Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR12 Fjóla Gullsmiður - Hafnargötu 29 - Sími: 421 1011 LJÓSANÆTURTILBOÐ 20% AFSLÁTTUR AF GULL OG SILFUR SKARTI DAGANA 4. - 8. SEPTEMBER Egill Þorsteinsson kírópraktor verður með fræðslu um heilsu og kírópraktík í stóra salnum í Eldvörpum síðdegis í dag, fimmtudaginn 5. september kl. 18:30. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Egill rekur stofu sína, KÍRÓPRAKTÍK ÁSBRÚ, í fyrirtækjahótelinu Eldvörpum, Flugvallarbraut 752. Ókeypis fyrirlestur um heilsu og kírópraktík 50 ár eru frá því hljómsveitin Hljómar frá Keflavík kom fyrst fram á sjónarsviðið. Af því tilefni verður boðið upp á dag- skrá með tónlist Hljóma á stóra sviðinu á laugardagskvöld á Ljósa- nótt. Hljómar mörkuðu djúp spor í íslenska tónlistarsögu og hafa alltaf verið kenndir við uppruna sinn í Keflavík og því er tilhlýði- legt að heiðra hljómsveitina á heimavelli. Söngvararnir Eyþór Ingi, Valdimar Guðmundsson og Stefanía Svavars mun flytja lög þeirra ásamt sérvalinni hljóm- sveit sem Jón Ólafsson, bítlavinur stýrir. Sögumaður á tónleikunum er Baldur Guðmundsson sonur Rúnars Júlíussonar heitins. Baldur segist hafa séð þarna dauðafæri á því að heiðra Hljóma við þessi merku tímamót þar sem hljómsveitin verði 50 ára í októ- ber næstkomandi. „Þetta er alveg kjörið þar sem tónlistin hefur verið í hávegum höfð á Ljósanótt. Stóra sprengjan varð þegar Hljómar frá Keflavík komu á sjónarsviðið og því er tilvalið að heiðra þá.“ Söngvarar í yngri kantinum sjá um að flytja lög Hljóma en Baldur segir í léttum tón að mikilvægt sé að enginn yngri en 50 ára komi að sýningunni. „Þarna erum við að kynna tónlistina fyrir yngra fólkinu og ýta undir fortíðarþrá hjá eldra fólkinu,“ segir Baldur sem ætlar sjálfur ekki að taka í hljóðfæri, nema þá í mesta lagi tambúrínu. Hann verður sögumaður á tón- leikunum eins og áður segir en þar mun hann kynna lögin sem flutt verða og segja stuttar sögur á bak við lögin. Hann segist vera mun minni maður en Kristján Jóhanns- son sem gegnir svipuðu hlutverki í söngleikjunum Með blik í auga og því fari hann ekki með jafnmikinn texta og gamanmál og Kristján. Lögin sem flutt verða eru lög sem hafa lifað með þjóðinni um áratuga skeið og verða þau í upprunalegum útfærslum. Fjölskylda Rúnars Júlíussonar heitins mun koma að sýningunni að miklu leyti en Júl- íus sonur hans verður á trommum í hljómsveitinni. Björgvin Ívar barnabarn Rúnars grípur svo í gítarinn. Blástursleikarar frá Tón- listarskóla Keflavíkur hjálpa til og Róbert Þórhallsson leikur á bassa. Baldur segist ekki útiloka að gömlu meðlimir Hljóma komi við sögu í dagskránni en það verði bara að koma í ljós. Að venju verða svo tónleikar við Skólaveg þar sem upptökuverið Geimsteinn er til húsa og fjölskylda Rúnars bjó alla tíð, og gerir enn. Þar koma m.a. fram Dr. Gunni, Védís Hervör og Big Band Theory. Baldur tjáir blaðamanni það að hljóm- sveitin Coda komi aftur saman eftir 30 ára hlé og stífar æfingar standi nú yfir. „Þessi sveit var stofnuð um sumarið 1983. Hún hætti svo störfum um haustið sama ár eftir mikla sigra á sveitaballamarkaði,“ segir Baldur en hann er einn með- lima hljómsveitarinnar ásamt þeim Vigga Daða, Ella Gott, Óskari Nikk og Gumma Kana. „Þar munum við rifja upp 80´s takta og taka nokkur vel valin lög með David Bowie og Men at work m.a. „Það er svo ekki útilokað að við náum í gömlu gall- ana úr geymslunum,“ segir Baldur að lokum. Fyrsti kossinn og eitís taktar -Fimmtíu ára Hljómasaga á stóra sviðinu og tónleikar í Geimsteini á Ljósanótt Fj ó l a Ó s l a n d H e r m a n n s - dóttir heldur sína fyrstu einkasýn- ingu í Kaffitári á Ljósanótt. Fjóla sem á sterkar tengingar við Reykjanesbæ þar sem hún bjó um nokkurra ára skeið sem barn segir það einstaklega ánægjulegt að hennar fyrsta sýning sé haldin í hennar gamla heimabæ. Hún er búsett skammt frá Heidel- berg í Þýskalandi þar sem eigin- maður hennar, Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfar í Rhein Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeild- inni. Hún segir að lífið í kringum handboltann sé annasamt og skemmtilegt þar sem mikil stemn- ing ríki í kringum deildina. En það sé henni mikilvægt að finna tíma til að mála og sinna hönnunar- verkefnum. Fjóla útskrifaðist árið 2007 sem textíl- og fatahönnuður. Undan- farin átta ár hefur Fjóla unnið að list sinni hér heima, í Danmörku og Þýskalandi. Hún málar með akrýl og notast við blandaða tækni. Sýningin ber heitið Annar heimur og segist Fjóla leitast við að ná fram dýpt í myndum sínum og teflir fram geómetrískum formum á móti lífrænum. „Lagskipting og flétta milli laga gefur myndunum dýpt og rými,“ segir Fjóla. Fjóla Ósland Hermanns- dóttir sýnir í Kaffitári Valdimar Örn Valsson, Snjólaug Kristín Jakobsdóttir, Margrét Birna Valdimarsdóttir, Páll Axel Vilbergsson, Snædís Anna Valdimarsdóttir, Valdís Lind Valdimarsdóttir, og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Birna Valdimarsdóttir, Kirkjuvegi 5, Keflavík, lést á heimili sínu, föstudaginn 30. ágúst. Útförin verður frá Njarðvíkurkirkju (Innri Njarðvík) föstudaginn 6. september kl. 15:00. Sumarrós Hildur Ragnarsdóttir, Bergur Finnsson, Gunnar Gísli Guðlaugsson, Guðbjörg Brynja Guðmundsdóttir, Anna María Guðlaugsdóttir, Kristján Jóhann Guðjónsson, Stefán Kristinn Guðlaugsson, Iðunn Pétursdóttir, Guðlaugur Helgi Guðlaugsson, Guðbjörg Pétursdóttir, Barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðlaugur Svanberg Eyjólfsson, Frá Stuðlabergi, Keflavík, Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 1. september. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn12. september kl. 13.00 Halla Gísladóttir, LJÓSANÓTT Á INSTAGRAM -Glæsilegur snjallsími í aðalverðlaun í ljósmyndleik Víkurfrétta og Reykjanesbæjar #ljosanott2013

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.