Víkurfréttir - 27.11.2008, Qupperneq 8
8 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Verktakasambandið
óskar eftir að kaupa allar
gerðir dekkja, með eða
án felga.
Nú er tækifærið fyrir
þig að losna við gömlu
dekkin úr geymslunni
eða bílskúrnum.
Komdu með þau til
okkar og við kaupum
þau af þér. Skoðum öll
dekk, gömul og ný og
gerum þér tilboð.
Við bjóðum einnig upp
á að sækja dekkin til þín.
KAUPUM AF ÞÉR
GÖMLU DEKKIN
Verktakasambandið ehf
Grófinni 9-11
Sími 892 8028
„Það er búið að vera gott að
gera að undanförnu og ég er
þrátt fyrir ástandið bjartsýnn á
jólaverslunina,“ sagði Sigurður
Björgvinsson, kaupmaður í K-
sport í Keflavík.
Nike kynning var í versluninni í
lok síðustu viku og komu margir
til að kynna sér nýjar vörur frá
þessum þekkta framleiðanda
sem og annað í fjölbreyttu vöru-
úrvali í K-sport. Sigurður sagði
að hann hafi reynt að sýna út-
sjónarsemi í innkaupum að und-
anförnu fyrir komandi jólaver-
tíð. „Þá á ég ekki við að ég hafi
skorið við nögl heldur hef ég í
sumum tilvikum keypt meira
inn en áður. Ég náði að kaupa
meira magn af vöru áður en
gengið féll fyrir skemmstu. Fyrir
vikið bjóðum við upp á sam-
keppnishæft verð á miklu úrvali
vara. Til að auka við þjónustuna
höfum við tekið þá ákvörðun
að fara tíðar ferðir til birgja
okkar í Reykjavík svo tryggja
megi að vörur sem vantar í
ákveðnum litum eða stærðum
fáist afhentar til viðskiptavina
okkar með skjótum hætti. Við
BJARTSÝNN Á
JÓLAVERSLUNINA
Góð stemmning á Nike dögum í K-sport:
förum til Reykjavíkur svo til á
hverjum morgni og erum mætt
með þær þegar K-sport opnar
að morgni“.
Auk Nike er K-sport með vörur
frá fleiri þekktum aðilum eins
og Puma, 66° Norður og Zo-on
og fleirum. Þegar fréttamaður
VF leit við á laugardag komu
fjölmargir að skoða úlpur og
kuldafatnað sem og fleira, m.a.
frá íslensku framleiðendunum
66° Norður og Zo-on. Sigurður
sagði þetta vinsælar vörur og lík-
legt að margar úlpur eigi eftir að
lenda í jólapakkanum í ár.
„Ég vil trúa því að það verði góð
jólaverslun á Suðurnesjum, jafn-
vel betri en áður. Vilji fólk halda
góðu þjónustustigi í verslun og
þjónustu á svæðinu er mikil-
vægt að það beini viðskiptum
sínum til aðila á Suðurnesjum.
Við þurfum öll að standa saman
núna. Þetta er búinn að vera sér-
stakur tími undanfarnar vikur.
Hingað hafa komið talsvert af
útlendingum. Um daginn kom
erlend flugfreyja sem keypti
tvær íslenskar úlpur þegar hún
sá hvað þær voru ódýrar. Hún
ætlaði bara að kaupa á manninn
sinn en þegar hún sá hvað hún
var að fá mikið fyrir peninginn
keypti hún á sig líka. Nú erum
við margir kaupmenn að upplifa
hvernig Íslendingar hafa verið
í útlöndum þegar gengið var
sterkt nú þegar útlendingarnir
koma til Ís lands og kaupa,“
sagði Sigurður.
Það var fín traffík á Nike dögum
í K-sport.
Kristjana Gunnarsdóttir frá
Lífsstíl, Siguður Björgvins og
Þórunn Ingjaldsdóttir frá Nike.
Ásdís Sverrisdóttir,
verslunarstjóri í K-sport
leiðbeinir viðskiptavini
með úlpur.