Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 26
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR26 Fann líklega upp Apple TV Faðir hans flutti til Seattleborgar þegar Guðmundur var um tvítugt og Guðmundur kom þá þangað í heimsókn. Guðmundur rakst á auglýsingu frá skóla einum í Seattle á meðan á heimsókninni stóð, þar sem auglýst var nám í ljósmyndun og myndbandsgerð, en hann hafði eitthvað verið að stússast í hvoru tveggja heima á Íslandi eins og hann orðar það. Hann skoðar sig um í skólanum og sækir um skóla- styrk. Til þess að öðlast inngöngu þurfti Guðmundur að skrifa ritgerð þar sem hann átti að finna upp tækni sem kæmi í stað vínyl- og geislaplötu, þegar þær yrðu úreltar. „Ég lagði hugann í bleyti og fann upp eitthvað apparat. Ég held að Steve Jobs hafi örugglega komist í þessa ritgerð því þetta er eiginlega alveg eins og Apple TV virkar í dag,“ segir Guðmundur og hlær dátt, en þetta var töluvert fyrir tíma Apple byltingarinnar sem nú tröllr- íður öllu. Skólastyrkur í boði John Denver Guðmundur var svo nánast búinn að gleyma umsókninni sem hann sendi inn þegar honum berst bréf til Íslands einhverjum árum síðar. Þar var honum tjáð að hann sé einn af átta umsækjendum sem hafi hlotið skólastyrk við skólann The Art Institute of Seattle, en alls voru um 3000 umsækjendur sem sótt- ust eftir styrk við skólann. Þess má geta að styrkirnir komu frá ýmsum þekktum einstaklingum en skóla- ganga Guðmundar var kostuð af söngvaranum sáluga, John Denver. Þessir skólar eru staðsettir víða en Guðmundur ákvað að stökkva á tækifærið og flytja til Seattle því hann hafði jú heillast af borginni áður. Námið sneri að myndbands- gerð, ljósmyndun og klippingu en einnig var snert á hljóðvinnslu í náminu sem tók rúm tvö ár. Guðmundur ílengdist í Banda- ríkjunum en honum bauðst vinna í borginni strax að loknu námi. Fyrst um sinn var hann í vinnu hjá skólanum sínum en þar voru það hæfileikar hans í rafmagninu sem komu til góða, en Guðmundur kláraði sveinspróf í rafvirkjun á Ís- landi áður en hann hélt í víking. Honum bauðst svo vinna hjá arki- tektafyrirtæki sem leitaði að manni í vídeóklippingu og eftirvinnslu myndbanda. Þar vann Guðmundur svo í 13 ár. Fyrirtækið sem kallast NBBJ er nokkuð stórt en það er með starfsemi í mörgum borgum Bandaríkjanna og víðar um heim- inn. Meðal bygginga sem fyrir- tækið hefur komið að eru Staple center í Los Angeles og Safeco hafnarboltavöllurinn í Seattle, auk fjölda annarra. Dreginn út úr feimnis- skelinni í Kanada Tónlistin hefur ávallt verið stór hluti af lífi Guðmundar en hann minnist þess þegar hann lærði á orgelið hjá Siguróla í Keflavíkur- kirkju sem táningur. „Ég var líka alltaf gólandi þegar ég var krakki. Þegar ég var í sveit sem barn þá var alltaf hægt að renna á hljóðið í mér þar sem ég var syngjandi.“ Guð- mundur lærði á hin ýmsu hljóð- færi en þeirra á meðal eru gítar, píanó og orgelið góða. Áhuginn fór svo meira út í sönginn en það tók dágóðan tíma að safna kjarki til þess að koma fram opinberlega og syngja. „Ég var feiminn strákur og faldi mig bara inni í skel og spilaði á gítarinn og söng,“ segir Guðmundur. Það breyttist þó þegar Guðmundur dvaldi sem skipti- nemi í Kanada um eins árs skeið. Þar var hann skyldugur til þess að fara í tíma þar sem þurfti að leika og syngja og koma fram. Þar má segja að hann hafi verið dreginn út úr skelinni. Hann spilaði í kjöl- farið með djassbandi í skólanum og tók m.a. þátt í skólaleikritinu það árið. „Allt í einu var maður farinn að þora að takast á við eitt- hvað nýtt,“ segir Guðmundur og það lifnar örlítið yfir honum. Þegar Guðmundur hélt heim að nýju þá stofnuðu hann og vinir hans síðan acapella hljómsveit, sem hét því skemmtilega frumlega nafni, Aca- pella. Þeir störfuðu í þónokkur ár og sungu víða og m.a. erlendis þar sem þeir ferðuðust og skemmtu sér og öðrum. Guðmundur minnist þeirra tíma með hlýhug og þegar þeir félagar hittast nú orðið þá eru gamir taktar rifjaðir upp. Kvintett- inn skipuðu ásamt Guðmundi þeir Davíð Ólafsson, Elvar Henning Guðmundsson, Jann Ólafur Guð- mundsson og Þorsteinn Ólafsson. Alltaf með myndavélina á lofti Guðmundur hafði verið að fikta við ljósmyndun allt frá því í 8. bekk og hann lærði m.a. að framkalla og ljósmynda í svart/hvítu. Guð- mundur fékk að gjöf góða Olym- pus myndavél áður en hann hélt til Kanada sem skiptinemi í eitt ár að loknum grunnskóla. Þar hélt hann áfram að taka myndir og svo var einnig þegar hann hóf nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar tók hann m.a. myndir fyrir skólablaðið og var duglegur að mæta á viðburði með myndavélina. Nú mætti segja að hann fari hvergi án þess að vera með myndavélina enda hefur hann atvinnu af ljósmynduninni. Fann ástina á fyrsta skóladegi í Seattle Þegar Guðmundur hóf nám við The Art Institute of Seattle kynntist hann Nancy verðandi konu sinni á fyrsta skóladeginum. Hún var þar að aðstoða erlenda nemendur á skólakynningu. „Hún var fyrsta manneskjan sem ég kynntist í skól- anum og við urðum góðir vinir.“ Vinátta þeirra hélst í gegnum árin en leiðir þeirra lágu svo ekki saman fyrr en mörgum árum seinna þegar Guðmundur var að leita að píanó- Tónelskur ljósmyndari í Seattle Keflvíkingurinn Guðmundur Ibsen Brynjarsson hefur hreiðrað um sig í bandarísku borginni Seattle, en þar hefur hann starfað við myndbandavinnslu og sem ljós- myndari um nokkurt skeið. Hann kom til borgarinnar á miðjum tíunda áratugnum sem námsmaður en hefur nú stofnað þar fjölskyldu og komið sér þægilega fyrir. Guðmundur spjallaði við blaðamann Víkurfrétta um lífið vestanhafs en tilviljanir réðu því að hann endaði í rigningarborginni í norðvestri Bandaríkjanna. „Ég var feiminn strákur og faldi mig bara inni í skel og spil- aði á gítarinn og söng“ Freermont tröllið er falið undir Aurora brúnni í Seattle er rúm sex tonn að þyngd. Ferjurnar eru vinsælar í Seattle og nauðsynlegar til þess að komast á milli staða. Guðmundur naut tímans í Kína. Ekki amalegt myndefni fyrir ljósmyndarann.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.