Víkurfréttir - 05.09.2013, Side 6
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR6
Ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust.
kynning
í Lyu Reykjanesbæ
Sérfræðingur frá Clinique
verður í Lyfju Reykjanesbæ
föstudaginn 6. september
til að veita ráðgjöf.
Superdefense CC Cream SPF 30
Superdefense CC kremið er litað dagkrem
sem jafnar húðlitinn ásamt því að hjálpa
til við verndun gegn ótímabærri öldrun
vegna UVA/UVB skemmda.
CC kremið inniheldur Rósmarín extract og
C vítamín sem sér um að veita öflugan
raka og fær húðina til að ljóma.
25% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM CLINIQUE VÖRUM
Í TILEFNI LJÓSANÆTUR
Gildir frá fimmtudegi til laugardags
Svo virðist sem fullt af fólki rati ekki í Kölku en þess í
stað villist það með ruslið sitt í
heiðina upp af Mánagrundinni.
Þrátt fyrir að í boði sé malbikaður
vegur alveg inn á gámaplanið við
Kölku í Helguvík, þá virðist fólk
slysast á holóttan malarveg og
grýttan slóða.
Auðvitað er erfitt að hossast með
ruslið eftir svoleiðis ófærum og því
hefur það verið val margra að skilja
ruslið bara eftir í heiðinni. Það
hljóta að koma bæjarstarfsmenn og
hreinsa upp ósómann. Það er hins
vegar spurning hvort þeir bæjar-
starfsmenn séu frá Reykjanesbæ
eða Sveitarfélaginu Garði, því
hugsanlega er þessi nýi losunar-
staður fyrir rusl á bæjarmörkum
þessara nágrannasveitarfélaga.
Rötuðu
ekki í
Kölku
Skemmtilegt ævintýri gerðist á flóamarkaði sem hald-
inn var í Garðinum um liðna
helgi. Þar kom 45 ára gamall
brúðarkjóll í leitirnar en lýst
hafði verið eftir kjólnum fyrr í
sumar, án árangurs.
Kristjana Kjartansdóttir, Sjana,
hafði lánað kjólinn til að nota í
leiksýningu hjá Gerðaskóla fyrir
einhverjum árum. Kjóllinn var
aldrei notaður í sýningunni og
fór á eitthvað flakk, þannig að
enginn vissi hvar hann endaði.
Sjana hafði gift sig í kjólnum árið
1968 og því hafði hann mikið til-
finningalegt gildi fyrir hana.
Kristín Kristjánsdóttir förðunar-
meistari úr Garðinum var með
kjólinn til sölu á flóamarkaðnum
og alveg grunlaus um að Sjana
hefði verið eigandi kjólsins.
Kristín er mikil vinkona færeysku
söngkonunnar Eivarar Páls-
dóttur. Fyrir einhverjum árum
voru þær vinkonur að leita að
kjól sem Eivör ætlaði að syngja
í á tónleikum með Ragga Bjarna
og Sinfóníuhljómsveit Íslands í
Háskólabíói. Þar voru gömul lög
þemað og þess vegna fóru þær
í verslunarleiðangur í leit að
gömlum kjólum.
„Við fórum í verslunina Rokk
og Rósir á Laugaveginum og þar
keyptum við einn bleikan kjól
og þennan fallega bláa kjól sem
reyndist svo vera brúðarkjóllinn
hennar Sjönu. Var þessi flóamark-
aður tilviljun? Ég held ekki, þessi
kjóll átti að komast aftur í hendur
eiganda síns,“ segir Kristín glöð
í bragði.
Týndi brúðarkjóllinn
fannst á flóamarkaði
Velkomin í Árgangagöngu á Ljósanótt í Reykjanesbæ
Byrjaðu frábæran laugardag á Ljósanótt með þátttöku í einstakri skrúðgöngu,
Árgangagöngunni. Þar sem mannkynssaga nútímans tekur á sig mynd.
Málið er einfalt
Sértu fæddur ´53 mætir þú fyrir framan Hafnargötu 53 o.s.frv.
Yngsta kynslóðin hefur gönguna og marserar niður Hafnargötu í gegnum heilt
æviskeið. Þeir eldri bíða og horfa á æskuna renna hjá þar til röðin kemur að
þeim að bætast við. „Hringnum“ er lokað þegar hópur heldri borgara stígur inn
í gönguna og gætir þess, sem fyrr, að enginn heltist úr lestinni.
Allt undir dynjandi lúðrablæstri lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
og Lúðrasveitar Hafnarfjarðar. Við tekur viðburðarríkur dagur í Reykjanesbæ sem
endar með stórkostlegri flugeldasýningu og stórtónleikum þar sem fram koma:
Dr. Gunni og vinir hans, Ásgeir Trausti, Fyrsti kossinn– Hljómar í 50 ár,
Valdimar, Eyþór Ingi og Stefanía Svarsdóttir,
Hljómsveitin Valdimar og Ojba rasta.
Velkomin á Ljósanótt í Reykjanesbæ
Sjá dagskrá á ljosanott.is
Reykjanesbær 2013