutfall þeirra sem vilja óbreyttan Íbúðalánasjóð hefur ekki áður
verið svo hátt. Meðal fasteignakaupenda vilja 87,4% óbreytta starf-
semi en það hlutfall var 82,8% í desember 2006. Í almennu könnun-
inni var þetta hlutfall 85,5% í desember 2007 á móti 74,2% í desem-
ber 2006.“
Sátt ríkir um Íbúðalánasjóð
meðal almennings
- segir ásta H. Bragadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri sjóðsins.
Ásta H. Bragadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
Í viðhorfskönnunum meðal þeirra er
festu kaup á fasteign á síðari hluta
ársins 2007 og hins vegar meðal
almennings kom fram skýr vilji til
þess að Íbúðalánasjóður starfaði
áfram í óbreyttri mynd.