Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 10
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR10
Veistu Anna Lóa, ég er að hugsa um að hætta
á Feisbúkk, er allt of mikið þarna eitthvað og
stundum stend ég mig að því að hugsa í ,sta-
tusum“. Svo las ég í blöðunum um daginn um
rannsókn þar sem kom fram að þeir sem væru
mikið á FB væru sjálfhverfir einstaklingar sem
þyrftu stanslaust að fá viðurkenningu eða við-
brögð frá vinum sínum. Úff, vil ekki viðurkenna
að ég sé þar. Veit ekki alveg hvað ég á að gera!!
Elskan mín góða, ég hef lesið fjöldann allan af
rannsóknum um FB og aðra
samfélagsmiðla og við skulum
a ð e i n s s k o ð a
þetta. Maðurinn
er tengslavera og
þar f nast sam-
skipta við aðra
og öl l þurfum
við á því að halda
að t i lheyra og
finna að við skiptum máli. Þegar
við erum í samböndum upplifum
við að hafa vitni af lífi okkar. Þá á
ég við þessu hversdagslegu hluti
sem er svo ómetanlegt að geta deilt
með annarri manneskju. Hlutir
eins og koma heim á daginn og
fara yfir vinnudaginn eða hafa ein-
hvern sem þú getur speglað þig í er oft sá hluti
af sambandinu sem maður saknar mest við
sambandsslit. Þrátt fyrir að margir nýti FB ein-
göngu til skemmtunar þá eru þeir margir sem
nota miðilinn til að deila þar hluta af lífi sínu
og finnst á sama tíma það hafa meiri tilgang.
Þannig eru margir sem hafa lifað einangruðu lífi
sem hafa geta nýtt sér þessa miðla á heilbrigðan
hátt og jafnvel fundist hversdagsleikinn fá meiri
merkingu því þeir hafa vitni af lífi sínu.
En það er með þessi tengsl eins og önnur, þau
eru vandmeðfarin. Í öllum tengslum gætum við
upplifað klessutengsl, þannig að tengslin verða
of flækt og við týnum okkur sjálfum: hver er ég,
hvar byrja ég og verð að hinni manneskjunni.
Í heilbrigðum tengslum tengjast einstaklingar
en eru ekki samofnir á allan hátt. Við erum
á hættusvæði þegar okkur finnst við algjör-
lega bera ábyrgð á öðrum og gleymum eigin
þörfum. Þegar við erum í skökkum tengslum
við okkur sjálf er auðveldara að detta í þá gryfju
að maður verði sáttari ef umhverfið eða annar
aðili samþykkir mann þegar sannleikurinn
er sá að við þurfum fyrst og fremst að upplifa
sjálfsátt. Þegar við förum inn í sambönd erum
við oftast klædd í ,,sparifötin“ í byrjun og erum
hrædd við að sýna okkar sanna sjálf því innra
með okkur gæti leynst sú vonda tilfinning að ef
fólk áttar sig á hver maður er í raun og veru þá
sé hætta á falleinkunn og höfnun í kjölfarið.
Við klæðumst oftast ,,spariföt-
unum“ þegar við notum sam-
félagsmiðla og þurfum að vera
meðvituð um það. Þar sem
við deilum bara hluta af lífi
okkar þar, er oft um yfirborðs
tengsl er að ræða sem sýna ekki
okkar sanna sjálf. Þrátt fyrir
að vera meðvituð um þetta hef
ég átt tímabil þar sem ég hef
dottið ofan í þá gryfju að bíða eftir viðbrögðum
umhverfisins (FB) varðandi ýmislegt og verið
þannig háð því að fá viðurkenningu og sam-
þykki fyrir því að ég sé í lagi. Viðmiðin mín í
sambandi við FB eru að þegar ég er orðin háð
því að fá viðbrögð, þá er ég ekki á góðum stað,
en það sama getur átt við önnur sambönd í lífi
mínu.
Svo áður en þú hættir á FB skaltu spyrja sjálfan
þig hvernig þú notar þennan miðil og hvort þú
treystir á ,,vini“ þína þar til að finna til öryggis
og vellíðunnar eða hvort þú sért meðvituð um
að þú ein berð ábyrgð á því. Sömu spurninga
gætir þú svo spurt þig varðandi önnur tengsl
- því sannleikurinn er sá að því betri tengslum
sem þú ert við sjálfa þig því auðveldara er fyrir
þig að láta ekki annað eða aðra hafa áhrif á þig.
Talandi um öryggi, hvað sem þessari rannsókn
líður þá hvet ég þig til að hafa nægilegt öryggi
til að skoða niðurstöðurnar með gagnrýnum
augum, vega og meta hvort þetta eigi við þig og
taka síðan meðvitaða ákvörðun út frá því.
Hún kinkaði kolli og sagði svo sannfærandi:
Stórt ,,LIKE“ á það!!
Þangað til næst - gangi þér vel!
Anna Lóa
,,Feisbúkk-klessan“ þín!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HAmINgjuHoRNIð
Við erum á hættu-
svæði þegar okkur
finnst við algjörlega
bera ábyrgð á
öðrum og gleymum
eigin þörfum.
Anna Lóa
STÆ
RST
I
ÍSBA
R Á
SUÐ
UR-
NES
JUM
Eitthvað fyrir alla öl-skylduna
FJÖLBREYTT TILBOÐ Á GRILLINU!
KÓK MEÐ ÖLLUM TILBOÐUM
Verið velkomin í glæsilegu
ísbúðina
okkar að Iðavöllum 14
20%
LJÓS
ANÆ
TUR-
AFSL
ÁTTU
R
AF K
RAPI
4 tegundir af krapa-ís
Vanilluís
Jarðaberjaís
Gamaldagsís
Súkkulaðiís
Nammi SHAKE
Vanillu-jarðberja tvistur
Karamelluís
40 tegundir af kurli
Karamellu og súkkulaðitvistur
Nesdekk
ragnarb@benni.is
Atvinna - bifvélavirki
Við bjóðum upp á gæðadekk
frá Toyo, BFGoodrich, Maxxis
og Interstate.
Nesdekk
Við bjóðum
vaxtalaus lán
frá Visa og
Mastercard í allt
Við bjóðum einnig
upp á smur- og
viðgerðarþjónustu
Sendibíladekk
Heilsársdekk
Opnunartími:
Virka daga:
Jeppadekk
Það er
öruggara að
velja réttu
dekkin