Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 16
Næst besta hátíðiN
Ég ákvað að slá um mig og bjóða krökkunum mínum upp á næst bestu hátíðina. Hin var allt of dýr. Hótel og íslensk nátt-
úrufegurð af bestu gerð í boði. Söngur, gleði, glaumur. Vestur
á Snæfellsnesi. Þau gátu ekki neitað tilboðinu. Þurfti aðeins að
stoppa í Rúmfatalagernum og kaupa fjögurra stjörnu helgarheim-
ili. Á útsölu. Bað þau um að fara á hamborgarabúllu á meðan við
hjónin keyptum það sem upp á vantaði. Vindsængur, tjaldstóla og
lopavettlinga. Hver þarf felli- eða hjólhýsi þegar íslenskt sumar-
veður skartar sínu fegursta. Svoleiðis hljóðaði alla vega spáin.
Arnarstapi tók á móti okkur með kostum og kynjum. Og smá vætu. Bara til þess að reyna á þolinmæðina við að reisa herlegheitin. Þróunarvinna í
hönnun og tjaldsaumi hefur skilað einfaldleikanum í agnarsmáan kassa á tuttugu
þúsund kall. Innihaldið breiddi úr sér á túnfætinum á augabragði. Teinar með
teygjum og nýtísku hælar skiluðu fagurgræna farandheimilinu upp á örskots-
stundu. Tók að mér að leiðbeina öðrum með sömu tegund enda var ég orðinn
sérfræðingur á þessu sviði. Skutlaði líka Hollendingi með gönguhóp til að sækja
rútuna þeirra. Sá talaði allan tímann þessa tólf kílómetra leið. Sagðist elska þögn-
ina! Kominn hingað í tíunda skiptið til að njóta hennar og náttúrunnar.
Loftið var lævi blandið fyrstu nóttina. Rakt og kalt. Sængurnar kaldklístraðar og ekki dugði annað en tvöfalt sett af undirfatnaði. Súrefnið blés um bognar
stangir og bleytan vætti hælana. Ættaróðalið fyrir vestan fagnaði komu okkar.
Ættingjarnir innandyra vorkenndu frændfólkinu utandyra. Úti í úðanum og
næðingnum. Litla fjölskyldan lét það ekki á sig fá. Heyrðum sama og ekkert í
kríunum. Hvað þá íslensku hænunum sem hlupu um túnið. Skemmtum okkur
vel. Af því að á morgun kæmi betri tíð með blóm í haga. Bara gaman.
Ættarmótið á sinn árlega sess í hugum okkar. Tilhlökkun og eftirvænting er einkennandi. Nema hjá krökkunum mínum. Þau fengu nóg af heiðríkjunni.
Treystu henni ekki. Vantaði stemmarann hjá okkur gamla fólkinu. Pökkuðu og
fóru. Skildu okkur eftir með alltof marga tjaldstóla. Væntingarvísitalan eitthvað
lægri hjá unga fólkinu. Framundan var fjörugur dagur með aldeilis frábærum
ættingjum. Langborð og lærisneiðar. Lagvisst fólk með endemum. Sungum
okkur hás inn í bjarta nóttina. Jökullinn hopar sem aldrei fyrr. Kraftar hans
þverra þó ekki því Bárður Snæfellsás vakir yfir honum. Dagur reis með rigningar-
skúr og vætti þurrar kverkar. Döggin lá sem demantur á dúnmjúku túninu.
vf.is
Fimmtudagurinn 12. júlí 2012 • 28. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
VEITINGASALAN Í LEIRU
ER OPIN ALLA DAGA
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Í HÁDEGINU
ALLA DAGA
SÚPA DAGSINS OG
FERSKUR FISKUR
KAFFIVEITINGAR,
HAMBORGARAR,
SAMLOKUR OG FLEIRA
GÓÐGÆTI.
OPIÐ ALLA DAGA FRAM
Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í
GS OG AÐRA.
husa.is
Allt frá grunni Að góðu heimili
síðAn 1956
hluti af Bygma
PAllAdAgAr
í húsAsmiðjunni
20%AfslátturAf AllriViðArVÖrn!
Autoglym
kynning og kennsla
Húsasmiðjunni Reyjanesbæ
laugardaginn 14. júlí kl. 12:00-15:00
Sérfræðingar frá AutoGlym kynna
þessar margverðlaunuðu bílahreinsivörur
og sýna réttu handtökin.
20%
afslát
tur
á lau
garda
g
Allt efni í PAllinnAllt Að 20%Afsláttur
20%AfslátturAf WorX og BlAck&decker
sótt um byggingu fiskeldis-
kerja á Vatnsleysu
Íslandsbleikja ehf. hefur sóttt um byggingarleyfi fyrir 8 fisk-eldisker við fiskeldisstöð á Vatnsleysu skv. ódagsettri umsókn
sem umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga tók á
móti í byrjun júní.
Umsóknin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þétt-
leika byggðar í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki
fyrir. Skal því fara fram grenndarkynning áður en umsókn um
byggingarleyfi er afgreidd í samræmi við skipulagslög. Kynna skal
umsóknina fyrir íbúum og eigendum jarðanna Stóru-Vatnsleysu og
Minni-Vatnsleysu og lóðanna Vatnsleysu og Vatnsleysu 2.
Gera göngustíg frá
Grindavík í bláa lónið
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að taka tilboði G.G. Sigurðssonar ehf. í gerð göngustígs sem liggur frá Grinda-
vík um Selskóg og að Bláa lóninu.
Bæjarráð samþykkir tilboð lægstbjóðanda í þann hluta sem er á
ábyrgð Grindavíkurbæjar kr. 9.104.000, þ.e. frá Grindavík að Sel-
skógi, og felur bæjarstjóra að vinna að framgangi gönguleiðarinnar
frá Selskógi að Bláa lóninu í samstarfi við HS Orku og Bláa lónið.