Víkurfréttir - 23.04.2008, Side 20
20 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
ÁHUGAVERÐ
HELGARSTÖRF
Viljum bæta við helgarfólki í nýja og glæsilega verslun okkar að Fitjum:
Um er að ræða vinnu á laugardögum frá 09:00 – 18:00 eða 14:00 – 18:00
og á sunnudögum frá 12:00 – 17:00.
Umsóknum skal skilað til rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar/
Blómavals að Fitjum pallep@husa.is
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu félagsins www.husa.is.
Umsóknarfrestur er til 30 apríl n.k.
Húsasmiðjan og Blómaval - frábær saman.
Fitjar • 230 Reykjanesbær • 421 6500
Vogar kaupa
búseturétt
Bæjarráð Voga hefur sam-
þykkt að kaupa búseturétt
af Búmönnum í tveimur
íbúðum í stórheimilinu
Álfagerði, sem tekið var
formlega í notkun fyrir
skemmstu. Álfagerði er
samstarfsverkefni Bú-
manna og Sveitarfélagsins
Voga um uppbyggingu
íbúða og þjónustumið-
stöðvar fyrir eldri borgara
Í húsinu eru 13 íbúðir.
Lýsa ánægju
með eingreiðslu
Í bréfi sem lagt var fram á
bæjarráðsfundi í Grinda-
vík lýsir starfsfólk bæjar-
skrifstofunnar ánægju
sinni með eingreiðslu þá
sem ákveðin var við breyt-
ingu á starfsmannastefnu
bæjarins. Telja þeir hana
góða hvatningu til áfram-
haldandi starfs og „stuðla
að jákvæðni og góðum
starfsanda,“ eins og fram
kemur í fundargerð.
„Gaman væri að heyra
frá öðrum stofnunum
bæjarins hvort þar ríki
samsvarandi ánægja,“ segir
í bókun sem Hallgrímur
Bogason lagði fram á
fundinum. Fram hefur
komið að talsverð óánægja
hefur ríkt á meðal starfs-
fólks í grunnskólanum.
Dregið um lóðir
Umsækjendum um lóðir
í Ásahverfi og Dalshverfi
1 og 2 í Reykjanesbæ
var boðið að draga um
valröð á lóðum og er
sá háttur nýbreytni við
lóðaúthlutanir hjá Um-
hverfis- og skipulagssviði.
Alls höfðu 25 einstak-
lingar sótt um lóðir sem
voru endurúthlutaðar
og mættu 21 til þess að
draga um valréttinn.
Sá sem dró númer eitt gat
fyrstur valið sér lóð og svo
koll af kolli. Drátturinn
þótti takast vel og verður
fyrirkomulagið að öllum
líkindum endurtekið þar
sem það þykir auka gagn-
sæi í lóðaúthlutunum, segir
á vef Reykjanesbæjar.
Skólastjóri hættir
Gunnlaugur Dan, skóla-
stjóri grunnskólans í
Grindavík, hefur óskað
eftir því að láta af störfum
þann 1. ágúst. Bæjarráð
hefur falið bæjarstjóra
að ræða við Gunnlaug.