Franskir dagar - 01.07.2015, Side 39
Frðjxskip ckg&r1 ® [esjo\irs jkðjvgajs
komið, fólk situr í brekkunni og syngur, fulltrúar
vinabæjar Fáskrúðsfjarðar, Gravelines í Frakk-
landi sem heiðra okkur á hveiju ári með nærveru
sinni, eru kynntir og halda smá tölu og setningin
endar á glæsilegri flugeldasýningu þegar til þess
viðrar. Kveikt er í bálkesti á grundinni og há-
tíðargestir eiga saman skemmtilega kvöldstund.
I margra augum er hápunktur hátíðarinnar
minningarathöfnin í Franskra grafreitnum. Þar
er frönsku Islandssjómannanna minnst, lagður
blómsveigur að minnismerki sem þar stendur
og haldin er helgistund með þátttöku Frakka
og íslendinga.
I allmörg ár, með einhveijum hléum þó, hefur
verið boðið upp á fjöllistanámskeið fyrir börn og
unglinga á Fáskrúðsfirði í aðdraganda Franskra
daga. Uppskeruna fá Fáskrúðsfirðingar svo að sjá
í skrúðgöngunni á laugardeginum þegar grímu-
klætt fólk af ýmsum stærðum skemmtir sér og
öðrum í göngunni að hátíðarsvæðinu. Með þessu
flotta verkefni hefur Fáskrúðsfirðingum tekist að
virkja ungdóminn til þátttöku í afar skemmtilegu
og mikilvægu verkefni.
Saga fjöllistanámskeiða á Frönskum dögum
hófst árið 1997, þegar fjöllistamaðurinn Orn
Ingi Gíslason var fenginn til að setja upp skrúð-
göngu fyrir opnun hátíðarinnar. Jónas Friðrik
Steinsson var fenginn til að þjálfa eldgleypa
og setja upp eldatriði fyrir opnunarhátíðina, en
fyrsta eldsýningin var haldin uppi á þaki félags-
heimilisins Skrúðs og taldi 14 þátttakendur.
Síðan þá hafa fjöllistanámskeið verið haldin á
vegum Leikhópsins Veru og Circus Atlantis,
en Jónas Friðrik er stofnmeðlimur þess hóps og
hefur haldið utan um fjöllistanámskeiðin. Nám-
skeiðin hafa miðast við börn og unglinga frá 8 ára
aldri og hafa alla tíð verið mjög vinsæl. Til að
mynda hefur þátttakendafjöldi aldrei farið undir
50 undanfarin 10 ár.
Fyrir nokkrum árum bættust hverfahátiðir við
dagskrána. Skipuleggjendur hverju sinni sjá til
39