Frjáls verslun - 01.02.2008, Qupperneq 117
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 117
Aldrei fyrri hefir land vort verið rannsakað með þvílíkum
útbúnaði, lærdómi og nákvæmni sem í þetta sinn. Þarf
og ekki því að kvíða að ekki sjái þess ávexti eða það týnist
aftur sem fundið er og athugað, því hér skorta ekki efnin
til að leiða það fyrir almennings sjónir.
Megum við því eiga þess vísar vonir
að nú komi á prent ritgjörð um land
vort, er svo verði merkileg, bæði að
útlitsfegurð og að efninu til, að oss
hafi aldrei fyrr slík hlotnast. Í þetta er
því meira varið þar sem oss er ókunn
ugt áður hvað í landinu kynni að vera
fólgið, sem vér höfum ekki sjálfir efni
á að forvitnast um. Það er nauð
synlegt hverri þjóð að þekkja land sitt
því eftir þeirri þekkingu ber að haga
allri notkun landsins, atvinnuvegum
og lífernisháttum og án hennar verður það ekki lagfært
sem ábótavant er.
Því fleira sem skoðunarvert er í einhvurju landi, því fleiri
dragast þangað útlendir menn, og verja þar fé sínu, og er
það hagur mikill landinu sem fyrir því verður. Varla mundu
margir gjöra sér ferð hingað úr öðrum löndum ef ekki væru
fyrst Geysir okkar, og svo Hekla eldfjallið mikla, sem
þvílíku tjóni hefir til leiðar komið, og einmitt fyrir það er
orðið svo alkunnugt um heiminn.
Fornöld vor, bókmenntir vorar og mál vort er annar sá
hlutur er siðuðum þjóðum dag frá degi er farið að finnast
meir og meir um og margan fýsir þess
vegna að vitja lands vors. En af því
leiðir margvíslegan hag fyrir sjálfa oss
og er það til mikillar eflingar menntun
vorri og framförum að vér höfum sam
blendni við þær þjóðirnar sem best eru
að sér. En í því hefir oss stórlega yfirsést
og yfirsést ár frá ári, að vér látum flytja
burt úr landinu það sem helst á hér
heima og flesta gæti hingað dregið, en
það eru alls konar menjar hinna fornu
tímanna. Hin fornu handrit vor þykja
nú hin mesta prýði höfuðborgarinnar
í Danmörku. Víst yrðu menn nú til að bjóða mörg hund
ruð ríkisdali í einhvurja kálfsskinnsbók sem í fyrndinni var
rituð hérna hjá okkur og yrði hún þó ekki föl að heldur.
Þá væri mun betur séð fyrir hag og heiðri þjóðarinnar
ef menn, í stað hins, að koma því burt, gerðu sér framvegis
eins mikið far um að halda því öllu saman, sem mannaverk
eru á frá liðnu tímunum, hvurju nafni sem heitir, og láta
F r u m k v ö ð l a r í F e r ð a þ j ó n u s t u
TómasSæmundsson.JónasHallgrímsson.
„Það er nauðsynlegt
hverri þjóð að þekkja
land sitt því eftir þeirri
þekkingu ber að haga
allri notkun landsins,
atvinnuvegum
og lífernisháttum.“