Víkurfréttir - 19.03.2008, Qupperneq 6
6 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 12. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Vopnaðir sérsveitarmenn frá Ríkislögreglu-
stjóra gerðu áhlaup á íbúðarhús í Keflavík sl.
fimmtudagskvöld. Þar hafði 36 ára íslenskur
karlmaður lokað sig þar inni á salerni með
haglabyssu. Fljótlega eftir að sérsveitin kom
inn í húsið gafst maðurinn upp sjálfviljugur
og kom fram, en hann hafði læst sig inni á sal-
erni. Ógnaði maðurinn aldrei neinum með
skotvopninu en heimilisfólk bað um aðstoð
lögreglu og flúði vettvang eftir það.
Lögregla lokaði götunni á meðan á aðgerðum
stóð en handtók tvo menn fyrir óspektir að því
er fram kom hjá lögreglu, en þeir hafa síðan
kvartað undan harðræði við handtöku.
Málið er til skoðunar hjá lögreglu.
Yfirbugaður af sérsveitinni
Vopnaskak:
Undirbúningsframkvæmdir fyrir álver Norð-
uráls í Helguvík hófust á föstudag þegar bæj-
arstjórarnir Oddný Harðardóttir, Garði, og
Árni Sigfússon, Reykjanesbæ, afhentu Ragn-
ari Guðmundssyni, forstjóra Norðuráls bygg-
ingarleyfi fyrir álveri í Helguvík. Ákvörðun
um leyfisveitinguna var tekin á aukafundum
bæjarstjórna og var málið afgreitt með 10 at-
kvæðum þar sem einn sat hjá í Reykjanesbæ,
en í Garði voru sex með en einn fulltrúi á
móti. Í fyrstu verður lagður vegur að lóðinni,
öryggisgirðing reist og sett upp verkefnisskrif-
stofa á staðnum. Áformað er að taka fyrstu
skóflustungu að kerskála innan tíðar. Heild-
arkostnaður við framkvæmdina er áætlaður
80-90 milljarðar.
Gert er ráð fyrir að álverið verði byggt í
áföngum þannig að fyrirtækið vaxi „hóflegum
skrefum“ þannig að fyrsta áfanga framkvæmda
verði lokið árið 2010 og að framleiðslugeta ál-
versins verði þá um 150.000 tonn á ári. Öðrum
áfanga á að verða lokið árið 2015 og verður
framleiðslugetan þá komin í 250.000 tonn.
Ekki er ofsagt að skiptar skoðanir hafi staðið
um þessa ráðstöfun Garðs og Reykjanesbæjar
að veita byggingarleyfi þar sem mörgum finnst
sem ýmislegt annað vanti í jöfnuna. Til dæmis
hefur Umhverfisráðuneytið ekki enn tekið af-
stöðu til kæru Landverndar um að heildstætt
mat verði gert á umhverfisáhrifum álvers og
virkjana sem því tengjast. Er það skoðun Land-
verndar að ef umhverfisráðherra fallist á kröfur
þeirra séu forsendur útgáfu framkvæmdaleyfis
brostnar.
Raunar lýsti ráðherra sjálf yfir undrun á því að
leyfin hafi verið gefin út áður en allar upplýs-
ingar og forsendur liggja fyrir m.a. um virkjun-
arkosti og flutningsleiðir.
Raforkan fyrir fyrsta hluta álvers, 250 MW,
hefur verið tryggð með samningum við Hita-
veitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur.
Álversframkvæmdir hafnar í Helguvík:
Helguvík í gang
Suðurlindir og Landsnet funduðu um eflingu
háspennuflutninga á Suðurnesjum í gær og
munu halda viðræðum áfram eftir páska. Þar er
um að ræða fyrirkomulag raforkuflutninga frá
Hamranesi í Hafnarfirði að Fitjum í gegnum
landsvæði Voga. Tillögur Landsnets fela í sér
að ný og öflugri loftlína verði sett upp í sama
stæði og sú gamla, en enn á eftir að semja um
lokaútfærslu.
Oddný Harðardóttir, Árni Sigfússon og Ragnar
Guðmundsson, forstjóri Norðuráls.
VF-mynd/pket