Víkurfréttir - 05.09.2013, Page 24
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR24
Jones um að koma og spila með lið-
inu sem heitir Charlotte Christian
Knights. Ekki leið á löngu þar til
Örlygur fór að láta finna fyrir sér í
vöggu körfubolans. Þar náði hann
strax fótfestu í sterku liði skólans og
sýndi fljótlega leiðtogahæfileika.
Slær Stephen Curry við
Þegar leikstjórinn Garðar Örn og
félagar hans heimsóttu gamla skóla
Örlygs við vinnslu myndarinnar þá
komust þeir að því að Örlygur átti
ennþá met sem stóðu í skólanum.
Þeir sem fylgjast með NBA-deild-
inni í dag vita eflaust hver Stephen
Curry leikmaður Golden State
Warriors er. Hann er einn allra
besti ungi bakvörður deildarinnar í
dag og af mörgum talinn vera besti
skotmaður sem leikið hefur í NBA.
Curry gekk í sama skóla og Örlygur,
og eiga þeir báðir met sem standa
þar enn. Örlygur á met yfir flesta
stolna bolta á einu tímabili í skól-
anum og einnig yfir flestar stoð-
sendingar á einu tímabili. En hann
lék aðeins eitt tímabil með liðinu.
Örlygur sjálfur var ekki mikið að
stæra sig af þessum árangri sínum
en fjöldi háskóla vestanhafs höfðu
samband við pilt og óskuðu eftir
því að fá hann til liðs við sig. Hjarta
hans var þó heima í Njarðvík og
hann sneri aftur heim eftir tæplega
árs dvöl.
„Mér finnst eins og ég hafi
þekkt hann alla ævi“
Garðar Örn segir að þessu rúma ári
sem hann hefur unnið að mynd-
inni hafi hann kynnst Örlygi vel.
„Ég las minningargrein um Ölla
sem Örvar Kristjánsson skrifaði
á heimasíðu Njarðvíkur. Þá fór
ég að hugsa af hverju minningu
hans hefði ekki verið haldið hærra
á lofti. Mér fannst pínulítið eins
og hann væri gleymdur.“ Garðar
segir að allir þeir sem komi að gerð
myndarinnar, viðmælendur og
fleiri, séu virkilega ánægðir með að
verið sé að heiðra hans minningu.
Hann segir að við gerð myndar-
innar hafi hann sjálfur nokkurn
veginn kynnst Örlygi. „Mér finnst
eins og ég hafi þekkt hann alla ævi,“
en Garðar hefur átt innileg samtöl
við bróður hans, móður og nána
vini í ferlinu sem spannar nú orðið
rúmt ár. „Maður getur í raun ekki
útskýrt þessa tilfinningu. Að þekkja
einhvern svona vel, sem maður
þekkir þó í raun ekki neitt.“
Upphaflega lagði Garðar af stað
með það í huga að kynnast körfu-
boltamanninum Örlygi Aroni
Sturlusyni. Þegar á leið kom svo
annað á daginn. „Þetta er rosalega
persónuleg mynd. Þetta er ekki
bara þessi körfuboltastrákur sem
fólk telur sig hafa þekkt.“
Garðar segist hafa rætt fljótlega við
fjölskyldu Örlygs sem veitti blessun
sína varðandi gerð myndarinnar.
Fljótlega eftir það fór Garðar að afla
sér upplýsinga um feril Örlygs. „Ég
gerði mér ekki grein fyrir því að
hann hefði verið svona góður. Þegar
við fórum í skólann sem hann sótti
úti í Bandaríkjunum kom ýmis-
legt í ljós. Fólk er ennþá að tala um
hann þarna í skólanum og margir
kennarar mundu eftir honum. Það
kom okkur á óvart.
„Ég man hversu ótrúlegur leik-
maður hann var,“ segir Garðar
sem var vatnsberi hjá Keflavíkur-
liðinu þegar Örlygur var að spila
með Njarðvík árið 1999, þá 18 ára
gamall. Garðar rifjar upp að Ör-
lygur hafi verið ungu strákunum í
körfuboltanum mikil fyrirmynd.
Það er fyrir löngu orðið goðsagnar-
kennt í Njarðvík þegar Örlygur
ásamt Loga Gunnarssyni, þá báðir
16 ára gamlir, léku lykilhlutverk í
Íslandsmeistaratitli Njarðvíkinga
árið 1998.
Nánast hinn fullkomni
íþróttamaður
Logi Gunnarsson er sá leikmaður
sem lék flesta leiki á körfubolta-
vellinum við hlið Örlygs. „Hann
var mjög nálægt því að vera hinn
fullkomni íþróttamaður. Hann var
mjög náttúrulega sterkur og fljótur
þar að auki. Það gagnaðist honum
mikið, sérstaklega varnarmegin.
Það var allt gott í hans leik. Menn
vildu halda honum fyrir utan
Örlygur Aron var kominn af mikilli körfuboltafjölskyldu.
Faðir hans, Sturla Örlygsson, var
sigursæll leikmaður sem lék með
og þjálfaði nokkur íslensk lið í
gegnum tíðina. Þó lék hann lengst
af með Njarðvík þar sem systkini
hans léku einnig við góðan orð-
stír. Snemma kom í ljós að Ör-
lygur bjó yfir miklum hæfileikum
í íþróttinni sem fjölskylda hans
unni svo heitt. Hann sjálfur átti
miklar fyrirmyndir í föður sínum
og frændum og keppnisskapið var
Örlygi í blóð borið.
Hann var ákaflega sterkbyggður
miðað við aldur og var hann
snemma frambærilegur í öðrum
íþróttum, m.a. í fótbolta. Örlygur
hafði náttúrulega hæfileika þegar
kom að körfubolta. Hann var með
góðan leikskilning og leikni hans
með boltann var afburðargóð.
Hann hafði alltaf orð á sér fyrir að
vera frábær varnarmaður og var
hann lunkinn við það að stela bolt-
anum af andstæðingum sínum.
Örlygur Aron hóf æfingar með
Njarðvík þegar hann var á áttunda
aldursári og lék með öllum yngri
flokkum félagsins. Fyrsta leikinn
með meistaraflokki í efstu deild lék
hann gegn ÍA 1997, þá 16 ára gamall
og enn í 11. flokki. Hann skoraði 10
stig og gaf 7 stoðsendingar í þeim
leik. Örlygur hampaði Íslands-
meistarabikarnum með félögum
sínum eftir úrslitaviðureignir við
KR árið 1998, þar sem leikstjór-
nandinn ungi lék lykilhlutverk.
Eins og svo marga unga körfu-
boltastráka dreymdi Örlyg um að
reyna sig meðal þeirra bestu. Þá
kom aldrei neinn annar staður til
greina en Bandaríkin. Alla dreymdi
um að komast í framhalds- og há-
skóla í Bandaríkjunum og svo er
þar sjálf NBA-deildin.
Örlygur fékk tækifæri til þess að
leika í Bandaríkjunum. Hann hafði
vakið athygli fyrir vasklega fram-
göngu með yngri landsliðum Ís-
lands og var í kjölfarið boðið að
sækja körfuboltabúðir í New Jersey
árið 1997. Þar hreifst fyrrum NBA
leikmaðurinn, og þáverandi þjálfari
framhaldskólaliðs í Norður Karól-
ínu mjög af leik Örlygs. Kappinn
sá heitir Bobby Jones og átti hann
farsælan feril með liði Philadelphia
76-ers í NBA-deildinni þar sem
hann var hvað þekktastur fyrir öfl-
ungan og oft harkalegan varnarleik.
Örlygur ákvað að taka boði Bobby
-Keflvíkingurinn Garðar Örn Arnarson frumsýnir
heimildarmynd um körfuboltakappann Örlyg Aron Sturluson
úr Njarðvík sem lést aðeins 18 ára gamall.
ÖRLYGUR
Á HVÍTA TJALDINU
Garðar Örn Arnarson hefur undanfarið eitt og hálft ár
unnið að metnaðarfullu verkefni þar sem ævi Njarð-
víkingsins Örlygs Arons Sturlusonar er viðfangsefni
heimildarmyndar sem Garðar leikstýrir. Örlygur sem
var einn efnilegasti körfuboltamaður þjóðarinnar, lést
aðeins 18 ára gamall árið 2000. Myndin verður sýnd
nú um Ljósanæturhelgina en þar fá áhorfendur að
kynnast lífi Örlygs í gegnum fjölskyldu, vini og aðra
sem þekktu til hans. En hver var þessi efnilegi leik-
maður sem heillaði alla sem urðu á vegi hans? Eyþór
Sæmundsson blaðamaður Víkurfrétta fór yfir stuttan
en farsælan feril Örlygs Arons.
„Þetta er
ekki bara
þessi körfu-
boltastrákur
sem fólk
telur sig hafa
þekkt“Örlygur lék KR-inga grátt í úrslitum árið 1998.
Örlygur átti frábært ár með Charlotte Knights menntaskólanum þar
sem hann á enn skólamet í stoðsendingum og stolnum boltum.
Logi Gunnarsson lék ófáa
leiki við hlið Örlygs.