Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 24

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 24
l-rajxskir ckg&r> ® lesjovirs jr’ðjxcjajs beinna vinnuframlaga. Mikill fbgnuður og sam- hugur ríkti í þorpinu við vígslu félagsheimilisins Skrúðs vorið 1963. A áttunda áratugnum eignaðist Leiknir íþrótta- mann sem vakti þjóðarathygli fyrir frábæran árangur í sinni íþróttagrein en ekki síður fyrir þá einlægu framkomu sem hann varð þekktur fyrir. Hér er átt við Skúla Oskarsson lyftingakappa sem allan sinn feril keppti undir merkjum Leiknis og UIA. Skúli náði þeim frábæra árangri að setja heimsmet í réttstöðulyftu og varð þess heiðurs aðnjótandi að vera tvívegis valinn íþróttamaður ársins, árin 1978 og 1980. Oflugt skíðastarf I ársbyrjun 1979 afhenti Lionsklúbbur Fáskrúðs- fjarðar Leikni skíðatogbraut að gjöf og henni fylgdi gjafabréf dagsett 21. janúar 1979.1 lok þess segir: „... er það ósk klúbbsins að togbrautin verði starfrækt með þeim hætti að hún verði til eflingar skíðaáhuga og útiveru bæjarbúa." Stjórn Leiknis sendi Lionsklúbbnum þakkarbréf strax næsta dag og þar segir meðal annars: „Þetta er lofsvert framtak til íþróttamála okkar Fáskrúðs- firðinga. Það er von okkar og jafnframt vissa að þessi nýja skíðalyfta eigi eftir að auka þann áhuga sem þegar er vakinn á skíðaíþróttinni hér í bæ.“ Togbrautinni var komið fyrir í hlíðinni ofan þorpsins. Félagið stofnaði skíðaráð og í það völd- ust samhentir og duglegir einstaldingar sem drifu starfið áfram af miklum krafti næsta áratug. Þá lagðist skíðastarfið af og hygg ég að margir hafi saknað þess. Nýr völlur og íþróttahús Bygging tveggja íþróttamannvirkja, sem sveitar- félagið réðst í undir lok síðustu aldar, gerbreytti aðstöðu íþróttafólks á Fáskrúðsfirði. Nýr gras- völlur, sem valinn hafði verið staður innan við Búðalæk, var tekinn í notkun vorið 1990. Leysti hann af hólmi malarvöllinn á Nesinu, sunnan Kirkjubólsárinnar sem oft hafði verið í misjöfnu ástandi en knattspyrnumenn Leiknis höfðu orðið að sætta sig við um áratugi. Leiknir tók svo í notkun þetta sama ár hús sem félagið byggði uppi á brekkubrúninni ofan vall- arins, innan við Búðahúsið. Þar var komið upp aðstöðu fyrir smærri fundi félagsins og í fyrstu var þar búningsaðstaða íþróttafólks. Hitt íþróttamannvirkið og það nýjasta á Fáskrúðs- firði er íþróttahúsið sem reist var skammt innan íþróttavallarins. Það var tekið í notkun árið 1997 og leysti af hólmi íþróttasal skólans sem stóðst ekki lengur kröfur tímans. Fyrsta flokks aðstaða er til iðkunar flestra greina í húsinu, þar stundar íþróttafólkið æfingar og keppni og nemendur grunnskólans sækja þangað sína íþróttatíma. Leiknir kom fljótlega upp líkamsræktarstöð í húsinu og sér um rekstur hennar. Deildir félagsins á afmælisári Að því kom, eftir að Leiknir var orðinn hálfrar aldar gamall, að félaginu var skipt í deildir eftir íþróttagreinum og hafa deildimar sjálfstæðan 24 fjárhag. Samþykkt þessa efnis var gerð á aðalfundi félagsins 21. nóvember árið 1993 og hafði þessi breyting verið til umræðu innan félagsins um nokkurn tíma. Þá voru sérráðin, sem séð höfðu um málefni hverrar íþróttagreinar um árabil, lögð niður. Fimm deildir eru starfandi innan félagsins um þessar mundir, knattspyrnudeild, frjálsíþróttadeild, sunddeild, blakdeild og fim- leikadeild. Mikill kraftur hefur verið í starfi knattspyrnu- deildarinnar allt frá stofnun hennar og stolt deildarinnar er vissulega að halda úti meistara- flokki karla. Knattspyrnumennirnir hafa kosið að keppa áfram undir merkjum Leiknis frekar en að ganga til samstarfs við sameiginlegt lið úr öðrum félögum Fjarðabyggðar. Liðið vann það afrek á síðasta sumri að vinna sér rétt til að fara upp um deild og keppir í sumar í 2. deild Islandsmótsins. Tólf fið eru í deildinni og leiknir verða 22 leikir eins og í úrvalsdeildinni og þeirri fyrstu. Knattspyrna hefur verið stunduð frá upphafi félagsstarfsins og í fyrstu var það frekar til dægra- styttingar en með keppni í huga. Fyrstu kapp- leikirnir voru háðir við nágrannana í Ungmenna- félagi Stöðfirðinga eins og áður hefur komið ffam og fljótlega fóru svo knattspyrnumennirnir að taka þátt í Austurlandsmótum þrátt fyrir erfiðar samgöngur. Síðar kom svo að þátttöku félags- ins í Islandsmótum, jafnt í meistaraflokki sem yngri flokkum. Meistaraflokkur Leiknis keppti fyrst á Islandsmóti árið 1968. Árið áður hafði 3. deild verið stofnuð með þátttöku sex liða fyrir sunnan, vestan og norðan en 1968 bættist við heill Austfjarðariðill þegar Leiknir, Þróttur, Austri, Spyrnir og Hrafnkell Freysgoði komu öll inn í deildina á einu bretti. Leiknir hefur verið með á íslandsmótinu alla tíð síðan nema hvað félagið keppti undir merkjum KBS 1993-1995 ásamt Stöðfirðingum og Breið- dælingum. Leiknir lék síðast í þriðju efstu deild árið 1986. Þá nefndist hún 3. deild en núna 2. deild. Þá hafði Uðið leikið í þeirri deild í tvö ár en féll 1986 niður í 4. deild (sem nefnist núna 3. deild) og átti ekki afturkvæmt þangað fyrr en á þessu ári. Síðan er Leiknir aðili að sameigin- legum liðum yngri flokka í Fjarðabyggð sem keppa undir merkjum Fjarða- byggðar/Leiknis nema 3. flokkur karla og kvenna sem teygja sig yfir enn stærra svæði og keppa undir merkjum UIA. Leiknir er ekki aðili að meistaraflokki kvenna nú um stundir en knattspyrnu- deildin hefiir fiillan hug á að bæta úr því hið fyrsta. Aðstaða til iðkunar knattspyrnu hefiir tekið stakkaskiptum frá því sem áður var, fyrst með tilkomu vallarins og síðan íþróttahússins með hinum ágæta tækjasal Leiknis. For- maður Knattspyrnudeildar Leiknis er Magnús Ásgrímsson og hefur verið síðan 1997. Hann hefur þetta að segja um stöðu deildarinnar: Það ergaman að segja frápví að einungis örfá félög ípessum premur efstu deildum byggja jafnmikið á eigin uppöldu leikmönnum ogLeiknir. Ijúníbyrjun 2015 var aðeins eitt félag ípessum deildum með feiri heimaalda leikmenn íbyrjunarliði. En vandi fylgir vegsemd hverri, kostnaðurinn er mun hœrri eftirpvísem ofar dregur i deildum ogfullpörf á að halda vel utan um fjármálin, héreftirsem hingað til. Það sem annars hefurgert okkur kleift að sækja svona fram í karlaboltanum er ekki síst tilkoma knatt- spyrnuhallarinnar á Reyðarfirði en par æfa allir yngri flokkarnir árið um kring og meistaraflokkur stærstan hluta ársins. Þá höfum við búið að pví að hafa vel menntaða oggóðapjálfara hér á Fáskrúðs- firði sem lagt hafa góðan grunn tilframtíðar. Sfðan höfum við notiðgóðs stuðnings samfélagsins, bæjar- búa ogfyrirtækjanna hérna. Frjálsar íþróttir hafa verið stundaðar á vegum Leiknis allt frá stofnun félagsins og margt frjáls- íþróttafólk þess hefur staðið sig vel í keppni, bæði innan fjórðungs og einnig á landsvísu. Ekki hefur þó alltaf verið um reglubundnar æfingar að ræða en segja má að félagið hafi staðið fyrir frjálsíþrótta- æfingum flest sumur frá 1980 og á tímabili einnig Keppendur Leiknis ásamtþjálfurum á Vormóti Fimleikasambands Islands á Egilsstöðum 2015. Mynd: Austurfrétt/Gunnar. Sigurður Haraldsson tekur við verðlaunum sem Evrópumeistari i kringlukasti á Ítalíu árið 2009.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.