Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 12

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 12
Texti: Serge Lambert Þýðing: Björn Jónsson Myndir: Lambert jjölskyldan, Björn Jónsson, Albert Eiríksson ogfleiri iesjovip® frðjvtjðis IíhI \in\ §n\j ði lík&as ð,[ spíiðJðskipirwi <§)dj\L IaJí, í 6Íg\I lík^pfél e\g§ii\§ GbuOres cJe (G og koemig kein\ðiköfi\ Joea>§> Oe\rð k^kruð^ör^u er r Allt hófst þetta með því að í augum föður míns var Dr. Jean-Baptiste Charcot, skipstjóri hins víðfræga rannsóknarskips Pourquoi pas? bæði hetju- og siðferðileg fyrirmynd ungra manna og þessari aðdáun sinni hafði hann svo miðlað áfram til mín. En mín eigin aðdáun á Pourquoi pas? beindist þó alltaf miklu fremur að skipinu sjálfu heldur en manninum, en það átti sér rætur í því að ég naut þess ákaflega mikið að fást við ájtreifanlega hluti og efni á smíðaverkstæði mínu. Ég öðlaðist ætíð innri ró við að umbreyta efninu í smíðahlut, sem síðan gerði mér kleift að láta hugann reika og láta mig jafnvel dreyma um að ég væri einn af skipshöfninni á fleyinu sem ég hafði lokið við að smíða. Þannig æxlaðist það semsagt að hinn 15. apríl 2013 var ég staddur á stórri sýningu módelsmiða í borginni Compiégne sem er skammt frá heimabæ mínum Clermont de l'Oise, en báðir staðirnir eru um 70 km norðan Parísarborgar. Þarna var ég einmitt að sýna líkan mitt af umræddu Pourquoi pas? en ég var þar fulltrúi samtakanna l’Associ- ation des Amis du Musée de la Marine, það er að segja Vinafélagi franska Sjóminjasafnsins. Frá jjóseíningu"St. Páls iSt. Malo t Frakklandi. F.v. Bjömjónsson, Albert Eirtksson, Alain-Marie Gautier og Serge Lambert. Alain-Marie Gautier er afkomandi skipasmíðameistarans sem smíðaði hinn upprunalega Sankti Pál í skipasmíðastöðinni í St. Malo. Hann átti tfórum stnum teikningarnar að skipi langafa stns og gat látið Serge fáþœr, þannig að htegt var að smíða mjög nákvæmt líkan eftir þeim. En ekkert merkilegt hefði þó gerst ef ekki hefðu átt sér stað tvær tilviljanir sem ég átti hreint ekki von á. I fyrsta lagi, þá var mættur á sýninguna þennan fagra apríldag Islendingur nokkur, stór og stæði- legur og Frakklandsvinur með meiru, Björn Jóns- son að nafni. Hann virti af áhuga fyrir sér hinn mikla flota smárra skipa fremst í salnum en tók síðan stefnuna upp á leiksviðið þar sem ég var staddur með mitt Pourquoi pas? sem hann sýndi strax mikinn áhuga. Tókum við langt tal saman og þar kom loks í umræðunni að hann spurði mig hvort ég hefði ekki einhverjar upplýsingar um spítalaskip sem hefði um nokkurt skeið fylgt franska fiskveiðiflotanum á Islandsmiðum, en strandað á Meðallandssandi, St. Anne minnti hann fyrst að það hefði heitið eða jafnvel St. Pétur eða Páll. Hann var alls ekki með nafnið á hreinu og þaðan af síður ég sjálfur! Málið var semsagt vægast sagt óljóst í byrjun. En síðan hrökk upp úr honum eftir dálitla umhugsun: „Eg held að hann hafi verið smíðaður í St. Malo.“ Serge sýnir Ólafi Ragnari Grímssyniforseta íslands fullbtiid tiian St. Pdls. 12

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.