Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 124
lífsstíll
124 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
kvikmyndir:
hilmar karlsson
til staðar og öruggt er að Karen
Allen, sem var í fyrstu mynd
inni, fær veigamikið hlutverk,
hvort sem aðrar leikkonur mæta
eða mæta ekki, en þess má geta
að eiginkona Spielbergs, Kate
Capshaw, lék stórt hlutverk í
Indiana Jones and the Temple
of Doom (1984) og þau
kynntust fyrst við gerð þeirrar
myndar.
Þekktir leikarar í myndinni
fyrir utan Ford, Blanchett og
Allen eru Shia LaBeouf, John
Hurt, Ray Winstone og Jim
Broadbent. Margir hafa komið
nálægt handritsgerðinni. David
Koepp er skráður aðalhandrits
höfundur, en George Lucas, Jay
Nathanson og Philip Kaufman
eru einnig skráðir handrits
höfundar. Og að sjálfsögðu er
tónlistin eftir John Williams.
Spielberg sleppir ekki takinu á
honum, en Williams er orðinn
76 ára gamall.
Langur aðdragandi
Fjórða Indiana Jones myndin
hefur verið í gerjun allt frá
árinu 1989 þegar Last Crusade
var sýnd, en allar áætlanir voru
lagðar til hliðar þar sem Spiel
berg og Ford voru ósáttir við
söguþráðinn sem Lucas var með
í höndunum. Á næstu árum
H
ver verður vinsælasta
kvikmynd ársins? Það
getur enginn sagt með
vissu, en víst er að
Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull er
sú kvikmynd sem aðrar verða að
keppa við og líklegt er að hún
tróni á toppnum þegar árinu
lýkur. Það eru ekki margir sem
eiga möguleika þegar Harri
son Ford, Steven Spielberg og
George Lucas taka höndum
saman og gera kvikmynd um
eina af vinsælustu hetjum kvik
myndanna, jarðfræðinginn
Henry „Indiana“ Jones jr.
Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull
verður forsýnd 18. maí á kvik
myndahátíðinni í Cannes,
verður að öllum líkindum opn
unarmynd hátíðarinnar, þó ekki
hafi borist formleg tilkynning.
Fjórum dögum síðar verður hún
frumsýnd í öllum heimsálfum,
meðal annars hér á landi, og
markaðssetning myndarinnar er
á þann veg að það ætti ekki að
fara fram hjá neinum að Indiana
Jones er mættur aftur til leiks.
Rússagrýlan endurvakin
Mikil leynd hefur hvílt yfir
gerð fjórðu Indiana Jones mynd
arinnar og þá sérstaklega um
hvað hún fjallar og þær upplýs
ingar sem borist hafa eru ekki
byggðar á sterkum grunni. Það
er vitað að sagan gerist 1957,
nákvæmlega 19 árum eftir ævin
týrin í Indiana Jones and the
Last Crusade, sem gerir það að
verkum að Indiana Jones er kom
inn vel yfir miðjan aldur, sem
er skynsamlegt í ljósi þess að
Harrison Ford er orðinn 65 ára
gamall. Einnig er vitað að óvin
irnir eru Rússar og leikur Cate
Blanchett rússneska njósnarann
Spalko, sem er höfuðóvinur
inn. Þá hefur verið rætt um að
kvenfólkið sem heillaði Indiana
Jones í fyrri myndunum verði
indiana Jones
er mættur
til leiks
og hefur engu gleymt
HarrisonFordmeðhattogkominnísvartaleðurjakkann.Þráttfyrir
aldurinnerekkiannaðaðsjáenhannsmellpassiennþáíhlutverk
IndianaJones.