Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 125
lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 125
voru mörg drög að handriti
skrifuð og snillingar eins og
Frank Darabont og M. Night
Shyamalan voru kallaðir til
ásamt minni spámönnum,
en ekkert dugði þar til David
Koepp kom með tillögu sem
þremenningarnir gátu sætt
sig við.
Það þarf engan að undra
að áhersla hafi verið lögð á að
búa til fjórðu Indiana Jones
kvikmyndina. Samningurinn
sem George Lucas og Steven
Spielberg gerðu við Paramount
á sínum tíma hljóðaði upp á
fimm kvikmyndir um hetjuna.
Þegar fyrstu áætlanirnar um
fjórðu myndina runnu út í sand
inn, var það eingöngu George
Lucas sem hélt áfram að pæla í
handriti, en samstarfinu á þessu
sviði var þó ekki lokið hjá Lucas
og Spielberg því þeir framleiddu
sjónvarpsmyndaseríuna The
Young Indiana Jones Chronicles
árið 1992, sem naut mikilla vin
sælda og í framhaldi komu tólf
sjónvarpsmyndir í fullri lengd
til ársins 1999. Harrison Ford
kom hvergi nálægt þessari fram
leiðslu, fyrir utan að hann lék
lítið gestahlutverk í einum af
sjónvarpsþáttunum. Sá sem lék
Indiana Jones ungan heitir Sean
Patrick Flannery og hefur lítið
til hans spurst í framhaldinu.
Strax í fyrstu drögunum að
fjórðu Indiana Jones myndinni,
sem lengi gekk undir vinnu
heitinu Indy IV, var kristals
hauskúpan komin til sögunnar
og sagt er að einmitt sagan í
kringum hana hafi gert það að
verkum að Spielberg og Ford
samþykktu ekki söguna. Lucas
hélt hauskúpunni til streitu og
lagði línurnar til allra handrits
höfunda sem komu við sögu.
Spielberg og Ford gáfu sig loks
2006. Þegar þeir voru búnir að
samþykkja gerð myndarinnar
var hafist handa af fullum krafti
og tökur hófust 18. júní í fyrra
og létu þremenningarnir þau
boð út ganga að sem minnst
yrði notast við lausnir í gegnum
tölvutæknina heldur yrði treyst
á leikmyndasmiði og áhættuleik
ara til að myndin næði þeim
sjarma sem einkenndi fyrri
myndirnar.
Harrison Ford vildi sem mest
taka þátt sjálfur í öllum atriðum
og hafði áður en tökur hófust
dvalið þrjár klukkustundir á
dag í líkamsrækt í margar vikur,
var á próteinkúr og borðaði ein
göngu grænmeti og fisk. Þetta
þurfti hann að gera svo hann
gæti komist í gegnum þau atriði
þar sem hann þarf að sýna að
Indiana Jones er enn fær um að
eiga við hættulega glæpamenn
þó 19 ár séu liðin frá því hann
átti í höggi við nasistana í Last
Crusade.
Ríkir verða ríkari
Hvort Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull
stendur undir þeim væntingum
sem gerðar eru til hennar á
eftir að koma í ljós, en erfitt er
að ímynda sér að reynslubolt
arnir George Lucas og Steven
Spielberg láti frá sér kvikmynd
um Indiana Jones nema að
vera nokkuð öruggir um gæði
hennar. Þeir hafa að vísu ekki
sem leikstjórar náð háum
hæðum á síðustu árum en
engin ástæða er til annars en að
ætla að Indiana Jones eigi eftir
að heilla gamla aðdáendur á
ný sem og nýja kynslóð sem er
vel með á nótunum þegar um
íburðamiklar ævintýramyndir
er að ræða. Og víst er að Indi
ana Jones and the Kingdom of
the Crystal Skull á eftir að gera
Harrison Ford, George Lucas
og Steven Spielberg enn ríkari
af peningum sem er nú eins
og að bera vatn í bakkafullan
lækinn.
StevenSpielbergræðirviðKarenAllenmeðanátökumstóðáfjórðu
IndianaJonesmyndinni.
Indiana Jones þríleikurinn, Raiders of the Lost Ark, Indiana
Jones and the Temple of Doom og Indiana Jones and the Last
Crusade eru meðal vinsælustu kvikmynda sem gerðar hafa
verið, hafa fengið 7 óskarsverðlaun, 14 óskarstilnefningar og
veltan í aðsókn og sölu DVD og myndbanda er 1.182.000.000
dollarar.
IndianaJonesnýturaðstoðarungsaðstoðarmannssemShia
LaBeoufleikur.Orðrómurvarákreikiaðumséaðræðason
IndianaJones,ensvomunekkivera.