Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 32
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR32
LJÓSANÓTT Á INSTAGRAM
-Glæsilegur snjallsími í aðalverðlaun í
ljósmyndleik Víkurfrétta og Reykjanesbæjar
#ljosanott2013
PADDY‘S Á LJÓSANÓTT 2013
VIÐ ERUM REDDÍ FYRIR AKSJÓN HELGARINNAR!
EN ÞIÐ?
Fimmtudagur
5. september
Soffía Björg
Þórunn Antonía
Kíkið við eftir bæjarrápið,
vætið kverkarnar og látum ljúfa
tóna leika við eyrun .
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00.
Aðgangseyrir kr. 1.000,-.
Föstudagur
6. september
Alto Stratus
og leynigestir
Hiphop/fönk/rokk
súpergrúbba
frá Keflavík
Guðni Þór og Rok
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00.
Föruneytið mun halda ykkur
við efnið þar til dagur
rennur á ný
Frítt inn.
Að sjálfsögðu er boltinn
í beinni á Paddy‘s
í topp gæðum í HD.
Laugardagur
7. september
Björn Thoroddssen
Eðal-jazz frá einum besta
gítarista jarðkringlunnar og þó
víðar væri leitað
Tónleikarnir hefjast
að lokinni flugeldasýningu.
Föruneytið sér svo til þess að
þið sleppið ykkur
í taumlausri gleði
Já brosum og verum glöð
Aðgangseyrir kr. 1.500,-.
Verðum með súkkulaði og
vöfflur á vægu verði
17:45 IRISH STEW
í boði PADDY´S
Annað hvort ERTU Íri
eða VILT vera Íri
P a d d y ‘ s , H a f n a r g ö t u 3 8 , K e f l a v í k
verður á Hafnargötu 28 (gamla Hljómval)
á Ljósanótt frá miðvikudagskvöldi til sunnudags.
15% afsláttur af öllum vörum
Verið velkomin
Ásmundur Friðriksson al-þingismaður og fyrrverandi
bæjarstjóri í Garði tekur virkan
þátt í Ljósanótt. Ásmundur heldur
myndlistarsýningu í Gömlubúð
við Duus. Sýningin er haldin í til-
efni af útgáfu á bókinni „Ási grási
í Grænuhlíð. Eyjapeyji í veröld
sem var“. Þar eru sýndar pastel-
teikningar úr bókinni. Jafnframt
sýnir Ásmundur portrett-myndir
af Suðurnesjamönnum.
Ásmundur opnar sýninguna form-
lega í dag, fimmtudag kl. 18 og
verður hún opin til 22 í kvöld. Þá
verður sýningin opin á Ljósanótt
eins og aðrar sýningar. Ásmundur
mun verða með upplestur úr bók
sinni og hún verður einnig til sölu
á staðnum.
Myndlistin hefur verið Ásmundi
hugleikin í mörg ár. Hann fæst
nokkuð við það að teikna portrett-
myndir af fólki. Hann mun m.a.
sýna nokkrar nýjar andlitsmyndir
af Suðurnesjamönnum og einnig
olíuverk sem ekki hafa verið sýnd
áður í Reykjanesbæ.
Þingmaður sýnir
í Gömlubúð
Snúinn
Eiffelturn á
Parísartorgi
- afhúpaður við Reykjanes-
höll kl. 16 á föstudag
Un d i r bú n i ng u r Lj ó s -anætur hefur farið fram
á ýmsum stöðum og mörg
skemmtileg verkefni eru að
líta dagsins ljós. Eitt af verk-
efnunum verður afhjúpun
listaverks á þriðja torginu á
Þjóðbrautinni sem liggur frá
Hafnargötu að Reykjanes-
braut, sjálfu Parísartorginu.
Á Þjóðbrautinni eru fyrir
Reykjavíkurtorg sem skartar
Þórshamrinum eftir Ásmund
Sveinsson og Lundúnatorg
með rauðum símaklefa sem
einkennir þá borg. Parísar-
torgið er staðsett við Reykja-
neshöllina og verður opnað
kl. 16:00 á föstudag.
Þar sem torgið ber heitið Parísar-
torg kom að sjálfsögðu fátt annað
til greina en að setja þar Eiffel-
turn. Það er listamaðurinn Stefán
Geir Karlsson sem á heiðurinn af
verkinu, sem ber heitið Snúinn
Eiffelturn. Turninn var smíðaður
í Kína og fluttur hingað til lands
með skipi svo að við megum
láta okkur dreyma um framandi
slóðir.
AuglýsingA-
síminn
er 421 0001