Víkurfréttir - 05.09.2013, Síða 2
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR2
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
LJÓSANÓTT
Fuglavík 18
Reykjanesbæ
Opið 8-18 mán-föstud.
Ljóskastari. 36W sparpera
3.695
Gemstone LED ljós
f/rafhlöður
1.290
ZB LED ljós
með hleðslurafhlöðu
2.995
SHA-2625
Vinnuljóskastari Rone
28W m. innst. blár
5.995
Kapalkefli 10 metrar
2.990
Kapalkefli 15 metrar
3.990
M
ar
ga
r g
er
ði
r
Hleðsluljós LM6006
3.990
Fjöltengi. 3 innstungur
595
Útblástur frá sorpbrennslu Kölku í Helguvík er hreins-
aður með reykhreinsidufti sem
í grunninn er matarsódi. Um
300 tonn af þessu dufti falla til
hjá Kölku á hverju ári og nú hafa
safnast upp um 3000 tonn sem
koma þarf til varanlegrar eyð-
ingar. Kalka er með geymsluhús-
næði bæði í Garði og Sandgerði
undir duftið sem í daglegu tali
er kallað flugaska. Þá er flug-
askan einnig farin að safnast upp
í sekkjum á athafnasvæði Kölku
í Helguvík. Leitað hefur verið til
margra fyrirtækja í Evrópu um
eyðingu á öskunni en kostnaður
við verkið er mikill.
Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri
Kölku, lagði fram skýrslu eða drög
fyrir stjórn Kölku að heimilda-
könnun um bindingu ösku frá sorp-
brennslu í steypu, sem framkvæmd
var af Nýsköpunarmiðstöð Íslands
undir forystu Ólafs H. Wallevik
prófessors í steypufræðum. Niður-
staðan gefur ekki vonir um að
lausn sé í sjónmáli enn sem komið
er um að nýta öskuna. Niðurstaða
skýrslunnar verður kynnt hjá Um-
hverfisstofnun og hugmyndir eru
um að leita eftir styrkjum erlendis
til frekari rannsókna.
Einsýnt virðist enn sem komið er
að hægt verði að farga flugöskunni
hér á landi. Eins og áður hefur
komið fram, þá hefur verið leitað
til margra fyrirtækja í Evrópu um
að taka við öskunni til eyðingar
og jákvætt svar hafði borist frá
fyrirtæki í Þýskalandi. Kostn-
aður við að koma öskunni þangað
reyndist óheyrilega mikill, segir
Jón. Hann segir jafnframt að Um-
hverfisstofnun þrýsti nú mjög á um
að málið leysist.
Stjórn Kölku hefur ákveðið að
leita aftur til fyrirtækisins NOAH
í Noregi um að taka við flug-
öskunni til eyðingar og voru send
fjögur sýni frá mismunandi tíma
til efnagreiningar hjá þeim. Árið
2012 voru send sýni af flugösku til
NOAH sem þá hafnaði því að taka
við öskunni vegna of mikils köfn-
unarefnisinnihalds.
„NOAH hefur nú sent okkur já-
kvætt svar sem gefur von um að
þeir séu tilbúnir til að taka við flug-
öskunni til eyðingar. Nú er unnið
að því að fá skýrari niðurstöðu og
yfirfara allar nauðsynlegar ráðstaf-
anir sem gera þarf m.t.t. að sam-
komulag náist við NOAH um lausn
á flugöskuvandanum,“ segir Jón.
NOAH sendi fulltrúa sinn hingað
til lands til viðræðna um fram-
kvæmd flutninga o.fl. Einnig voru
skoðaðar flugöskubirgðir, hafn-
araðstaða o.fl. sem máli skiptir. Jón
segir í samtali við Víkurfréttir að
beðið sé eftir tilboði frá NOAH í
flutning og eyðingu á flugöskunni.
Fyrirtækið taki reykhreinsiduftið
og þvoi það. Ætla má að í hverju
tonni af flugösku séu 10% óhrein-
indi. Þau séu síðan steypt í sérstaka
klumpa sem séu síðan urðaðir í
gömlum kalknámum í Noregi.
Kalka hreinsar allan útblástur frá sorpbrennslunni:
3000 tonn af flug-
ösku bíða eyðingar