Franskir dagar - 01.07.2015, Side 5
Fpðj\skir ckgdj° ® [esjovips fpðJ\(jðJs
Lionsmenn dansa við eldri borgara.
Þá var Lionsklúbburinn líka móðurklúbbur
tveggja annarra klúbba, á Stöðvarfirði og í Nes-
kaupstað.
I félagsskap sem starfar í þeim tilgangi að efla
samfélagið þarf að afla fjár. Fjár til þess að kaupa
búnað og annað sem vert er að setja peninga í.
Það sem Lionsklúbburinn gerði til þess að afla
fjár var til dæmis blómasala fyrir jól, konudag
og páska. Þá voru seld jólakerti og ljósaperur
fyrir jólin .Jólatré seldi Lionsklúbburinn sem þeir
fengu jafnan frá Lionsklúbbnum Múla sem átti
skógarreit á Fljótsdalshéraði. Innanbæjarsímaskrá
útbjuggu Lionsmenn og seldu í nokkur ár og enn
heyrir maður fólk hafa á orði að það sé skrá sem
það sakni. Barnaskemmtunin 1. desember var ár-
legur viðburður og á stóran sess í ækuminningum
undirritaðrar. I mínum huga var þetta stórvið-
burður, að njóta alls sem í boði var á skemmtun-
inni alveg þangað til ég var orðinn ungflngur og
lék þar Karíus og Bakms ásamt góðri vinkonu.
Þá héldu Lionsmenn einnig dansleik 1. desember
um margra ára skeið. Vom dansleikir þessir jafnan
vel sóttir og gjarnan var dansleikurinn brotinn
upp með pakkauppboði eða öðm sem gat aukið
tekjurnar. En flestir muna þó sjálfsagt eftir ferm-
ingaskeymnum sem Lionsklúbburinn bauð uppá
í mörg ár. Var þetta dæmi um vel heppnaða fjár-
öflun sem kom öllum aðilum vel. Sem dæmi má
geta þess að árið 1987 vom fermingaskeytin á
vegum Lionsklúbbs Fáskrúðsfjarðar 600 talsins.
Er þessi upptalning á fjáröflunum aðeins dæmi
um það sem klúbburinn tók sér fyrir hendur.
hjartalínurita, súrefnismettunarmæli og heyrnar-
prófstæki. Þá gaf klúbburinn tölvur og prentara
í gmnnskólann. Einnig færði hann Björgunar-
sveitinni Geisla peningagjöf ásamt því að gefa
sveitinni tæki, tók þátt í kaupum á skíðalyftu
sem sett var upp í hlíðum Fáskrúðsfjarðar og gaf
eldhúsinnréttingu á dvalarheimiflð Uppsali. Þá
studdi Lionsklúbburinn við starfsemi Vonarlands
á Egilsstöðum, sem þá var sambýli fyrir fatlaða,
ásamt öðmm Lionsklúbbum á Ausmrlandi. Pen-
Frá afhendingu skíðalyftunnar. Már Hallgrímsson og Lars
Gunnarsson.
Má segja að þetta verkefni Lionshreyfingarinnar
hafi orðið til þess að nú er lífsleikni sjálfsagður
þáttur í menntun nemenda frá leikskólaaldri og
þar til þeir ljúka framhaldsskóla.
I samvinnu við Lionsklúbba á suðurfjörðum
voru ungmenni send í sumarbúðir erlendis. Var
þetta árlegur viðburður um nokkurra ára skeið. Á
fjögurra ára fresti féll það í hlut Lionsklúbbsins
á Fáskrúðsfirði að velja ungling til fararinnar.
Má lesa ferðasögu þessara ungmenna í árlegum
jólablöðum sem Lionsklúbburinn gaf út og öll
vom þau afar ánægð með þetta tækifæri sem þeim
bauðst og töldu sig hafa þroskast auk þess sem
ferðin hafi verið skemmtileg. Þá tóku þeir klúbb-
félagar á móti ungmennum frá öðrum löndum
og buðu þau velkomin á heimili sín.
Jólablöðin voru skemmtileg lesning, þar var
vandað til verka. Þau voru ávallt byggð upp á
sama hátt, og í þessum blöðum býr mikil sam-
tímasaga. Þarna má lesa um atvinnu og aflabrögð,
byggingaframkvæmdir í bænum, framkvæmdir
á vegum sveitarfélagsins, auk þess sem í blaðið
var skrifað um félagsmál og skemmtanir, menn-
ingarmál, menntamál og íþróttir. Þá var ávallt
hugleiðing sem sóknarpresturinn skrifaði, fróð-
leikur um jólin ogjafnvel jólaleikir eðajólasaga.
Afar skemmtileg lesning í samtímanum og ekki
síðri mörgum árum síðar.
I félagsskap sem þessum sem hér er fjallað um
þurfa menn að leggja á sig vinnu. Vinnu við að afla
fjár og Lionsmenn lögðu líka á sig vinnu við að
hlúa að umhverfinu. Þeir hjálpuðu til við gera lóð
við kirkjuna með því að keyra mold. Þeir fengu,
Tannlœkningatœki sem Lionsklúbburinn gaf á Heilsugaslustöðina.
En hvað var gert við peningana? Þeir fóru aftur
út í samfélagið. Eldri borgurum var ávallt boðið
í ferðalag í upphafi sumars. Þá var farið í rútu-
ferð eitthvað um Austurland. Síðan var farið í
grunnskólann og þar boðið uppá kvöldmat og
að lokum dansað á skólalóðinni á eftir. Þá voru
einstaklingum eða fjölskyldum, sem áttu við erfið-
leika að stríða, færðar peningagjafir fyrir jólin.
Lionsklúbburinn safnaði fyrir mörgum tækjum
á heilsugæslustöðina, ýmist sjálfstætt eða í félags-
skap við önnur félög og má þar nefna sjónpróf-
unartæki, gegnumlýsingatæki, tannlækningatæki,
ingar vom líka sendir í alþjóðlegan styrktarsjóð
Lions sem var notaður til að hjálpa fólki í veröld-
inni sem átti um sárt að binda, gjarnan börnum.
Lions Quest er námsefni í lífsleikni þar sem
megináhersla er á að efla félags- siðferðis- og til-
finningaþroska barna og unglinga á markvissan og
heildstæðan hátt. Ahersla er einnig á heilbrigða
Hfshætti og velferð. Lionsklúbbur Fáskrúðsfjarðar
tók þátt í þessu alþóðlega verkefni með því að
greiða fyrir námskeið tveggja kennara við Gmnn-
skóla Fáskrúðsfjarðar og til kaupa á námsefninu.
vorið 1971, þrjú tonn af áburði og 300 kíló af fræi
frá Landvernd til þess að sá í rofabörð og búa til
grasbletti. Þeir gróðursettu tré á Búðagrund við
bátinn Rex, ásamt Skógræktarfélaginu auk fleiri
verkefna sem þeir unnu í nafni klúbbsins.
En þetta var ekki bara vinna heldur líka gaman.
Eins og áður var getið vom gjarnan skemmtiatriði
á fundum.Til dæmis er það skráð í fundagerðabók
að skemmtiatriði á einum fundi árið 1967 hafi
verið „Sigmar Magnússon flutti fróðlegt erindi
um sauðfjárbúskap". Þá var lesin framhaldssaga
5