Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 122
Líklegast eru jepplingar
skynsamlegustu bílarnir fyrir
íslenskar aðstæður. Fjór
hjóladrifnir, setið er hátt og
þeir eyða litlu eldsneyti í
samanburði við stóru bræð
urna, jeppana. Honda CRV,
Nissan Xtrail og Toyota Rav
hafa verið aðalleikendur á
sviðinu. Volkswagen kemur
seint á sviðið með Tiguan og
er sannkallaður senuþjófur.
Vel byggður, gott að keyra
og getur dregið þrjú og hálft
tonn. Miklu meira en keppi
nautarnir.
Tiguan er ekki stór bíll; rétt
undir fjórum og hálfum metra
að lengd og hæðin er þokka
leg, einn og sjötíu. Tiguan fæst
í þremur gerðum, Trend and
Fun, Sport and Style og svo
meira röff, í Track and Field.
Vinsælasta vélin er tveggja lítra
díselvél, sem gefur 140 hestöfl.
Hægt er að fá hann sjálfskiptan
með þessari vél. Ólíkt keppi
nautunum. Eyðslan í blönduðum
akstri er aðeins, 7,5 lítrar á
100 km. Farangursrýmið er
tæpir 500 lítrar. Sem er býsna
gott í ekki stærri bíl.
Allur frágangur í Tiguan
er til fyrirmyndar, eins og nú
er reyndin í flestum þýskum
bílum. Allir mælar og takkar eru
einhvern veginn á hárréttum
stað, nema hurðaropnarinn á
framhurðum. Hann er heldur
aftarlega. Útsýnisspeglarnir
á hurðunum eru heldur litlir,
sérstaklega þegar er verið
að draga eitthvað, en þetta er
smáatriði miðað við heildarupp
lifunina. Það er sérstaklega
skemmtilegt að aka bílnum.
Hann er lipur í stórborgarum
ferð og liggur vel á malarvegi
eða í hálku. Þar mætir fjögurra
hreyfinga fjórhjóladrifið sterkt
til leiks. Þú situr vel, bíllinn er
hljóðlátur og tveggja lítra dísiel
vélin er furðu spræk.
Volkswagen Tiguan var fyrst
kynntur sem hugmyndabíll á
bílamessunni í Los Angeles í
nóvember 2006. Sala hófst
á honum fullkláruðum rúmu
ári síðar. Tiguan er byggður
á PQ35 ( A5 ) undirvagninum
sem VW samstæðan notar á
13 aðrar bíla, eins og Audi
A3, Volkswagen Eos, Skoda
octavia II, Volkswagen Caddy,
Volkswagen GTI / R32, Audi
TT, Seat ToledoIII. Það er eng
inn undirvagn í heiminum eins
mikið notaður. Hann þjónar
tæpum þremur milljónum nýrra
bifreiða á ári.
Volkswagen efndi til sam
keppni í Þýskalandi um heiti
bílsins. Yfir 350.000 manns
kusu um nöfnin Namib,
Rockton, Samun, Nanuk og
Tiguan. Tiguan vann.
Tiguan er bíll sem hentar
íslenskum aðstæðum mjög vel.
Hann getur dregið hest, og
annan til. Já, góður í drátt.
Bílar:
páll stefánsson
Volkswagen Tiguan
góður dráttur
122 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
lífsstíll