Víkurfréttir - 05.09.2013, Síða 48
vf.is
fimmtuDAGuRiNN 5. septembeR 2013 • 33. tölublAð • 34. áRGANGuR
AuglýsingAsíminn er 421 0001
Í skólanum var okkur sögð saga af lærisveininum Júdasi, sem sveik
og framseldi Jesú Krist í hendurnar
á rómverskum
y f i r v ö l d u m .
Þrjátíu silfur-
peningar var
allt sem þurfti
til. Tvö þúsund
árum síðar er
enn deilt um
ástæðu gjörðar
h a n s . S a m -
kvæmt Biblíunni sá Jesús svikin
fyrir og lét þau jafnvel viðgang-
ast. Hvað sem því líður, þá hefur
lærisveinninn væntanlega ekki átt
von á því að framferði hans myndi
haft jafn afdrifaríkar afleiðingar í
för með sér hjá mannkyninu eftir
hans dag.
Ég er til dæmis mjög illa svikinn af líðandi sumri. Sólarstundir
þessarar árstíðar eru næstum helm-
ingi færri en í fyrra og úrkoman
margfalt meiri í millimetrum talið.
Þá er ég afskaplega illa svikinn af
veiðigyðjunni á þessu sumri. Hef
farið í tvo veiðitúra það sem af er
og einungis náð einum titti, sem
varla hreyfði vigtina eða teygði á
málbandinu. Mér finnst ég illa svik-
inn bæjaryfirvöldum sem sáu ekki
sóma sinn í því að slá grasmanirnar
á bakvið heima. Meira virðist hafa
verið lagt upp úr því að búa til nýjar
manir um allan bæ, frekar en að
viðhalda þeim sem fyrir eru.
Hverjir eru ekki illa sviknir af berjasprettunni á suðvestur-
horninu þetta sumarið? Í fyrra var
veðrið alltof gott fyrir berjasprettu
en í ár er veðrið alltof slæmt. Það
verður að minnsta kosti ekkert
saftað á mínum bæ þetta haustið.
Ég er líka afskaplega illa svikinn
af golfsveiflunni. Fann hana bara
aldrei og forgjöfin fer versnandi
með hverjum deginum. Sennileg-
asta ástæða fyrir því er sú að ég var
alltof latur að fara út á völl að æfa
mig. Ætla kenna veðrinu aftur um
ófarirnar. Þá erum við öll illa svikin
af ríkisvaldinu og loforðum þeirra
undanfarin ár. Þau gerðu ekkert
í aflagningu verðtryggingarinnar
og áttu í mesta basli í slagnum við
verðbólguna.
Eigum við ekki að vona að nýju herrarnir og frúrnar taki þetta
fastari tökum. Ég verð illa svikinn
ef við fáum ekki enn einn kvenráð-
herrann í kjördæmið. Það bendir
allt til þess enda eru hinar tvær sem
koma til greina ýmist komnar á
aldur eða verulega óþekkar. Hvað
sem öllu líður, þá erum við ennþá
að súpa seyðið af gjörðum læri-
sveinsins, sem hafði eflaust allt
annað í hyggju en að hvekkja nú-
tímamanninn í sinni víðustu mynd.
Eða hvað? Ég er þó staðráðinn í
því að láta kvikindið ekki aftra mér
því að mæta illa svikinn á Júdasar
ballið á morgun. Góða skemmtun
um helgina!
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
Júdas
ÍskarÍot
REYKJANESBÆR
L JÓSANÆTURTILBOÐ
Gerðu góð kaup
www.sporthusid.is | sporthusid@sporthusid.is | S: 421 8070
Glæsilegur 40.000 kr.
kaupauki fylgir öllum
12 mánaða samning
um. Kjúklingasalat & Kristall
Lítill skyrdrykkurKjúklingasalat og Toppur
Heilsubaka eða naanwich Tími í tennis
Hádegisverður
Kjúklingasalat
Heilsuréttur
SCI-MX hristibrúsi
Indversk vefja
Smoothie
Höfðatorgi
Lasertag fyrir tvo
1 tími í ljós
1 tími í Collagen
2x 3ja daga
gestapassar
Reykjanesbæ
& Kópavogi
Sportþrenna frá
LÝSI
Klipping
Heimalöguð súpa
með brauði
Kjúklingasalat
Brúsi og tími með
einkaþjálfara
Reykjanesbæ
& Kópavogi
Rúlla vikunnar
Sporthúsið Reykjanesbæ, Flugvallarbraut 701
Hátíðarsvæði á Ljósanótt
Hafnargata 15 (Sjúkraþjálfun Suðurnesja)
laugardag frá kl.13:00 - 22:00 | sunnudag frá 13:00 - 16:00.
fimmtudag frá kl. 06:00 - 22:00 | föstudag frá kl. 06:00 - 21:00
laugardag frá kl. 08:00 - 18:00 | sunnudag frá kl. 10:00 - 17:00
Árskort 4.990 kr. á mánuði
og þú borgar ekkert strax!
Miðast við samning með 12 mánaða binditíma
Tilboðið gildir aðeins til sunnudags
Tilboðið er hægt að tryggja sér á eftirtöldum stöðum:
LJÓSANÓTT Á INSTAGRAM
-Glæsilegur snjallsími í aðalverðlaun í
ljósmyndleik Víkurfrétta og Reykjanesbæjar
#ljosanott2013
Instagra
m
#vikurfret
tir