Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2008, Síða 13

Víkurfréttir - 11.09.2008, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 4. SEPTEMBER 2008 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Glæsileg Ljósahátíð Skessuhellir Listin Fjölmenni Árgangan 3000 blöðrur Blöðrur skólabarna sendar til himins á setningarhátíð Ljósanætur sl. fimmtudag. Bæjarbúar og gestir fjölmenntu í árgönguna svokölluðu þar sem fólk safnast saman við húsnúmer sem passar við fæðingarár viðkomandi. Talið er að allt að 50.000 manns hafi verið á hátíðarsvæðæinu á laugardagskvöldið. Hér sést aðeins lítill hluti þess hóps. Menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ 2008 þótti takast einstaklega vel. Öll dagskráin gekk vel og þrátt fyrir gríðarlegan mannfjölda komu ekki upp nein alvarleg mál og lögregla og viðbragðsaðilar eru himinlifandi yfir því hvernig til tókst. Sömu sögu er að segja af skipuleggjendum Ljósanætur sem voru að halda níundu hátíðina að þessu sinni. Á næsta ári verður haldin 10. Ljósanæturhátíðin og þá verður gert enn betur. Ásmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sagði ekki markmiðið að fjölga gestum, heldur væri áhersla á að bæta gæði þess sem er í boði og alla umgjörð. Að ári verður atvinnuvega-sýning í Reykjaneshöll í tenglsum við hátíðina þar sem fyrirtæki á Reykjanesi kynna starfsemi sína fyrir landsmönnum. - Sjá ítarlega umfjöllun um Ljósanótt í máli, myndum og myndböndum á vf.is Ljósmyndir: Ellert Grétarsson / elg@vf.is Um 60 listsýningar voru um allan bæ.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.