Franskir dagar - 01.07.2015, Side 4
Texti: Berglind ÓskAgnarsdóttir
Myndir: Ymsir
Frajxskir ckg&r [esjovips fpajv^ðis
Lions er stærsta alþjóðalega þjónustuhreyfmg
heims. Stofnuð í Bandaríkjunum 1917.1 dag eru
1,3 milljónir félaga í 45 þúsund klúbbum í 206
löndum. Markmið Lions hreyfmgarinnar eru:
1. Að skipulegga, stofna og hafa eftirlit með starfi
þjónustuklúbba sem nefndir eru Lionsklúbbar.
2. Að samhæfa verkefni Lionsklúbba og samræma
stjórnunarþætti þeirra.
3. Að vekja og efla anda skilnings meðal þjóða.
4. Að efla meginreglur heilbrigðs stjórnarfars og
borgaralegra dyggða.
5. Að sýna virkan áhuga á velferð samfélagsins í
félagsmálum, menningu og almennu siðgæði.
6. Að tengja klúbbana böndum vináttu, góðs
félagsanda og gagnkvæms skilnings.
7. Að skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um
málefni sem varða almannaheill, en undan-
skilja þó umræður um stjórnmál og trúarbrögð.
Afheimasíðu Lions hreyfingarinnar.
Þá starfa allir klúbbar sem kenndir eru við Lions
eftir sömu siðareglunum sem fela meðal annars
það í sér að vera trúr meðbræðrum sínum og
*
V.Tulinius og Valtýr Guðmundsson. Þeir komu
frá Eskifirði til þess að kynna fýrir mönnum hér
starfsemi Lionsklúbbsins sem þeir voru félagar
að á Eskifirði. Með þeim í för var Hilmar Hálf-
dánason frá umdæmisstjórn.
Þegar þeir félagar höfðu lokið máli sínu var lagt
til að stofnaður yrði Lionsklúbbur á Fáskrúðs-
firði og var það samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum. En til að stofna Lionsklúbb þarf að
hafa svokallaðan stuðningsklúbb eða móðurklúbb
og í tilviki Lionsklúbbsins á Fáskrúðsfirði var það
Lionsklúbbur Eskifjarðar.
Þriðjudaginn 21.júní 1966 var síðan haldinn
stofnfimdur Lionsklúbbsins og fýrsti formaður
hans var kjörinn séra Þorleifin Kristmundsson.
Stofnmeðlimir voru 21.
Uppbygging stjórnar var með svipuðu sniði og
stjórnir annarra félaga með þeirri undantekningu
að auk formanns, varaformanns, ritara og gjald-
kera, var bryti og siðameistari.
Brytinn sá um matinn en siðameistari átti að
sjá um að farið væri eftir reglum og fánar væru á
Fundir voru haldnir tvisvar í mánuði yfir vetrar-
mánuði og voru með því sniði að fundatíminn var
um kvöldmatarleyti og ávallt borinn fram kvöld-
matur, því næst var fundað og gjarnan fylgdu ein-
hver skemmtiatriði líka. Um matinn sá brytinn
og eiginkonur kiúbbfélaga aðstoðuðu.
Eitt af fyrstu verkum nýstofnaðs Lionsklúbbs á
Fáskrúðsfirði var að sækja um inngöngu í félaga-
samtök félagsheimilisins Skrúðs.Til gamans má
geta þess að Lionsklúbburinn þurfti að borga
hærri leigu fyrir fundi heldur en önnur félög
sem aðilar voru að þessum félagasamtökum og
var það vegna þess að þeir notuðu eldavélina á
fundum sínum en hin félögin ekki.
Innan klúbbsins voru starfandi nefndir; byggða-
sögunefnd, málefnanefnd, fjáröflunarnefnd og
meðlimanefnd. Störfuðu þessar nefndir að þeim
málefnum sem nöfnin gefa til kynna og aðrir
félagsmenn tóku þátt í því starfi sem þessar
nefndir efndu til hverju sinni.Til dæmis ef fjár-
öflunarnefnd lagði til að selja ákveðinn varning
þá fóru allir félagsmenn að selja varninginn.
Fyrsta ferðin sem Lionsklúbburinn bauð eldri borgurum til. Myndin er tekin við Frá afhendingu augnskoðunarteekisins sem Lionsklúbburinn gaf Heilsugaslunni á Fáskrúðsfirði. Stefán Stefánsson fyrir
Valaskjálfá Egilsstöðum. höndLions, laknir sem var á staðnum, Hjördís Garðarsdóttir og augnlaknirinn Bjöm Már Ólafsson.
heiðarlegur gagnvart sjálfum sér og hafa í heiðri
allar góðar dyggðir sem eru samfélaginu öllu til
heilla. Á árum áður var Lionsklúbburinn aðeins
fyrir karla, síðan urðu til Lionessuklúbbar sem
voru eingöngu fyrir konur en í dag eru Lions-
klúbbar fyrir bæði kyn.
Á vormánuðum 1966 komu þrír herramenn í
heimsókn á Fáskrúðsfjörð. Þetta voru þeir Axel
4
réttum stöðum. Þá var fylgst með því að félagar
mættu með barmmerki klúbbsins á fundi, ef
menn gleymdu að næla merkinu í boðunginn
fengu menn sekt.
Til að fá inngöngu í klúbbinn þurfi meðmæli
frá félagsmanni og samþykki allra félaga. Við
inngöngu fengu menn barmmerki, síðan fengu
menn nýtt merki eftir fimm ára starf eða fyrr, ef
menn náðu 100% mætingu á fundi.
Töluverð samskipti voru við aðra Lionsklúbba. Ef
félagar fóru til Reykjavíkur eða á aðra staði þar
sem Lionsklúbbur var starfandi þá var nokkuð
algengt að menn færu sem gestir á fundi þess
klúbbs. Jafnvel í útlöndum heimsóttu félagar úr
Lionsklúbbi Fáskrúðsfjarðar þarlenda klúbba. Þá
var farið á alþjóðlegar ráðstefnur og fundi auk
innlendra svæðisþinga og funda.