Frjáls verslun - 01.04.2008, Blaðsíða 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 8
K
yN
N
IN
g
sumarið er tíminn ...
e
itt af markmiðum Landsvirkjunar er að leggja lið samfélags-
málefnum sem efla hag þeirra svæða þar sem fyrirtækið
starfar og er m.a. lögð áhersla á að efla ferðaþjónustu með
fræðslu og samstarf á sviði menningarmála. Haldnar eru listsýningar
og komið er á fót öðrum viðburðum í starfsstöðvum fyrirtækisins.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að
á síðustu átta árum hafi verið starfræktar gestastofur á sex stöðum
á landinu yfir sumartímann: „Við erum meðal stærri fyrirtækja
landsins og sérkenni okkar er að starfsemin fer fram á afskekktum
stöðum, í landbúnaðarsamfélögum þar sem meginvaxtarbroddur
er í ferðaþjónustu. Með því að starfrækja menningarviðburði og
sýningar þá erum við að hjálpa til við að gera svæðin áhugaverðari.
Það gefur gestum tækifæri til að kynnast okkur af eigin raun.“
Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar alla daga yfir sumarmán-
uðina og Þorsteinn fer yfir helstu viðburðina: „Í sýningarsölum
Ljósafossvirkjunar verður sýning Steingríms Eyfjörðs sem nefnist
Lóan er komin. Hún var framlag Íslendinga á Feneyjartvíæringnum í
fyrra. Við studdum þátttöku Steingríms gegn því að verk hans yrðu
sýnd að Ljósafossi.
Í Búrfelli verður sýning í tilefni þess að Sigurjón Ólafsson hefði
orðið 100 ára á þessu ári, en hann gerði merka
lágmynd framan á stöðvarhúsið og er sú lágmynd
enn þann dag í dag stærsta lágmynd landsins. Er
m.a. saga þess listaverks rakin á sýningunni, sem
sett er upp í samstarfi við Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar.
Í Blöndustöð verður hægt að kynna sér
starfsemina og þar verða einnig myndverk eftir
Halldór Pétursson við Grettis sögu í samvinnu
við Grettisból við Laugarbakka.
Í Laxá í Aðaldal hefur undanfarin ár verið sýning sem kallast Hvað
er með ásum? og er blanda af listsýningu og fróðleik um goðin. Árni
Björnsson semur texta og Hallsteinn Sigurðsson gerir listaverkin.
Hugmyndin með sýningunni, sem er í göngum neðanjarðar, er
ferðalag úr mannheimum inn í Goðheima. Þessi sýning hefur verið
mjög vinsæl og höfum við haldið okkur við hana og bætt hliðarsýn-
ingum við og í sumar verður sýning á verkum þeirra sem hlutu sjón-
listarverðlaunin í fyrra.
Við Kröflu er gestastofa þar sem hægt er að sjá kvikmyndabrot
um Kröfluelda og kynnast hvernig raforkan er framleidd þar.
Síðan er það Fljótsdalur þar sem við höfum undanfarin ár rekið
gestastofu í Végarði sem er félagsheimilið í
Fljótsdal. Við verðum þar áfram þó stöðin sé
komin í rekstur og erum á ákveðnum tímum
með skoðunarferðir í stöðina sem er 1 km inni
í fjallinu. Heimsókn í upplýsingamiðstöðina í
Végarði veitir góða innsýn í Kárahnjúkavirkjun
og útivistar- og ferðamöguleika á hálendinu.
Síðan við hófum að reka gestastofuna í Fljótsdal
hafa komið þangað um 60.000 manns.“
Þorsteinn tekur fram að lokum að samhliða því að vera með
listsýningar og kynningu á ferðamöguleikum hafi fólk tækifæri til
að kynna sér starfsemi Landsvirkjunar og auka skilning sinn á raf-
orkumálum.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
10
3
3
•
Lj
ós
m
yn
d
: S
p
es
si
Kynnið ykkur raforkuframleiðslu og sjáið einnig skemmtilegar sýningar í Blöndustöð, Búrfelli,
Kröflustöð, Laxárstöð og Gestastofu Fljótsdalsstöðvar í Végarði.
Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Végarður er opinn frá kl. 9-17 alla daga vikunnar.
Heimsókn til Landsvirkjunar er ókeypis.
Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum eru
á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.
Lóan
er komin!
Ljósafossstöð við Sog
Einstakt tækifæri til að sjá valin verk úr sýningu Steingríms Eyfjörð „Lóan er
komin“ sem var framlag Íslendinga á Feneyjatvíæringnum 2007.
Sýningin er opin alla eftirmiðdaga í sumar frá 7. júní.
Handhafi Íslensku gæðaverðlaunanna 2007
Þorsteinn Hilmarsson í höfuðstöðvum Landsvirkjunar. Í bakgrunn-
inum er tölvugerð ljósmynd af skipi að sigla á útrennslisskurðinum
frá Fljótsdalsstöð og segir Þorsteinn skipið verða að veruleika í
sumar: „Ólafur Þórðarson myndlistarmaður er að smíða skipið sem
verður á „siglingu“ á móti straumnum inn í fjallið. Listaverkið heitir
Eilífðardraumurinn, enda kemst það aldrei á leiðarenda.“
„með því að starfrækja
menningarviðburði og
sýningar þá erum við
að hjálpa til við að gera
svæðin áhugaverðari.“
Landsvirkjun
aflstöðvar
áhugaverðir
viðkomustaðir
í sumar