Franskir dagar - 01.07.2015, Qupperneq 10
Franskir1 ckg&r ® [esjovips frajvjais
Bjöm Jóhannsson og Guðmundur Bergkvist Jónsson.
Á Frönskum dögum 2014 voru haldnir tvennir
tónleikar í félagsheimilinu Skrúði á Fáskrúðs-
firði þar sem fram komu margir músíkantar sem
gerðu garðinn frægan í firðinum og á Austur-
landi á árum áður. Tónleikarnir voru teknir upp
og gefnir út á DVD diskum. Að þessu verkefni
stóðu tveir brottfluttir Fáskrúðsfirðingar, Björn
Jóhannsson og Guðmundur Bergkvist Jónsson
sem í daglegu tali kallast Bjössi og Beggi.
„Upprunalega hugmyndin hjá okkur var að gera
svo í framhaldinu heimildarmynd um félagsstarfið
og tónlistina í Skrúði í gegnum tíðina og sýna á
Frönskum dögum 2015.
Við byrjuðum strax þá um sumarið að vinna að
undirbúningi myndarinnar og tókum mörg viðtöl
fyrir austan og allskonar myndir í bænum og í
félagsheimilinu. Seinna um sumarið og haustið
fórum við svo að safna saman gömlu efni og
taka fleiri viðtöl og að klippa. Margt gamalt og
skemmtilegt fór að koma í leitirnar og smám
saman varð ljóst að myndin yrði mun stærri en
upphaflega var áætlað og hún þróaðist í að verða
heimildarmynd um fjörðinn og bæinn,“ segir
Bjössi.
Myndin er ekki sett upp sem saga Fáskrúðsfjarðar
heldur er stiklað á stóru í sögu bæjarins og oftar
en ekki stjórnast efnistökin af myndefninu sem
tekist hefur að grafa upp héðan og þaðan. Fjöldi
gamalla ljósmynda koma einnig við sögu og eru
þær elstu frá því í kringum aldamótin 1900. Elstu
kvikmyndirnar úr bænum sem fundist hafa eru
frá 1962.
„Mörg kvikmyndabrot sem munu sjást í þess-
ari heimildarmynd hafa fáir séð áður og jafnvel
eru dæmi um að þeir sem tóku kvikmyndirnar
hafi ekki einu sinni horft á þær sjálfir þegar við
fengum filmurnar og létum yfirfæra yfir á stafr ænt
form,“ segja þeir félagar Beggi og Bjössi.
Ymislegt skemmtilegt og forvitnilegt úr sögu
Bergur Hallgrtmsson á Pólarsíld.
Leikvöllurinn á Búðum, skjámynd úr kvikmynd sem tekin var
árið 1962.
„Þarna eru myndir af fjölmörgu fólki, og jafnvel
viðtöl við bæjarbúa sem farnir eru yfir móðuna
miklu, já og hús og mannvirki sem ekki standa
lengur. Ymislegt sem maður var jafnvel búinn að
steingleyma. Upplifimin afþví að klippa ogvinna
með þetta gamla efni frá æskustöðvunum hefur
oft verið eins og að maður sé staddur í tímavél og
nokkrum sinnum hefur maður skellt uppúr eða
orðið alveg steinhissa á sumu sem þarna hefur
fundist," segir Beggi.
Heimildarmyndin FáskrúðsJ/örður - Brot úr sögu
bæjar verður frumsýnd á fimmtudagskvöldi
Franskra daga nú í sumar og þar verður endur-
vakin gamla bíóstemningin í Skrúði frá í gamla
Armann Rögnva/dsson ogjúlius Garðarsson iviðtali.
bæjarins á síðustu öld kemur við sögu í mynd-
inni. Til dæmis fjöldi gamalla Fáskrúðsfjarðar-
hljómsveita, síldarsöltun á Pólarsíld og Hilmi,
gamli bankinn í kjallara Skrúðs, áströlsku stelp-
urnar í frystihúsinu, leikvöllurinn fyrir neðan
gamla skólann, bátasmíðastöðvarnar, togararnir,
sjómannadagurinn, bruninn í félagsheimilinu,
bingóin og bíóin, Skrúðsgleðin, skíðalyftan og
margt, margt fleira. Þá eru einnig mörg gömul
viðtöl sem við fáum að sjá.
daga. Fyrirhuguð er aukasýning á föstudeginum.
Að sjálfsögðu er mikill kostnaður sem fylgir því
að gera svona heimildarmynd en fyrirtæki og
sjóðir hafa styrkt verkefnið eitthvað þannig að
sanngjarn aðgangseyrir verður að bíósýningunni.
Það eru ófáar vinnustundirnar sem búið er að
leggja í þessa heimildarmynd og aðstandendur
hennar vona að Fáskrúðsfirðingar og aðrirvelunn-
arar fjarðarins fagra fjölmenni í bíó á Frönskum
dögum. Góða skemmtun.
10