Franskir dagar - 01.07.2015, Qupperneq 40
FpdJ\sL> dagdP # [esjovips frar^ðj's
gripum. Þessar sýningar eru ávallt vel sóttar.
Ljósmyndasýningar hafa einnig verið nokkrar í
gegnum tíðina og gestir hátíðarinnar hafa haft
mjög gaman af að skoða myndir frá liðinni tíð.
Frá árinu 2004 hefur blaðaútgáfa verið hluti
af undirbúningi Franskra daga. I aðdraganda
Franskra daga hefur verið gefið út viðamikið
blað þar sem meðal annars eru kynntir viðburðir
hátíðarinnar, viðtöl og greinar sem tengjast Fá-
skrúðsfirði og Fáskrúðsfirðingum fá þar sinn
samastað. Blaðið er vinsælt og margir bíða þess
með óþreyju þegar líða fer að Frönskum dögum.
Eins og fýrr sagði er bæjarhátíðin 20 ára í ár.
Af því tilefni verður meðal annars boðið upp á
hinn stórkosdega Sirkus Islands og er Fáskrúðs-
fjörður eini staðurinn á Austurlandi sem sirkus-
inn heimsækir þetta árið. A fimmtudagskvöldinu
verða tónleikar með Harmonikkufélagi brott-
fluttra Fáskrúðsfirðinga ásamt Jónasi Sigurðs-
syni, Bjartmar og Bergrisarnir halda tónleika á
föstudagskvöldi, Árni Johnsen sér um brekku-
sönginn, Rokkabillýbandið ásamt Matta Matt
heldur uppi stuðinu á laugardagsdansleik, Lalli
töframaður kynnir hátíðardagskrá á sviði og
flestir íbúar Latabæjar mæta á svæðið svo eitt-
hvað sé nefnt. Að auki verða flestir hefðbundnir
dagskrárliðir hátíðarinnar á sínum stað.
Það er von þeirra, sem að Frönskum dögum
standa, að hátíðin muni halda áfram að vaxa
og dafna í góðum höndum heimamanna og
Fáskrúðsfirðingar og gestir eigi eftir að njóta
Franskra daga í tugi ára til viðbótar.
þess að tækifæri gefist fýrir fólkið í hverfúnum
að hittast og eiga saman góða stund á fostudags-
síðdegi, en að þessum lið er töluvert þrengt þar
sem svo margir aðrir viðburðir þurfa að komast
á dagskrá. Hverfm eru skreytt með mismunandi
litum og var hugsunin sú í upphafi að þannig
gæfist fólki tækifæri til að skreyta meira en ella
hefði kannski verið gert.
Eins og Fáskrúðsfirðingum er von og vísa eru
Franskir dagar langt frá því lausir við íþrótta-
viðburði. Þannig hefúr hjólakeppnin Tour de
Fáskrúðsfjörður verið með frá upphafi og alltaf
vel sótt. Einnig hafa Minningarhlaup Bergs Hall-
grímssonar og Fáskrúðsfjarðarhlaupið eignað sér
fastan sess hjá mjög mörgum
þeirra sem sækja hátíðina heim.
Undanfarin ár hefur göngu-
félag staðarins séð um fjall-
göngu í aðdraganda Franskra
daga. Er um að ræða léttar fjöl-
skyldugöngur sem flestir geta
tekið þátt í. Ein er sú íþrótta-
grein sem Fáskrúðsfirðingar eru
afar stoltir af að hafa haldið í
heiðri frá upphafi hátíðarinnar
og hefúr beina tengingu við Frakkland, en það
er íslandsmeistaramótið í Pétanque. Pétanque er
vinsælt fjölskylduspil sem mikið er spilað í Frakk-
landi og víðar í Evrópu og eru þar
haldnar mótaraðir í þessari íþrótt.
Pétanque er spilað með stálboltum
á mjúku undirlagi svo sem sandi eða
grasi. Á Frönskum dögum er spilað
á gervigrasvelli við Skólamiðstöðina
og hefúr fjöldi þátttakenda vaxið frá
ári til árs. Eins og Frakka er siður
er svo auðvitað boðið upp á franskt
rauðvín á meðan á móti stendur.
Dansleikir og tónleikar eru ávallt
fastir liðir á Frönskum dögum.
Skrúður, kirkjan og Skólamiðstöðin
gegna hlutverki dansleika- og tón-
leikastaða og tónlistarviðburðir hafa
ávallt verið vel sóttir. Einn er sá við-
burður sem hefúr verið að sækja í
sig veðrið undanfarin ár og það er
harmonikkudansleikur sem haldinn
hefur verið seinni part laugardags.
Þar er ekkert aldurstakmark og þar
gefst fólki á öllum aldri tækifæri á
að koma saman og stíga skottís, ræl
og fleiri hefðbundna dansa.
Frá upphafi hefúr Undirbúnings-
hópur um Franska daga boðið upp á
stað fýrir sýningar. Bæði hefúr verið
um að ræða mynd- og handverks-
sýningar fólks sem á rætur að rekja til
fjarðarins en einnig sýningar heima-
manna á ýmsum listmunum og safn-
40