Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 120
lífsstíll
120 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Æskumyndin
er af Björgvini
G. Sigurðssyni
viðskiptaráðherra
og var hún tekin
við Búrfellsvirkjun
árið 1977 en
Björgvin var þá
sjö ára. Hrossið
Tvistur er með
Björgvini á
myndinni. „Pabbi átti hann en
þetta var háaldraður hestur
og mikill gæðingur.“
Björgvin bjó við
Búrfellsvirkjun þar sem faðir
hans vann og hann segir að
það hafi verið skemmtilegt
samfélag á staðnum. „Við
krakkarnir vorum
úti að leika okkur
frá morgni til
kvölds. Ég hafði
mikinn áhuga
á dýrum og átti
íslenskan hund
sem hét Hekla.
Fram á unglingsár
ætlaði ég að
verða bóndi.“
Áhugamálin voru þó fleiri
en Björgvin las mikið á
æskuárunum. „Ég las meðal
annars bækur eftir Sven
Hassel og Alistair McLean og
heilu bókaflokkana svo sem
eftir Enid Blyton og Morgan
Kane.“
Æskumyndin
Georg Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, er mikill
skíðamaður og fer eins oft á
skíði og hægt er.
Georg var sex ára þegar
hann steig fyrst á skíði og
sama vetur tók hann þátt í
skíðakeppni.
„Ögrunin við þetta er mest
spennandi,“ segir forstjórinn
sem viðurkennir að vera
spennufíkill. „Að lifa þetta af;
að detta ekki illa. Þessu fylgir
ákveðin útrás, góð hreyfing,
reyna stöðugt að bæta sig
og auðvitað útivera í fallegu
umhverfi.“
Skíðamennskan er ekki
eina áhugamál Georgs en
hann á lítinn bát til veiða,
er í Stýrimannaskólanum og
ætlar að taka pungaprófið.
Þá eru skotveiðar eitt af
fjölmörgum áhugamálum en
fuglar og hreindýr eru á meðal
þess sem hann veiðir hann
skýtur auk þess hirti og elgi
í Noregi.
„Ég verka veiðina, borða
og gef sumt af henni. Íslenskt
hreindýr er besta kjötið að mínu
mati. Spennan í skotveiðinni
er heillandi. Það hlýtur að vera
ferlegt að hitta ekki. Þessu
fylgir góð útihreyfing ásamt því
að njóta og stundum berjast við
fallega og oft hrikalega náttúru.
Þetta tengist auðvitað allt
veiðieðlinu að veiða og afla
fanga.“
Skíði og skotveiði:
Útivera í fallegu umhverfi
GeorgKr.Lárusson.„Þessufylgirákveðinútrás,góðhreyfing,reyna
stöðugtaðbætasigogauðvitaðútiveraífalleguumhverfi.“
SkotveiðarerueittaffjölmörgumáhugamálumGeorgs.