Víkurfréttir - 05.09.2013, Page 20
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR20
Hafnargata 29 - s. 421 8585
20%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM
frá MIÐVIKUDAGS TIL SUNNUDAGS
ljósanótt
Opið
Miðvikdag 11:00 - 18:00 og 20:00-22:00
Fimmtd, föstud. og laugard. 11:00 - 22:00
Sunnud. 12:00 - 17:00
20% auka afsláttur
af öllum skóm í
opið á lau
gardegin
um í skól
agernum
45 ára afmæli
25%-45%
afmælisafsláttur af öllum vörum
Opnunartími
Fimmtudagur frá kl. 9:00 - 22:00
Föstudagur frá kl. 9:00 - 20:00
Laugardagur frá kl. 10:00 - 20:00
Sunnudagur frá kl. 13:00 - 17:00
Sossa er aftur orðinn villingur
-sýnir nýjar myndir ásamt Færeyingnum Birgit Kirke á Ljósanótt
Í Bíósal Duus húsa verður spennandi sýning á verkum tveggja listmálara, Birgit Kirke sem
kemur frá Þórshöfn í Færeyjum og Sossu, lista-
manns Keflavíkur 1987. Sýningin er hluti af þriggja
sýninga röð en auk þess að sýna á Ljósanótt sýndu
þær í Þórshöfn í Færeyjum í vor og sýna í Grindavík
vorið 2014.
Af sama tilefni verður einnig boðið upp á færeyska og
íslenska tónlist en tónlistarmennirnir Gunnar Þórðar-
son frá Keflavík og Stanley Samuelsson frá Þórshöfn
munu leika við opnun sýningarinnar og fleiri sýninga
sem opna í Duushúsum þennan dag kl. 18:00.
Sossa segir að hún hafi kynnst þessum hressu Færey-
ingum í Kaupmannahöfn en þar hefur hún verið með
annan fótinn undanfarin ár. Sossa segir að henni hafi
fundist vel við hæfi að fá tónlistarmenn með í verkefnið
enda sé mikil tónlist í myndum hennar og Birgit þótt
þær séu ólíkar sem listamenn. „Þeir eru svo skemmti-
legir Færeyingarnir. Ef bara að færeyskur matur væri
betri þá myndum við bjóða upp á hann líka,“ segir
Sossa og hlær.
Stanley Samuelsson er þekkt númer í Færeyjum en
hann hefur líka gert það gott í Danmörku þar sem hann
er búsettur. Hann spilar svipaða tónlist og Gunnar og
er undir miklum áhrifum frá Bítlunum að sögn Sossu.
Sossa mun eingöngu sýna ný verk á sýningunni þar
sem hún er aftur á fornum slóðum. „Þetta eru villtari
myndir en ég hef verið með lengi. Mig langaði til þess
að verða villingur eins og í gamla daga þegar ég var að
byrja að mála.“ Sossa er að fara að leggja land undir fót
en leið hennar liggur til Seattle í haust, þar sem hún
mun kenna við Green River háskólann. Hún segist
spennt fyrir því að flytja til Bandaríkjanna en Sossa
mun kenna list og málun við skólann.
Halla og Bjarnveig
sýna í Vatnsnesi
-Opna dyrnar að vinnustofum sínum
í sögufrægu húsi við Vatnsnesveg
Myndlistarkonurnar Halla Harðar-
dóttir og Bjarnveig Björnsdóttir verða
með myndlistarsýningu í Vatnsnesi
á Ljósanótt, en þar hafa þær haft
vinnustofu í rúmt ár. Vatnsnes er
staðsett ofarlega á Vatnsnesvegi og
er í eigu bæjarins, en þriggja hæða
húsið er eingöngu notað sem aðstaða
fyrir listafólk. „Okkur líður ótrúlega
vel í þessu húsnæði og hugsa ég að
mörgum Suðurnesjamönnum eigi
eftir að finnast gaman að koma og
skoða húsið sem Jóhann Guðnason
kaupmaður og útgerðarmaður byggði
á sínum tíma,“ segir Halla.
Halla og Bjarnveig eru báðar hár-
greiðslukonur og unnu þær lengi á
sömu stofunni. „Það eru margir í fag-
inu mjög skapandi. Alla vega fannst
okkur báðum við þurfa að fá útrás
fyrir sköpunargleðina fyrir utan hár-
greiðslustofuna.“
Halla og Bjarnveig verða báðar með
olíumálverk til sýnis og mest má
sjá abstrakt í þeirra list. Aðspurðar
hvaðan þær fái innblástur segist Halla
hafa mótast af einstakri íslenskri
náttúru og birtu. Helstu áhrifavaldar
þeirra beggja eru Guðmundur Rúnar
Lúðvíksson og Bjarni Sigurbjörnsson
og hafa þær báðar setið námskeið
hjá þeim.
Myndlistarsýning Höllu og Bjarn-
veigar opnar í kvöld kl. 20 í Vatns-
nesi.