Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 20
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR20 Hafnargata 29 - s. 421 8585 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM frá MIÐVIKUDAGS TIL SUNNUDAGS ljósanótt Opið Miðvikdag 11:00 - 18:00 og 20:00-22:00 Fimmtd, föstud. og laugard. 11:00 - 22:00 Sunnud. 12:00 - 17:00 20% auka afsláttur af öllum skóm í opið á lau gardegin um í skól agernum 45 ára afmæli 25%-45% afmælisafsláttur af öllum vörum Opnunartími Fimmtudagur frá kl. 9:00 - 22:00 Föstudagur frá kl. 9:00 - 20:00 Laugardagur frá kl. 10:00 - 20:00 Sunnudagur frá kl. 13:00 - 17:00 Sossa er aftur orðinn villingur -sýnir nýjar myndir ásamt Færeyingnum Birgit Kirke á Ljósanótt Í Bíósal Duus húsa verður spennandi sýning á verkum tveggja listmálara, Birgit Kirke sem kemur frá Þórshöfn í Færeyjum og Sossu, lista- manns Keflavíkur 1987. Sýningin er hluti af þriggja sýninga röð en auk þess að sýna á Ljósanótt sýndu þær í Þórshöfn í Færeyjum í vor og sýna í Grindavík vorið 2014. Af sama tilefni verður einnig boðið upp á færeyska og íslenska tónlist en tónlistarmennirnir Gunnar Þórðar- son frá Keflavík og Stanley Samuelsson frá Þórshöfn munu leika við opnun sýningarinnar og fleiri sýninga sem opna í Duushúsum þennan dag kl. 18:00. Sossa segir að hún hafi kynnst þessum hressu Færey- ingum í Kaupmannahöfn en þar hefur hún verið með annan fótinn undanfarin ár. Sossa segir að henni hafi fundist vel við hæfi að fá tónlistarmenn með í verkefnið enda sé mikil tónlist í myndum hennar og Birgit þótt þær séu ólíkar sem listamenn. „Þeir eru svo skemmti- legir Færeyingarnir. Ef bara að færeyskur matur væri betri þá myndum við bjóða upp á hann líka,“ segir Sossa og hlær. Stanley Samuelsson er þekkt númer í Færeyjum en hann hefur líka gert það gott í Danmörku þar sem hann er búsettur. Hann spilar svipaða tónlist og Gunnar og er undir miklum áhrifum frá Bítlunum að sögn Sossu. Sossa mun eingöngu sýna ný verk á sýningunni þar sem hún er aftur á fornum slóðum. „Þetta eru villtari myndir en ég hef verið með lengi. Mig langaði til þess að verða villingur eins og í gamla daga þegar ég var að byrja að mála.“ Sossa er að fara að leggja land undir fót en leið hennar liggur til Seattle í haust, þar sem hún mun kenna við Green River háskólann. Hún segist spennt fyrir því að flytja til Bandaríkjanna en Sossa mun kenna list og málun við skólann. Halla og Bjarnveig sýna í Vatnsnesi -Opna dyrnar að vinnustofum sínum í sögufrægu húsi við Vatnsnesveg Myndlistarkonurnar Halla Harðar- dóttir og Bjarnveig Björnsdóttir verða með myndlistarsýningu í Vatnsnesi á Ljósanótt, en þar hafa þær haft vinnustofu í rúmt ár. Vatnsnes er staðsett ofarlega á Vatnsnesvegi og er í eigu bæjarins, en þriggja hæða húsið er eingöngu notað sem aðstaða fyrir listafólk. „Okkur líður ótrúlega vel í þessu húsnæði og hugsa ég að mörgum Suðurnesjamönnum eigi eftir að finnast gaman að koma og skoða húsið sem Jóhann Guðnason kaupmaður og útgerðarmaður byggði á sínum tíma,“ segir Halla. Halla og Bjarnveig eru báðar hár- greiðslukonur og unnu þær lengi á sömu stofunni. „Það eru margir í fag- inu mjög skapandi. Alla vega fannst okkur báðum við þurfa að fá útrás fyrir sköpunargleðina fyrir utan hár- greiðslustofuna.“ Halla og Bjarnveig verða báðar með olíumálverk til sýnis og mest má sjá abstrakt í þeirra list. Aðspurðar hvaðan þær fái innblástur segist Halla hafa mótast af einstakri íslenskri náttúru og birtu. Helstu áhrifavaldar þeirra beggja eru Guðmundur Rúnar Lúðvíksson og Bjarni Sigurbjörnsson og hafa þær báðar setið námskeið hjá þeim. Myndlistarsýning Höllu og Bjarn- veigar opnar í kvöld kl. 20 í Vatns- nesi.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.