Franskir dagar - 01.07.2015, Síða 25
Frar\skir dð,gð,r [esjovirs frarMjeJs
að vetri til. Sumarið 2015 eru haldnar tvær æfingar
á viku fyrir börn fædd 2009 og fyrr. Farandþjálfari
frá UIA sér um æfingarnar og svipað fyrirkomu-
lag var einnig síðasta sumar. Frjálsíþróttadeildin
hefur ekki haldið úti æfingum yfir vetrartímann
síðan árið 2011. Deildin hélt í vor hið svonefnda
Ávaxtamót UlA í samvinnu við sambandið. Mótið
er fyrir börn ellefu ára og yngri og var haldið í
íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði. Formaður Frjáls-
íþróttadeildar Leiknis er Gréta Björg Olafsdóttir,
hún tók við formennskunni árið 2010.
Sunddeildin hefur starfað allt frá því félaginu
var skipt í deildir en skipulagt starf að málefnum
sundíþróttarinnar hófst einu ári fyrr, árið 1992.
Sundaðstaða á Fáskrúðsfirði telst varla lengur
boðleg þeim sem æfa sund með keppni í huga
þótt litlu lauginni hafi verið fagnað á sínum
tíma. Hinn góði árangur, sem sundfólk Leiknis
hefur náð, er þess vegna allt að því ótrúlegur.
Leiknir vann stigakeppni Austurlandsmótsins
mörg ár í röð og áfram getur félagið verið stolt
af sundfólki sínu. Það hefur sýnt að árangri er
hægt að ná þótt aðstaðan sé ekki með glæsi-
legasta móti. Undanfarin ár hafa allt að 50 börn
mætt á sundæfmgarnar en áhugi þeirra á keppni
er mismikill. Reglulegar æfingar stunda 20 til
30 börn. Margir nýir iðkendur hafa bæst við
að undanförnu og lagt hefur verið kapp á að
ná til þeirra sem ekki æfa aðrar íþróttir. Sund-
deildin tekur engin æfingagjöld af börnum eins
og er. Leiknir sækir öll sundmót sem haldin
eru í fjórðungnum. Má þar nefna Bikar- og
Meistaramót UIA, Sumarhátíð UIA, Vormót
Neista og Hennýjarmótið. I röðum Sunddeildar
Leiknis eru mörg ung börn, tíu ára og yngri, og
þau keppa yfirleitt ekki til verðlauna á mótum.
Keppendur Leiknis eru þó oft í efstu sætum í
sínum greinum. Formaður Sunddeildar Leiknis
er Eva Ösp Örnólfsdóttir.
Blakdeildin er ung að árum, hún var stofnuð árið
2007. Deildin stendur fyrir barna- og ungfinga-
starfi og yngri flokkar hafa tekið þátt í íslands-
mótum sem haldin hafa verið á Austurlandi.
Unglingar sóttu afreksbúðir Blaksambandsins í
Mosfellsbæ og tvær blakstúlkur Leiknis voru eftir
það boðaðar á úrtaksæfingu hjá U-17 landsliðinu.
Eldri flokkar Leiknis hafa tekið þátt í Islands-
mótum allt frá stofnun deildarinnar og aldrei hafa
færri en þrjú lið verið skráð til leiks. Einnig hafa
lið frá Leikni keppt á öllum öldungamótum sem
haldin hafa verið áþessum árum.Æfingagjöldum
hefur alla tíð verið stillt í hóf og börn og unglingar
þurfa engin æfingagjöld að greiða. Deildin gengst
fyrir fjáröfhmum sem standa að stórum hluta
undir rekstrinum. Það sem er næst á stefnuskrá
hjá deildinni er að byggja upp strandblakvöll á
íþróttasvæðinu. Formaður Blakdeildar Leiknis
er Elsa Sigrún Elísdóttir.
Yngsta deild Leiknis er fimleikadeildin sem
stofnuð var á síðasta ári, 2014. Fimleikar hafa
átt vaxandi vinsældum að fagna hér á landi síð-
ustu ár og það má eflaust þakka frábæru starfi
Gerplu og fleiri íþróttafélaga. Krafturinn í starfi
Fimleikadeildar Hattar á Egilsstöðum hefúr líka
haft hvetjandi áhrif hér eystra. Veturinn 2011
fékk Elsa Sigrún Elísdóttir, íþróttakennari á
Fáskrúðsfirði, þá hugmynd að hefja fimleika-
æfingar. Hún hafði í fyrstu samstarf við Frjáls-
íþróttadeild Leiknis um tíma í íþróttahúsinu en
áhuginn reyndist strax svo mikill að sérstökum
fimleikaæfmgum var komið á og fimleikadeildin
síðan stofnuð. Starf Fimleikadeildar Leiknis hefur
farið vel af stað og í vetur stunduðu um 70 börn
víðsvegar að úr Fjarðabyggð æfmgar í íþrótta-
húsinu á Fáskrúðsfirði. Fyrsta mót deildarinnar,
einstaklingsmót í stökkum, var haldið í vetur og
stúlkur úr deildinni kepptu á Vormóti Fimleika-
sambands íslands sem haldið var á Egilsstöðum
í maí síðastliðnum. Þessi fyrstu mót voru góður
skóli fyrir hina ungu þátttakendur.
Skortur á nauðsynlegum búnaði hefur eðlilega
hamlað starfseminni þar sem byggja þurfti allt
starfið upp frá grunni. Vel hefur gengið að afla
styrkja og strax hefur tekist að festa kaup á tramp-
ólíni og einnig loftdýnu sem kostaði yfir eina og
hálfa milljón króna. Formaður Fimleikadeildar
Leiknis er Valborg Jónsdóttir.
Lokaorð
I þessari stuttu samantekt hefur þurft að stikla
á stóru í sögu Leiknis og aðeins nefndir fáir
félagar sem borið hafa starfið uppi í þrjá fjórðu
hluta aldar. Eg get þó ekki látið hjá líða að nefna
það fólk sem skipar stjórn Leiknis á þessum
tímamótum í sögu félagsins. Arnfríður Hafþórs-
dóttir er formaður Leiknis og með henni í stjórn
eru Gunnar Geirsson, Hafdís Pálsdóttir, Ólafur
Atli Sigurðsson og Rakel Nguyen Halldórs-
dóttir. Arnfríður tók við formennsku félagsins
árið 2013 af Steini Jónassyni sem hafði gegnt
starfi formanns frá árinu 2003.
Heimildir:
Arsskýrslur Leiknis 1941-1943 og 1950—1955.
Formenn deilda Leiknis. Tölvubréf íjúm'2015.
Fundargerbabœkur Leiknis 1972-2010.
Fundargerdabók skemmtinefndar Leiknis 1954—
1955.
Gunnar Olafsson. Sendibréf tilstjórnarLeiknis 15.
desember 1970.
Jón Ivarsson. 2007. Vormenn Islands. Saga UMFI
í 100 ár. Reykjavík, UMFÍ.
Magnús Stefánsson. 1991. Viðtalvið Gunnar Olafs-
son.
Sjððbók Leiknis 1941-1955.
Snœfell (eldra) (1). 1946.
Snæfell (yngra) (1). 1979.
Sundhöllin á Fáskrúðsfirði. 1947. Gerpir (1. árv.,
l.tbl.): 13-14.
Viðar Hreinsson,Jón Torfason, Höskuldur Þráinsson.
1992. Saga /andsmóta UMFÍ. Reykjavík, Jðhann
Sigurðsson og Sigurður Viðar Sigmundsson.
Vtðir Sigurðsson. Tölvubréf 10.júní2015.
Þorsteinn Einarsson. 1997. Félagatal ungmenna-
og ipróttafélaga. Reykjavík, UMFI.
Greinin er að hluta til byggð á erindi sem höfundurflutti
á sjötíu ára afmœlishátíð Leiknis haustið 2010.
Bréf sem stofnandi Leiknis, Gunnar O/afsson, skrifaði stjórn félagsins
í árslok 1970, pegar Leiknir varð prítugur. Þessi næstum hálfrar aldar
kveðja lýsir velhógværð bréfritarans og hún er einniggóð hugvekja öllum
peim sem starfa að iprótta- ogfé/agsmá/um.
Neskaupstað, 15. desember 1970
Stjórn Umf. Leiknis, Búðum
Ekki vil ég láta árið líða svo, að ég ekkipakkifýrirpá óvæntu kveðju, er
Umf. Leiknir sendi mér ísumar. Egsegi ðvæntu,pvíað sattað segja átti ég
hennar ekki von m. a. afpví, að ég mundi ekkert eftirpessum tímamótum
og íannan stað hafði ég ákaflega lítið tilpessarar viðurkenningar unnið.
Satt að segja fannst mér ég ekki vera að gera neitt fyrir neinn á peim
árum, sem ég átti hlut að stofnun Leiknis. Eg hafði ánægju af pessu stússi
og vann með ágætu fólki.
I stuttu bréfi ætla ég ekki að rekja neinar endurminningar, en vissulega
minnist maður margragóðra stundafráfyrstu árunum, og ég hef verið svo
lánsamur að halda vináttu viðpaðfólk, sem égpá kynntist, allt tilpessa dags.
Eg varpeirrar skoðunar ípá daga og erpað raunar enn, aðpátttaka ungs
fólks i einhvers konar skipulögðu félagslífi, sépví ekki aðeins holl tóm-
stundaiðja heldur einnigparfur undirbúningurfyrirfélagsmálastörffull-
orðinsáranna. Þeir sem ve/jast til forystu í æskulýðsfélögum fápar ómetan-
legan æf ingaskóla, sem kemurpeim að margvíslegu haldi á lífsleiðinni. En
að sjálfsögðu kostarpað vinnu og margs konar fyrirhöfn.
Eg hef stundum sagt pað hin stðari ár, bæði í gamni og alvöru, eftir að
ég að mestu hættifélagsmálastússi, að ég hefði getað byggt mér mörg hús
Jýrirpærstundir er ipað fórpau ca. 25 ár, erflestar mínarfrístundirfóru
ífélagsstörf, en hvort ég væri nokkuð sælli, pað efa ég stórum. Og a/drei
hefurpað hvarflað að mér, að peim tíma hafi verið til einskis sóað.
Góðu ungmennafélagar. Þetta áttu aðeins að verða nokkurpakkarorð, en
engin ræða, enda skal nú staðar numið.
Eg árna Umf. Leikni allra heilla á komandi árum og bið ykkur að færa
öllum, yngri sem e/dri félögum kærar kveðjur og sérstakar pakkir vil ég
fera öllum peim, er með mér störfuðu áfyrstu árum Leiknis.
Islandi allt.
Gunnar Olafsson
25