Víkurfréttir - 11.09.2008, Síða 4
4 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 37. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Aflatölur nokkurra veiði-
manna af Suðurnesjum, sem
fóru í laxveiði í Ytri-Rangá
á dögunum, líktust helst afla-
tölum dagróðrabáts fremur
en stangveiðimanna, þvílík
voru aflabrögðin.
Þeir fengu yfir 220 vel væna
laxa sem vógu flestir á bilinu
5-7 pund en samanlagt vó afl-
inn vel á sjötta hundrað kíló.
Að sögn Gísla Ólafssonar,
eins veiðimannanna, voru
þeir fjórir með tvær stangir
og fékkst aflinn í einu þriggja
daga holli. Gísli segist aldrei
hafa upplifað annað eins en
segja má að laxinn hafi bitið
á í hverju kasti. Allur aflinn
fékkst á spún.
„Það var verið að opna ána
eftir flugutímabil en þá er leyfi-
legt að veiða líka á maðk og
spún og þá er bara um að gera
að vera vakandi yfir þessu. Það
má segja að fiskiskyn gamla
skipstjórans hafi virkað vel
þarna,“ sagði Gísli og átti þá
við Þorstein Erlingsson sem
var með í hópnum. Þó Þor-
steinn hafi verið í stuði, en
hann veiddi með félaga sínum
á stöngina alls um 80 laxa, þá
voru Gísli og sonur hans Stefán
í enn meira stuði því þeir lönd-
uðu milli 140 og 150 löxum
og voru í lokin í vandræðum
með að halda tölunni réttri.
Fyrstu tvær vaktirnar fengu
þeir feðgar um sextíu fiska og
hafði einn leiðsögumannanna
á orði sem hitti þá félaga að
það hafi verið ótrúleg sjón að
sjá allan laxinn á bakkanum.
Gísli er þaulvanur veiðimaður
úr Rangánum en hann hefur
líka veitt mikið í Eystri Rangá
undanfarin ár og nokkrir tugir
laxa voru komnir í kistuna eftir
túra þangað í sumar.
Eins og vænta má eru allar
frystikistur fjórmenningana
fullar af laxi en afl inn var
flakaður og pakkaður í loft-
tæmdar umbúðir. Gísli tekur
undir það að lax verði ívið
oftar á borðum á hans heim-
ili en áður hefur viðgengist.
Þó sé engin hætta á að hann
fái leið á því ljúfmeti sem lax-
inn er. Né heldur sé ástæða til
að draga úr veiðiskapnum, þó
menn eigi fullar matarkistur
af fiski. „Það er alltaf ástæða
til að fara í veiði,“ segir Gísli.
Í holl inu voru 18 stang ir
og veiddust rúmlega 1100
laxar á sex vöktum á þremur
dögum. Er talað um að þetta
sé „móðir allra meta,“ eins og
það er orðað á vefnum Vötn
og veiði.
VÍ
KU
RS
PA
UG
M
yn
d:
G
uð
m
un
du
r R
ún
ar
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Ingigerður Sæmundsdóttir,
sími 421 0003, inga@vf.is
Íþróttadeild:
Jón Júlíus Karlsson,
sími 421 0003, jjk@vf.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Hörður Hersir Harðarson,
sími 421 0008, hordur@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Magnús Geir Gíslason,
sími 421 0005, magnus@vf.is
Þorsteinn Kristinsson,
sími 421 0006, steini@vf.is
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
VÍKURFRÉTTIR EHF.
Ótrúlegar aflatölur veiðimanna af Suðurnesjum:
Mokuðu upp laxi í Ytri-Rangá
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
35
11
0
9/
08
Toyota - tilboðsstemning um helgina
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Það verður mögnuð tilboðsstemning á Haustsýningu Toyota í Reykjanesbæ á laugardag.
Tilboðshorn með ótrúlegum sértilboðum
Bestu mögulegu fjármögnunarleiðir í boði
Taktu haustið með tilboði og aktu burt í nýjum Toyota.
Opið laugardag kl. 12 –16.
ALLIR
NÝIR TOYOTA BÍLAR
Á FRÁBÆRU TILBOÐI
Gísli Ólafsson segist aldrei hafa upplifað annað eins
Mikil eyjastemming var á Ljósanótt þetta árið. Aðeins vantaði
Árna Johnsen til að stjórna fjöldasöng og fullkomna stemminguna!
Fengsælir veiðimenn með metafla. Eins og sjá má eru þetta
allt fremur vænir laxar.
Á myndinni eru: Þorsteinn Erlingsson, Gísli Ólafsson, Stefán
Gíslason og Már Hallgrímsson.
Hér er hluti af aflanum kominn á pallinn og lá leiðinni í reyk. Á
myndinni eru Þorsteinn, Gísli, Birgir Haukdal og Stefán, sonur
Gísla.
Ljósanæturmót
Toyota
Ljósanæturmót Toyota og Pútt-
klúbbs Suðurnesja fór fram
um liðna helgi. Úrslit voru eft-
irfarandi:
Karlar
1. Hafsteinn Guðnason 68
2. Björgvin Þorvaldsson 68
3. Andrés Þorsteinsson 68
Bingó: Björgvin Þorvalds. 7
Konur:
1. Elísa Benediktsdóttir 73
2. Hrefna Ólafsdóttir 74
3. Gerða Halldórsdóttir 74
Bingó: Elísa Benediktsd. 6
Börn:
1. Einar Kristgeirsson 71
2. Guðlaugur Grétarsson 85
3. Arnar Kristinsson 87
Bingó: Einar Kristgeirsson 4