Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 129
fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 129
HRUND STEINGRÍMSDÓTTIR
kynningarstjóri Háskólans í Reykjavík
háskólinn í Reykjavík er annar stærsti háskóli landsins. Nemendur skólans eru um 3000 talsins og starfsmenn
um 300. Hrund Steingrímsdóttir,
kynningarstjóri segir framtíðarsýn HR að
vera fyrsti valkostur nemenda, starfsmanna
og atvinnulífsins og að verða alþjóðlegur
háskóli sem hefur mótandi áhrif á samfélagið
og vera fyrirmynd framsækinna háskóla.
„Það eru forréttindi að fá að vinna í
Háskólanum í Reykjavík: Hér ríkir mikill
frumkvöðlaandi og krafturinn sem býr í
starfsfólki HR er ótrúlegur. Það er einnig
mjög gaman að vinna í akademísku umhverfi.
Starfsfólk HR hefur mismunandi menntun
og ólíkan bakgrunn sem gerir vinnustaðinn
fjölbreyttan og skemmtilegan. Það er mikið
að gerast þessa dagana. Við erum í auglýsinga
herferð í samstarfi við Hvíta húsið og munum
vera með mjög markvissa auglýsingaherferð
út maímánuð. Fjöldi viðburða og fyrirlestra
eru í gangi í hverri viku í öllum fmm deildum
skólans. Laugardaginn 29. mars nk. verður
opið hús í Háskólanum í Reykjavík þar sem
allar námsbrautir skólans verða kynntar fyrir
þeim sem stefna á háskólanám í haust, hvort
sem um grunnnám eða meistaranám er að
ræða. Það sem gerir starfið mest spennandi
er að það er enginn dagur eins, verkefnin
eru eins fjölbreytt og þau eru mörg og ekki
skemmir fyrir að vinna með stórum hópi af
skemmtilegu fólki.
Þegar mikið er um að vera í vinnunni og
verkefnin mörg og krefjandi er mikilvægt
að huga að samspili vinnu og einkalífs
og skella sér í frí af og til. Páskafríið er
framundan og verður stefnan tekin norður
yfir heiðar til Akureyrar. Það er dásamlegt
að eyða deginum á skíðum í Hlíðarfjalli
og toppa svo daginn með því að hvíla
lúin bein í heita pottinum. Helgarferð til
London er fyrirhuguð í maímánuði og svo er
stefnan tekin á ferðalög innanlands í sumar.
Gönguhópurinn minn ætlar að skella sér
í nokkurra daga göngu á hálendið eins og
venjan er á hverju sumri. Drauminn um að
keyra Vestfirði á að uppfylla í sumar og svo
verður auðvitað farið í einhverja laxveiði.
Veiðiáhuginn fer vaxandi þó svo að ég muni
aldrei komast með tærnar þar sem maki
minn Jón Ásgeir hefur hælana.“
Hrund
Steingrímsdóttir:
„Páskafríiðer
framundanog
verðurstefnantekin
norðuryfirheiðartil
Akureyrar.Þaðer
dásamlegtaðeyða
deginumáskíðumí
Hlíðarfjalliogtoppa
svodaginnmeðþvíað
hvílalúinbeiníheita
pottinum.“
Nafn: Hrund Steingrímsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
2. júní 1977.
Foreldrar: Steingrímur
Steingrímsson og Hrund
Káradóttir.
Maki: Jón Ásgeir Gestsson.
Menntun: BSc í viðskiptafræði
frá Tækniháskóla Íslands
og MSc í markaðsfræði og
stjórnun frá Copenhagen
Business School.