Frjáls verslun - 01.02.2008, Side 110
110 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Benedikt Magnússon, forstöðumaður á fyrirtækjasviði og
Ágúst Jóhannesson, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs.
KPMG sinnir nú í auknum mæli
bæði ráðgjöf í samrunaferlum og
endurskipulagningu fyrirtækja.
Fyrirtækjasviðið
- byggt á traustum grunni
KPMG er alþjóðlegt net fyrirtækja sem veita sérfræðiþjónustu með það að markmiði að breyta
þekkingu í verðmæti til hagsbóta fyrir viðskiptavini sína, starfsfólk
og samfélagið. Fyrirtækjasviði var komið á fót við upphaf árs 2003.
Sviðsstjóri er Ágúst Jóhannesson.
Hvert er hlutverk fyrirtækjasviðs?
Ágúst Jóhannesson partner, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs og Benedikt
Magnússon partner, forstöðumaður á fyrirtækjasviði, segja skipulag og
verksvið fyrirtækjasviðs í samræmi við alþjóðlegt skipulag KPMG.
,,Fyrirtækjasvið KPMG veitir fyrirtækjum hérlendis sem og erlendis
alla nauðsynlega þjónustu þegar kemur að sameiningu, kaupum og
sölu fyrirtækja. Í raun er sama hvar félag er statt í ferli viðskipta því
KPMG getur veitt ráðgjöf í afmörkuðum hlutum ferlisins eða séð um
það í heild sinni. Sviðið hefur til dæmis tekið að sér verkefni sem felast
í leit að kauptækifærum hérlendis og erlendis, verðmatsvinnu, uppsetn
ingu kauptilboða, þátttöku í samningaviðræðum, fjármögnun og
áreiðanleikakönnunum. Fyrirtækjasvið vinnur einnig náið með endur
skoðunar og skattasviði KPMG, því skattamál einstaklinga og fyrirtækja
geta orðið nokkuð flókin í þeim verkefnum sem sviðið sinnir. Þekking
á sviði reikningshalds er jafnframt nauðsynleg við úrlausn hinna ýmsu
verkefna sem inn á borð sviðsins koma.
Það má segja að dregið hafi úr verkefnum á sviði kaupa og sölu fyrir
tækja síðustu mánuði en þess í stað koma inn í auknum mæli verkefni
við ráðgjöf í samrunaferlum og endurskipulagningu fyrirtækja. Endur
skipulagning og almenn hagræðing í rekstri á að vera hluti af daglegri
starfsemi fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana, en þannig er lagður grunnur
að hámarksnýtingu þess fjármagns sem liggur að baki starfseminnar.
Þótt fyrirtækjasvið KPMG sé tiltölulega ungt er það þó byggt á
gömlum og traustum grunni þar sem lykilstarfsmenn hafa flust af
endurskoðunarsviði og hafa nú sérhæft sig í auknum mæli í aðstoð við
framangreinda hluti. Fyrirtækjasvið sinnir ennfremur verkefnum á sviði
innri endurskoðunar og tölvuöryggismála, svo eitthvað sé nefnt.
Viðskiptavinir fyrirtækjasviðs KPMG eru fagfjárfestar, fyrirtæki,
fjármálastofnanir og opinberir aðilar. Á sviðinu starfa í dag um 30
manns.“
KPMG
© 2008 KPMG hf., íslenski aðilinn að KPMG International, svissnesku samvinnufélagi. Öll réttindi áskilin.
Krefjandi
verkefni
Samvinna
Alþjóðleg
sýn
KPMG hefur um árabil
verið leiðandi á markaði
endurskoðunar- og
ráðgjafarfyrirtækja.
Sérhæfð þjónusta á sviði
endurskoðunar, skattamála
og ráðgjafar byggir á
samvinnu okkar sérfræðinga
sem grundvallast á þekkingu,
áreiðanleika og fagmennsku.
kpmg.is
K
YN
N
IN
G