Franskir dagar - 01.07.2015, Page 18
FrðJ\skir daga.r ® iesjo\irs frðj\(|ðjs
Niðurstaða landshöfðingjaembættisins varð sú
að hinum nýstofnaða skóla skyldu veittar 98 kr.
í styrk og rann styrkurinn óskiptur til kennarans
eins og fýrr hefiir komið fram.
Þrátt fýrir að ánægja ríkti með skólahaldið vetur-
inn 1900-1901 varð ekki framhald á starfsemi
skólans í bráð. Haustið 1901 treysti hreppsnefnd
Fáskrúðsfjarðarhrepps sér ekki til að leggja fram
fé til áframhaldandi skólahalds á Búðum og því
féll það niður. Kostnaður við skólahaldið veturinn
1900-1901 liggur fýrir og nam hann alls 329
krónum. Húsaleigan nam 33 krónum, en ekki
er vitað hvar kennslan fór fram. Laun kennarans
námu 216 krónum og kostnaður við eldsmat 80
krónum. Heildargreiðslur foreldra barnanna til
skólans námu 204 krónum þannig að hreppurinn
þurfti að inna af hendi 125 krónur.
Vilhelm Knudsen fluttist til Akureyrar um það
bil einu ári eftir að kennslustörfum hans á Búðum
lauk. Þar gerðist hann kjötkaupmaður um tíma
og síðar framkvæmdastjóri hlutafélagsins Eyja-
fjörður en það fékkst við kjöt- og fisksölu ásamt
pylsugerð. Knudsen fluttist síðan til Reykjavíkur
árið 1912.
Fastur skóli endurvakinn árið 1903
Haustið 1903 vaknaði áhugi fýrir því að endur-
vekja fastan skóla á Búðum enda hafði hagur
sveitarfélagsins batnað frá árinu 1901. Hinn 11.
október boðuðu áhugasamir menn um skólahald
til fundar og kom þá glögglega í ljós að verulegur
áhugi var fyrir því að endurvekja starfsemi fasts
skóla í þorpinu. Kjörin var sérstök nefnd til að
undirbúa starfsemi væntanlegs skóla og samþykkti
hreppsnefndin að leggja 350 kr. til skólahaldsins.
Fyrir utan framlag hreppsins var gert ráð fýrir að
aðstandendur nemenda greiddu ákveðið skóla-
gjald og eins var gert ráð fyrir styrk ff á landssjóði.
Hóf nefndin þegar að vinna að útvegun húsnæðis
fyrir skólahaldið og einnig að ráðningu kennara.
Fljódega fannst húsnæði sem gat rúmað 30 nem-
endur og niðurstaðan var sú að tveir vom ráðnir
til að sinna kennslustörfiim; real. stud. Hallgrímur
Jónasson var ráðinn aðalkennari og Stefán Stefáns-
son póstafgreiðslumaður sem stundakennari. Alls
sóttu 30 böm á aldrinum 6 til 14 ára um skólavist
og var þeim skipt í tvær deildir.
Almenn ánægja ríktí um skólahaldið í Búðaþorpi og
má segja að fastur skóli hafi fest sig í sessi þennan
vetur. Foreldrar í þorpinu vildu ekki vera án skóla
og vöxtur þorpsins gerði nánast þá kröfu að fastur
skóli væri starfræktur þar.
Húsnæðið sem skólinn starfaði í var aUsendis ófull-
nægjandi oghaustið 1904hófstumræðaíþorpinu
um nauðsyn þess að skólahús yrði byggt. Kjörin var
nefnd til að annast fr amkvæmd málsins og hófust
framkvæmdir við skólabygginguna sumarið 1905.
Unnt var að hefja kennslu í nýja skólahúsinu þá
um haustið og var litið á tilkomu þess sem mikið
framfaraskref. I upphafi var gert ráð fýrir að skólinn
yrði bæði heimangönguskóli og heimavistarskóli
og gert var ráð fýrir að efsta hæðin yrði innréttuð
sem heimavist.
Samhliða skólahaldinu á Búðum var boðið upp á
farkennslu annars staðar í Fáskrúðsfjarðarhreppi og
var hún efld með tilkomu skólans. Fáskrúðsíjarðar-
hreppi hinum forna var skipt upp í tvö sveitarfélög
árið 1907 og þá var þorpið skilið frá sveitínni og fékk
heitið Búðahreppur. Eignum og skuldum gamla
hreppsins var skipt upp á milli hreppsfélaganna
tvegga og kom þá skólahúsið í þorpinu að sjálf-
sögðu í hlut Búðahrepps. Starfsemin í barnaskóla
þorpsins á Búðum átti eftir að eflast og dafna en
þeirri sögu verða ekki gerð skil hér.
X
T TTl TT
8 xx xx x'x 8 A x\
Fáskrúðsfirðingar fæddir árið 1965 fagna í ár
stórafmælum sínum. Þeir ætla af því tilefni að
hittast á Frönskum dögum og gera sér dagamun.
Myndirnar eru teknar vorið 1979 á tröppum
Kolfreyjustaðarkirkju og Búðakirkju.
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, Steinn Eirtksson, Vilborg
Björnsdóttir. Fyrir aftan pau stendur sr. Þorleifur K.
Kristmundsson.
1. Már Óskarsson 2. Sindri Harðarson 3.Sigmundur Guðnason 4 .Óskar Marinó Sigurjónsson 5. Guðrún Magnúsdóttir 6. Kristín
Guðmundsdóttir 7. Sólveig Arna Jóhannesdóttir 8. Bima Guðmundsdóttir 9. Asta Ægisdóttir 10. Margeir Margeirsson 11. Steinar
Erlendsson 12. Kristján Skaftason 13. Þóra Karen Þórólfsdóttir 14. Rebekka Gunnþórsdóttir 15. Salóme Bergsdóttir 16. Rósa
Steinpórsdóttir 17. Örvar Þór Einarsson 18. Jón Finnbogason 19. Jens Dan Kristmannson 20. Erla Sveinbjörg Hauksdóttir 21. Sólveig
Þ. Sigurðardóttir.
18