Frjáls verslun - 01.02.2008, Qupperneq 127
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 127
FROSTI HEIMISSON
framkvæmdastjóri openHand
open Hand er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar samskiptalausnir í símum. Frosti Heimisson, framkvæmda
stjóri segir mikla og öra þróun á þessu
sviði: „Undanfarið höfum við verið að
þróa farsímann úr því að vera hefðbundið
skilaboðatæki með pósti, tengiliðum,
verkaefnalistum og fleira tilheyrandi yfir í
færanlega skrifstofu, þar sem aðgangur er að
skjölum og skrám, innri kerfum, sölutölum
og framleiðslutölum svo eitthvað sé nefnt.
Hefur mér fundist merkilegt hversu stutt
fyrirtæki eru komin í að nýta sér þessa
þróun. Það eru mjög margir með aðgang að
póstinum sínum í gegnum símann en gera
sér ekki grein fyrir því hvað einfalt er að fá
mun fleiri hagnýtar upplýsingar í farsímann.
Einnig höfum við verið að þróa lausnir fyrir
sérhæfðari markaði s.s. fjármálamarkaðinn,
heilbrigðisgeirann, opinbera stjórnsýslu
o.fl.
Mitt starf felst m.a. í því að leita sam
ræmis sölu og markaðsmála og fram
leiðslu og þróun. Kúnstin við að reka hug
búnaðarfyrirtæki er að þróa það sem
vantar á markaðinn, en jafnframt að miðla
upplýsingunum frá markaði yfir til þróunar
og frá þróun til markaðar þannig að ekki sé
verið að lofa einhverju sem ekki er hægt að
efna. Við leggjum mikla áherslu á að efla
þjónustu við íslensk fyrirtæki og bjóðum
upp á símalausnir okkar á íslensku.“
Eiginkona Frosta er Gerður Eva Guð
mundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og eiga
þau tvö börn. „Ég á mér mörg áhugamál og
flest eru þau stunduð með eiginkonunni.
Við förum á skíði og erum nýkomin úr góðri
skíðaferð. Ferðalög eru ofarlega á baugi hjá
okkur og þá ekki síst innanlands og förum
við eins mikið út á land og við getum og
veiðum gjarnan í þeim ferðum. Golfið er
einnig stundað og erum við meðlimir í
Nesklúbbnum. Sjálfur er ég heltekinn af
fisflugi, hef verið að læra það og veit fátt
skemmtilegra. Fisflugvélar eru flugvélar sem
ná ekki 450 kílóa þyngd. Ég hef aðgang
flugvél í eigu föður míns og bræðra hans
og ekki skemmir að þar fer líklega ein
skemmtilegasta flugvél sinnar tegundar á
Íslandi. Þó ég viti fátt skemmtilegra þá
hefur eiginkonan þvertekið fyrir að fara
með mér upp í flugvél þegar ég flýg, en
pláss er fyrir einn farþega í fisflugvél. Að
lokum má geta þess að ég fer á hverjum
morgni í Sundlaug Vesturbæjar og er ég
ekki almennilega kominn í gang fyrr en að
sundi loknu.“
Nafn: Frosti Heim is son.
Fæð ing ar stað ur: Reykja vík,
21. á gúst 1975.
For eldr ar: Heim ir Sindra son
og Anna Lovísa Tryggva dótt ir.
Maki: Gerð ur Eva
Guð munds dótt ir.
Börn: Vikt or ía Lovísa, 9 ára,
Guð mund ur, 3ja ára.
Mennt un: Stúd ent frá Versl
un ar skóla Ís lands. Nám í
tölv un ar fræði og upp lýs inga
tækni fræði.
FrostiHeimisson:„Viðförumáskíðiogerumnýkominúrgóðriskíðaferð.Ferðalögeruofar
legaábaugihjáokkurogþáekkisístinnanlandsogförumviðeinsmikiðútálandogvið
getumogveiðumgjarnaníþeimferðum.“
texti:
hilmar
karlsson
myndir:
Geir Ólafsson
fólk