Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 34
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR34
Hvað er ég búinn
að koma mér út í?
Sundkappinn Davíð Hildiberg stundar nám við Arizona
State háskólann í Arizona fylki
Bandaríkjanna. Fyrir þá sem
ekki vita er Arizona fylki heitt
og þurrt og þegar blaðamaður
heyrði í Davíð þá var hitinn tæpar
40 gráður. Það er grænt og fallegt
í háskólabænum þar sem Davíð
býr en hann segir eyðimörkina
taka á móti manni þegar komið er
út fyrir bæjarmörkin.
Skólinn hans Davíðs er sá fjölmenn-
asti í Bandaríkjunum en þar eru
rúmlega 70.000 nemendur. Skólinn
er staðsettur í bænum Tempe en að
sögn Davíðs snýst allt um skólann
í bæjarlífinu. Bæði hvað varðar
námsárangur og í íþróttum, þá er
skólinn gríðarlega sterkur. Skólinn
keppir í svokölluðum Pac12 riðli
og sá riðill er annar þeirra sterk-
ustu þegar kemur að sundinu. „Það
eru margir heimsmethafar og Ól-
ympíufarar sem hafa synt í þessari
deild,“ segir Davíð.
Stórir skólar eru ekki að
leita að Íslendingum
Birkir Már Jónsson fyrrum liðs-
félagi Davíðs í ÍRB í sundinu var
kominn í háskólanám í Banda-
ríkjunum og Davíð var orðinn
spenntur fyrir því að kynna sér
þann möguleika betur. Hann segir
umsóknarferlið vera langt en hann
sendi fjölda skóla póst og for-
vitnaðist um möguleikann á að
komast að á skólastyrk. „Það þarf
aðeins að ýta á eftir þessu og bera
sig eftir björginni,“ segir Davíð.
Stórir skólar í Bandaríkjunum eru
víst ekki beint að leita eftir íþrótta-
mönnum á litla Íslandi.
Davíð er nú búinn að vera við nám
í skólanum í þrjú ár og er að hefja
fjórða árið núna í sumar. Hann
leggur stund á nám í arkitektúr
en mastersnám er fyrir höndum,
en það nám tekur önnur þrjú ár.
Davíð er á fullum námsstyrk en há-
skólanám í Bandaríkjunum kostar
skildinginn. Hann bjó fyrst um
sinn á heimavist með herbergis-
félaga en nú leigir hann hús ásamt
liðsfélögum sínum í sundliðinu.
Fékk algert sjokk
Æfingar eru virkilega erfiðar þar
sem fyrst um sinn er verið að skilja
hismið frá kjarnanum en margir
hreinlega gefast upp og hætta.
Þjálfarar eru þá að athuga hvort
fólk hafi karakterinn og viljann
til þess að standa sig. „Eftir fyrstu
æfinguna hugsaði ég; Hvað er ég
búinn að koma mér út í,“ en liðið
þurfti að hlaupa í tröppunum á
kappvellinum en þar taldi Davíð
einar 4000 tröppur sem hlaupið var
upp og niður. Þegar Davíð byrjaði
fyrst voru um 12 nýir sundmenn
sem hófu æfingar en þeim fækkaði
fljótlega niður í þrjá. „Þegar ég kom
hingað fyrst þá fékk ég algert sjokk.
Þetta er mun meiri hasar og keppni
en ég átti að venjast. Á æfingum er
mikil keppni því það eru kannski
þrír aðrir að keppa um þína stöðu
í liðinu, og maður vill ekki tapa.
Heima á Íslandi er maður meira að
keppa við sjálfan sig,“ segir Davíð.
Alvaran tekur við
Hvað varðar námið þá tók smá
tíma að ná tökum á tungumálinu.
„Fyrsta önnin var frekar skrýtin
og maður var alltaf að strika undir
og með orðabókina við höndina.“
Davíð hafði lokið stúdentsprófi frá
FS og í raun voru fyrstu tvö árin
ekki svo erfið að hans mati í Banda-
ríkjunum þegar hann hafði náð
sterkum tökum á enskunni. Davíð
segist hafa verið að fá hæstu ein-
kunn á öðru ári sínu í háskólanum
en í FS taldist hann ekki sterkur
námsmaður. „Ég get ekki sagt
það. Þá var ég að fá í kringum sjö í
meðaleinkunn. Þegar maður er svo
kominn út að læra það sem maður
hefur áhuga á þá leggur maður
meira á sig. Alvaran tekur við.“
Mikill heiður að vera verðlaunaður
Davíð var á vordögum sæmdur
heiðursverðlaunum sem veitt eru í
nafni Ron Johnson fyrrum þjálfara
við Arizona háskólann. Verðlaunin
eru veitt þeim sundmanni sem
talinn er hvetjandi fyrirmynd og
frábær leiðtogi bæði í lauginni og í
skólastofunni.
Ertu til fyrirmyndar þarna í skól-
anum? „Greinilega að mati þjálfar-
anna,“ segir Davíð og hlær.
Davíð er einn þriggja fyrirliða í
sundliði skólans en alls eru um 50
manns í liðinu. Hann segist ekki
hafa búist við því að gegna þess-
ari stöðu en hlutverk fyrirliða er
nokkuð veigamikið. Liðið hefur
náð mjög góðum árangri í ár. Lið
hans sló m.a. skólamet í 4x100
yarda fjórsundi (100 yardar eru 90
metrar) þar sem fyrrum ólympíuf-
arar áttu fyrra metið.
„Þetta eru stór verðlaun og það var
- Sundkappinn Davíð Hildiberg til fyrirmyndar í Arizona háskóla
–Framhald á bls 36
Móðir Davíðs kom að sjálfsögðu í heimsókn á útskriftardaginn.
Davíð ásamt
skólafélögum sem
heimsóttu Ísland.