Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 106
106 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
K
YN
N
IN
GK
YN
N
IN
G
Hjördís Auðunsdóttir framkvæmdastjóri, Dagbjört Jónsdóttir
þjónustustjóri og Haukur Helgason, sölu og markaðsstjóri.
Okkar markmið er að einbeita okkur
að þeim viðskiptavinum sem hjá okkur
eru, veita þeim sem besta þjónustu og
bæta við viðskiptavinum án þess þó að
yfirbygging fyrirtækisins verði of stór.
Hugbúnaðarfyrirtækið Hugsandi Menn var stofnað árið 2003. Fyrirtækið leggur áherslu á nýsmíði sérhæfðra kerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir. Haukur Helgason er sölu og markaðsstjóri Hugsandi Manna.
„Starfsemi fyrirtækisins hefur gengið vel og við teljum okkur hafa
náð sérstöðu á markaðnum bæði hvað hvað varðar vörur, lausnir,
vönduð vinnubrögð og gæði. Okkar markmið er að einbeita okkur vel
að þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem hjá okkur eru og veita þeim
sem besta þjónustu.“
Fjölbreytt verkefni Hugsandi Menn hafa stigið fyrsta skrefið í átt
að alþjóðlega viðurkenndri gæða og öryggisvottun og munu allir
vinnuferlar við rekstur netþjónanna verða í samræmi við þann staðal.
Haukur segir að fyrirtækið hafi á þeim fimm árum sem það hefur
starfað sinnt ólíkum verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir með ólíkan
bakgrunn. Meðal viðskiptavina eru lyfjafyrirtæki, fasteignasölur,
arkitektastofur, lífeyrisjóðir, fjarskiptafyrirtæki, lögfræðistofur, heild
sölur og auglýsingastofur.
Sérsmíðuð kerfi Hugsandi Menn hafa vakið mikla athygli fyrir
sérsmíðuð hugbúnaðarkerfi. WebEd er vefumsjónarkerfi fyrir vefi af
öllum stærðum og gerðum, WorkForce er verk og tímaskráningakerfi
sem heldur utan um verkferla og viðveru og StoreFront er nýtt
netverslunarkerfi sem einfaldar allt viðskiptaferlið með beinni tengingu
við bókhaldskerfi. Von er á fleiri spennandi hugbúnaðarlausnum því
Hugsandi Menn leita sífellt nýrra leiða til að styrkja stöðu fyrirtækja.
Spennandi framtíð Mikið er um að vera hjá Hugsandi Mönnum
um þessar mundir og nú hefur fyrirtækið stofnað útibú í London:
,,Starfsstöð okkar þar er ætlað að afla viðskiptavina í Evrópu, en augu
okkar beinast fyrst og fremst að AusturEvrópu þar sem tækifærin eru
mörg. Við erum þegar komnir með erlenda viðskiptavini og gerum
ráð fyrir að bæta við fleirum á næstunni.“
Hér heima eru verkefnin að verða stærri og yfirgripsmeiri: ,,Framtíð
fyrirtækja í dag liggja í samskiptum og vandaður hugbúnaður leggur
grunn að aukinni skilvirkni og gæðum í þjónustu. Það er eitt af
því sem við leggjum mikla áherslu á og hjá okkur starfar fólk með
háskólamenntun, reynslu og metnað sem nýtist vel í verkefnum og
við þróun nýrra.“
Vönduð vinnubrögð,
góð og persónuleg þjónusta
Hugsandi Menn