Franskir dagar - 01.07.2006, Síða 7
Franskir dagar - Les jours fran^ais
þá nýlega hafa eignast Ijóðabók Jóns
og las hann fyrir mömmu kvæðið um
Skrúðsbóndann. Líklega hef ég aldrei
orðið jafn hrifinn af nokkru kvæði eða
upplestri og þá. Er það skjótast af að
segja að lengi á eftir vék prestsdóttirin
á Hólmum varla úr huga mínum og
viðlagið: „Já satt er það, sorgin er ströng"
hamraði þar án afláts. í þessum álögum
hvarflaði það meira en svo að mér hvort
ég mundi ekki geta orðið skáld. Samt
vöruðu þeir dagdraumar skemur en ýmsir
aðrir því að litlu síðar heyrði ég einhvem
fullyrða, eftir óhrekjandi heimildum, að
hvorki skáld né smiðir gætu orðið ríkir.
Þótti mér sú staðhæfing svo víðsjárverð
að ég hætti alveg að hugsa til að verða
skáld og gerði enda ráð fyrir að úr því að
þessu væri þannig háttað hafi forsjónin
þegar í upphafi minna vega vemdað mig
frá svoddan hæfileikum. En ekki dró
það samt úr aðdáun minni á skáldunum
enda þótt senn bættust fleiri í hópinn
þ.á.m. Þorsteinn Erlingsson, sem mér
stóð reyndar hálfgerður stuggur af vegna
þess hve mikið var um hann jagast. í
huga mínum vom skáldin ekki eiginlega
menn heldur eitthvað annað og langtum
meira.“
Skrúðsbóndinn er fyrsti íslenski
söngleikurinn. Ekki þarf að rekja söguna
í smáatriðum fyrir Fáskrúðsfirðingum,
en í henni segir frá hinum tröllvaxna
Skrúðsbónda sem seiddi til sín fagra
og saklausa prestdóttur á Hólmum í
Reyðarfirði. Þannig er söguþráður söng-
leiksins: ung stúlka lætur glepjast af glys
og gjálífi og telur sér trú um að þar muni
hún finna hamingjuna en á sama tíma
bakar hún foreldrum sínum og ástvinum
ómælda óhamingju og áhyggjur. Þegar
hún loks sér að sér finnur hún styrk í
trúnni og fær hjálp frá góðum öflum til
að rata aftur heim. A margan hátt má
segja að söguefnið sé sígilt og finna megi
hliðstæður í fyrrtum veruleika nútímans.
Söngleikurinn var frumsýndur 20 mars
1941 af Leikfélagi Akureyrar í leikstjórn
Agústs Kvaran. Varmikið í sýninguna lagt,
búningar og leikmynd umfangsmikil auk
þess sem sameinuðust þar listgreinarnar
þrjár; dans-, söng- og leiklist. Sýningin
sló öll aðsóknarmet og var húsfyllir
þrettán sýningar. Skrúðsbóndinn var
tekinn aftur til sýningar árið 1966 en
þá í styttri útgáfu og enn á aldarafmæli
höfundar árið 1991, í Akureyrarkirkju þá
verulega stytt.
Og eins og áður segir verða flutt
nokkur lög úr Skrúðsbóndanum í
Fáskrúðsfjarðarkirkju á Frönskum dög-
um af söngvurunum Jóhönnu Vigdisi
Arnardóttur og Bergþóri Pálssyni, Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara og Kjart-
ani Valdemarssyni píanóleikara.
Tónleikarnir veröa fostudaginn
28. júlí kl 17 og 20.
Óskum íbúum Fáskrúðsfjarðar og gestum þeirra
til hamingju með Franska daga.
Minnum á alhliða vörubíla- og gröfuþjónustu.
Vöggur ehf.
Grímseyri 11A, 750 Fáskrúðsfjörður
Guðmundur, sími 892 7090
Fermingarbörn í Fáskrúðsfjarðarkirkju vorið 2006.
Frá vinstrí, aftarí röð: Björgvin Stefán Pétursson, Björgvin Steinþórsson,
Hilmar Freyr Bjartþórsson og Tómas Freyr Larsson.
Fremrí röð: Heiða Mjöll Gunnarsdóttir, Tanja Rún Kristmannsdóttir
og Bryndís Hjálmarsdóttir. Ljósm: Jóhanna Kr. Hauksdóttir. ri