Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
K
yn
n
in
G
Þorvaldur Jacobsen, framkvæmdastjóri Kjarnalausna Nýherja.
Viðskiptavinir fá enga bakreikninga
Hagrætt með úthýsingu á rekstri tölvukerfa
„Með því að úthýsa tölvukerfi fyrirtækisins er hægt að hagræða, auka
öryggi og tryggja aðgengi að sérfræðiþjónustu,“ segir Þorvaldur Jacob -
sen, framkvæmdastjóri Kjarnalausna Nýherja, um hýsingarþjónustu fyrir-
tækisins. „Sífellt fleiri fyrirtæki gera sér grein fyrir kostum þess að úthýsa
rekstri tölvukerfa sinna. Þau geta úthýst ýmsum þáttum í tölvukerfum
sínum, allt frá því að afrita gögn til þess að sjá alfarið um rekstur tölvu-
kerfisins. Þau fyrirtæki sem velja að úthýsa öllum rekstri tölvukerfa
sinna geta alfarið einbeitt sér að eigin kjarnastarfsemi. Fyrir tæki skapa
sér ekki samkeppnisforskot með því að reka eigið tölvukerfi.“
Hægt að spara tugi prósenta
Þorvaldur segir að góð reynsla sé komin á hýsingarþjónustu Nýherja,
starfsemin sé skilvirk og fyrirtækið þekki orðið þarfir viðskiptavina:
„Við getum því stuðlað að töluverðum sparnaði í rekstri tölvukerfa
hjá fyrirtækjum þegar til lengri tíma er litið. Í raun hafa kannanir og
reynsla sýnt að fyrirtæki geta sparað sér tugi prósenta með því að úthýsa
tölvukerfum í stað þess að eiga og reka sitt eigið. Þeir fá því meiri þjón-
ustu og einungis fastan og fyrirsjáanlegan kostnað. Þeim berast þess vegna
engir bakreikningar.“
Fljótlegt að sinna viðskiptavinum
Að sögn Þorvaldar er einn meginkosturinn við hýsingarþjónustu
Nýherja sá að þar sem gögnin séu vistuð miðlægt sé miklu einfaldara
að sinna viðhaldi og rekstri á kerfum viðskiptavina: „Í þjónustuveri
Nýherja er að finna fjölmarga sérfræðinga í upplýsingatækni sem sinna
þörfum viðskiptavina. Við getum því viðhaldið rekstrarkostnaði í lág-
marki og erum fljótir að sinna þörfum viðskiptavina. Viðskiptavinir
hýsingarþjónustu Nýherja njóta góðs af því,“ segir Þorvaldur og bendir
á að þjónustan henti öllum stærðum fyrirtækja.
Fyrirtæki skapa sér ekki
samkeppnisforskot með því að
reka eigið tölvukerfi
Nýherji
Sérfræðingar á Eignastýringarsviði Kaupþings eru staðsettir í tólf af þeim þrettán löndum þar sem bankinn er starfræktur. Mikil áhersla er lögð á
nána samvinnu milli landa, þannig nýtist sérhæfð og staðbundin þekking á hverjum markaði fyrir sig og víðtæk tækifæri á alþjóðavísu opnast. Eignir í
stýringu Eignastýringar Kaupþings eru 1.557 milljarðar ISK og eru starfsmenn 408.
Upplýsingar um sjóði Kaupþings veitir Ráðgjöf Kaupþings í Borgartúni 19, í síma 444 7000 og í tölvupósti: radgjof@kaupthing.is.
Nánari upplýsingar um sjóði Kaupþings má nálgast á www.kaupthing.is/sjodir.
Sjóðir KaupþingS
fá hæStu einKunn
á alþjóðavettvangi
Kaupþing erlend hlutabréf er fjárfestingarsjóður, rekinn í tveimur deildum, iSK deild og eur deild. rekstrarfélag sjóðsins er rekstrarfélag Kaupþings banka hf. frekari upplýsingar um sjóðinn er hægt
að fá í útboðslýsingu og útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem má finna á sjóðavef Kaupþings, www.kaupthing.is/sjodir. Kaupthing fund nordic growth, Kaupthing fund global value og Kaupthing
fund Swedish growth eru verðbréfasjóðir, starfræktir í lúxemborg. frekari upplýsingar er hægt að fá í útboðslýsingu og útdrætti úr útboðslýsingu sjóðanna, sem má finna á sjóðavef Kaupþings,
www.kaupthing.is/sjodir.
höfundaréttur (c) 2008. Morningstar uK limited. allur réttur áskilinn. viðeigandi upplýsingar í þessari auglýsingu: (1) eru eign Morningstar og/eða samstarfsaðila þess; (2) má ekki afrita eða dreifa; og (3) er
ekki ábyrgst að séu réttar, tæmandi eða tímanlegar. hvorki Morningstar né samstarfsaðilar þess bera ábyrgð á tjóni sem stafar af notkun á þessum upplýsingum. árangur í fortíð er ekki örugg vísbending
um árangur í framtíð.
neðangreindir sjóðir Kaupþings hlutu nýverið hæstu
einkunn hinna virtu matsfyrirtækja Morningstar™ og
lipper sem sérhæfa sig í úttektum á verðbréfasjóðum.
Kaupþing Erlend hlutabréf
Kaupthing Fund Swedish Growth
Kaupthing Fund Global Value
Kaupthing Fund Nordic Growth
við mat á hverjum ofangreindra sjóða er tekið tillit til allra sambærilegra sjóða og árangur
síðastliðinna þriggja ára skoðaður með tilliti til áhættu. Morningstar™ gefur 1-5 og
lipper gefur 1-5 . upplýsingarnar eru frá 29. febrúar 2008.