Víkurfréttir - 11.09.2008, Blaðsíða 10
10 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 37. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Starf á skrifstofu Varnarmálastofnunar Íslands
Varnarmálastofnun Íslands óskar eftir að ráða starfsmann í skrifstofustarf. Um er að ræða
fjölbreytt starf sem hentar jafnt konum og körlum. Starfið er bæði áhugavert og krefjandi þar
sem reynir á sjálfstæði og öguð vinnubrögð. Því er leitað að skipulögðum og áhugasömum
einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og metnaði.
Starfið felur m.a. í sér:
� Skráningu og vistun skjala
� Frágang skjala og bréfa
� Upplýsingagjöf og úrlausn mála
� Almenna afgreiðslu, þjónustu og símsvörun
� Afgreiðslu erinda sem berast bréflega o.fl.
Hæfniskröfur:
� Hreint sakavottorð og að geta uppfyllt skilyrði vegna öryggisvottunar
� Góð íslensku- og enskukunnátta; færni í norðurlandamáli kostur
� Góð almenn tölvukunnátta
� Fagmennska og metnaður í starfi
� Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi ríka þjónustulund, búi yfir hæfni í mannlegum
samskiptum og sé sjálfstæður í vinnubrögðum. Krafist er traustra vinnubragða og
stundvísi
� Tillit verður tekið til menntunar og reynslu
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsjón með starfinu
hefur Guðmundur Ingólfsson í gi@iads.is eða 425-5300. Umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist með tölvupósti á gi@iads.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. september n.k.
Um Varnarmálastofnun Íslands
Með varnarmálalögum nr. 34/2008 frá 29. apríl 2008 var Varnarmálastofnun falið að sinna
verkefnum á sviði varnarmála undir forræði utanríkisráðherra. Aðsetur og aðalskrifstofa
stofnuarinnar er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
www.varnarmalastofnun.is
��������������������
�� ����� �������
��������������
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9,
110 Reykjavík, sími 530 4200
ÍAV óskar eftir að ráða aðstoðarmann í
mælingavinnu til starfa á Suðurnesjum.
Æskilegar hæfniskröfur:
• Stúdentspróf
• Góð tölvukunnátta
• Reynsla í mælingum æskileg
Upplýsingar veitir Jón Indriðason
verkefnastjóri mælinga í síma 530-4200.
Umsóknir berist um heimasíðu ÍAV
www.iav.is fyrir 18. september 2008.
Nýr körfuboltavöllur var
formlega tekinn í notkun í
Reykjanesbæ á Ljósanótt og
er hann er sá eini í heiminum
sem er upphitaður.
Körfuboltavöllurinn er annar
sinnar tegundar í Reykjanesbæ
en fyrir ári síðan var settur
upp völlur af sömu gerð við
Holtaskóla í Keflavíkurhverfi.
Stefnt er að því að setja slíka
velli upp við alla grunnskóla
bæjarins.
Völlurinn er lagður yfirborðs-
efni frá Sport Court sem eru
plasteiningar læstar saman
á hliðunum. Plöturnar eru
riflaðar og opnar í gegn þannig
að vatn, sandur og óhreinindi
leka niður úr yfirborði. Efnið
hefur verið í notkun víða um
heim og hefur reynst vel. Körf-
urnar eru frá sama framleið-
anda og eru þær af vandaðri
gerð en gengur og gerist á úti-
körfuboltavöllum.
Völlurinn er við Njarðvíkur-
skóla þar sem er upphitaður
gervigrasvöllur og var því
tekin sú ákvörðun að hita
körfuboltavöllinn upp líka
þegar þörf krefur enda allar
lagnir til staðar.
Það var Kristbjörn Albertsson,
fyrrum kennari við Njarðvík-
urskóla, körfuboltadómari og
fyrrum formaður UMFN sem
vígði völlinn formlega með
því að dæma stuttan leik nem-
enda í Njarðvíkurskóla, en
að auki tók Logi Gunnarsson
atvinnumaður í körfubolta
nokkur skot á körfuna. Svo
skemmtilega vildi til að Logi
átti afmæli sama dag og sungu
af því tilefni nemendur Njarð-
víkurskóla fyrir hann afmælis-
sönginn.
Fyrsta mótið sem fram fór á
vellinum var götuboltamót
sem var hluti af dagskrá í
tengslum við Ljósanótt 2008.
Nýr körfuboltavöllur í Reykjanesbæ:
Sá eini í heiminum
sem er upphitaður