Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 97
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 97
Margrét segir að staðurinn þoli meiri uppbyggingu en
margir aðrir staðir í borginni. En samfara uppbyggingu sé
lykilatriði að bæta og fegra umhverfið. „Í deiliskipulaginu
sem var gert árið 1993 var gert ráð fyrir þriggja hæða byggð
við götuna og þannig hefur hún haldist að hluta til sunnan
megin. Ég tel að það sé einmitt mikilvægt að ekki séu byggðar
háar byggingar sunnanmegin svo að sólin nái að skína inn í
götuna. Það á frekar að byggja háar byggingar norðan
megin.“
Ekki mannvænlegt umhverfi
Margrét segir að ekki hafi tekist að búa til gott og vistlegt
umhverfi við Borgartún. „Þó það séu margar vandaðar skrif
stofubyggingar þarna þá vantar mikið upp á að umhverfið sé
lífvænlegt og vistlegt fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur.
Reyndar má segja að það gildi fyrir alla sem eiga erindi í Borg
artúnið hvort sem þeir eru gangandi, hjólandi, akandi eða eru
inni í húsunum. Það er ekki síður mikilvægt að geta horft
út í fallegt umhverfi úr byggingunum. Það má segja að núver
andi ástand séu byggingar á bílastæðaeyjum. Þá má segja að
við höfum ekki verið nógu fljót að átta okkur á þeirri þróun
sem átti eftir að eiga sér stað. Við hefðum þurft að vera með
skýrari stefnu hvað varðar útlit lóða og gatnahönnun. En
það stendur nú til bóta.“
Margrét og samstarfsmenn hennar hjá skipulags og
byggingarsviði Reykjavíkur hafa ráðið arkitektafyrirtækið
Hornsteina til þess að sjá um deiliskipulag á nyrðri hluta
Borgartúns í heild sinni. ,,Í samstarfi við lóðarhafa á að
huga vandlega að ytri ásýnd götunnar ásamt uppbyggingar
möguleikum og breyta götumyndinni til hins betra fyrir gangandi og
hjólandi vegfarendur. Einnig á að höfða til eigenda húsanna innan
deiliskipulagsreitsins til þess að reyna að fá þá til að hafa meginhluta
bílastæðanna neðanjarðar þannig að hægt verði að gera yfirborð lóð
anna grænna og meira aðlaðandi.“ Mikil umferð er í gegnum Borgartúnið
og Margrét bendir á að margir ferðamenn gangi þar um. ,,Við erum
búin að hægja á umferðinni með því að láta hringtorg í götuna.“
Áður var gerð krafa um eitt bílastæði á hverja 50 fermetra. Nú er
krafan orðin eitt bílastæði á hverja 35 fermetra samkvæmt bygginga
reglugerð. „Það er mjög mikið á svona miðsvæðum. Þegar verið er að
gera bílakjallara neðanjarðar þarf að huga að því hversu mikinn
fjölda af bílastæðum við heimilum vegna þess að þeim mun fleiri
bílastæði sem við heimilum þeim mun meiri umferð drögum við inn
á svæðið. Þetta er umhugsunarefni bæði fyrir borgina og eigendur
húsanna. Æskilegt væri að stór fyrirtæki mótuðu sína eigin samgöngu
stefnu og hefðu þannig áhrif á það með hvaða hætti starfsmenn þess kæmu
til vinnu. Til dæmis með því að veita starfsmönnum ókeypis strætó kort,
hvetja fólk til að fara í vinnuna í sama bíl og hafa farartæki til afnota
ef fólk þarf að skreppa á vinnutíma. VGKHönnun er að móta sam
göngustefnu fyrir sitt fyrirtæki og eru þannig frábær fyrirmynd fyrir
önnur stórfyrirtæki sem er umhugað um umhverfi sitt og ímynd.“
Allra hagur
Boðað verður til fundar innan skamms með hagsmunaaðilum eða öllum
eigendum húsa frá Höfðatúni að Kringlumýrarbraut þar sem þeim
verður kynnt ákveðin framtíðarsýn og hvernig hópurinn sér fyrir sér að
Borgartúnið geti litið út eftir fyrirhugaðar breytingar.
„Það er von okkar að lóðarhafar taki þessu verkefni vel og að við kom
um til með að sjá árangurinn fljótt og vel. Það er þeirra hagur og okkar
og ég vona að við sjáum árangur sem fyrst. Þá vona ég að við getum í
samráði við eigendur lóðanna framkvæmt og gert miklar breytingar
á göturýminu sjálfu. Ég held að með því að taka umhverfið í gegn
getum við búið til heildstæða og fína götu.
Það verður að huga að því að mikil uppbygging er fyrirhuguð á
lóð Glitnis, gömlu „strætólóðinni“, auk þess sem mikil uppbygging á
eftir að verða á Höfðatorgi. Gatan á þess vegna bara eftir að styrkjast í
framtíðinni. Þess vegna er ennþá meira aðkallandi að gera hana eftirsókn
arverða og glæsilega. Ég myndi segja að þetta væri kraðak og snauð gata
og mjög lítið gefandi. Það er mikilvægt að fá alla hlutaðeigandi með í
leikinn því aðeins þannig tryggjum við góðan árangur.“
Salir fyrir öll tækifæri
brúðkaup • fermingar • fundir • ráðstefnur • afmæli • árshátíðir • þorrablót • jólahlaðborð
Veislur - fundir- ráðstefnur
Veislusalurinn Rúgbrauðsgerðin ehf
Borgartúni 6 • 105 Reykjavík • Sími 517 6545
www.rugbraudsgerdin.is