Ægir - 01.10.2007, Síða 22
22
Árið 1999 var fyrirtækið Ens-
ímtækni ehf. stofnað um notk-
un ensíma úr þorski til lyfja-
gerðar og í snyrtivörur. Með-
gangan var löng því rannsókn-
irnar á ensímum úr þorski,
eðli þeirra og eiginleikum,
hófust á Raunvísindastofnun
Háskóla Íslands árið 1978 og
áður í Bandaríkjunum frá
árinu 1973. Þessi rannsókn-
arverkefni voru styrkt af Natio-
nal Institute of Health í
Bandaríkjunum, Tæknisjóði
Rannsóknarráðs ríkisins og
Nordisk Industrifond. Þá voru
einstaka þættir í rannsókn-
unum styrktir af Vísindasjóði
Íslands, Rannsóknasjóði
Háskóla Íslands, Rannsókna-
sjóði NATO og Humbolt Stift-
ung. Í nóvember hélt dr. Jón
Bragi Bjarnason, prófessor í
lífefnafræði við HÍ og fram-
kvæmdastjóri Ensímtækni,
erindi í Háskólanum á Akur-
eyri, þar sem hann kynnti
stöðu þessa frumkvöðlaverk-
efnis frá ýmsum hliðum.
Fyrstu vörurnar á markað fyrir
sjö árum
Rannsóknir á próteinkljúfandi
ensímum úr þorskslógi í
meira en þrjátíu ár hafa leitt
til þróunar nýrrar tækni og
einstakra vara. Dr. Jón Bragi
Bjarnason, prófessor í lífefna-
fræði við HÍ og framkvæmda-
stjóri Ensímtækni, hefur stýrt
þessum rannsóknum og strax
árið 2000 var sett á markað til
prufu húðáburður, svokall-
aður Penzim-áburður, sem
unninn var úr þorskslógi.
Áburðurinn sýndi góða virkni
á ýmsa húðkvilla, liðabólgu
og sveppasýkingar.
„Íslenski markaðurinn hef-
ur reynst prýðilega vel sem
tilraunamarkaður fyrir okkar
vörur. Fyrir réttum sjö árum
settum við fyrstu vörurnar á
markað – Penzim-vörurnar.
Þetta nafn vísar til innihalds-
ins, en segir neytandanum
ekkert um virknina. Við höf-
um ekki verið að ýta þessum
vörum til útlanda, enn sem
komið er af markaðslegum
ástæðum, en Íslendingar hafa
tekið þeim mjög vel. Hér er
þessi vara seld upp á tíu pró-
sent þjóðarinnar á ári. Það er
frábær árangur og það væri
stórkostlegt að ná viðlíka ár-
angri erlendis. Jafnvel 1% af
heilsumörkuðum heimsins
væri góður árangur.
Við höfum selt erlendum
aðilum ensím og þeir eru síð-
an með eigið vörumerki og
auglýsa það upp og markaðs-
setja. Í Frakklandi eru t.d.
fjögur vörumerki seld og í
Bandaríkjunum eru tvö vöru-
merki auk pensíms“ segir Jón
Bragi.
Drbragi.com
Auk svokallaðra náttúruvara
hefur verið unnið að þróun
snyrtivara úr pensími. Fyr-
irtækið Pure Icelandic í Bret-
landi hefur unnið að mark-
aðsþróun á húðkremi undir
vörumerkinu Dr. Bragi – sbr.
www.drbragi.com Þessar
vörur eru komnar í sölu í
bæði Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Til að byrja með var
framleitt krem í 50 gramma
flöskum, en þegar upp er
staðið er miðað við að til
verði heildstæð snyrtivöru-
lína. Þessar vörur nú þegar
fengið umfjöllun í heims-
þekktum snyrtivörutímaritum.
Aðkoma fjárfestingabanka í
Bandaríkjunum
„Við erum núna að vinna að
fjármögnun lyfjaþróunarinnar
og fyrir markaðssetningu á
náttúru- og snyrtivörunum.
Við gerum ráð fyrir að þurfa
um 40 milljónir dollara. Við
höfum samið þannig við fjár-
festingabankann í Bandaríkj-
unum að hann afli helmings
fjárins en við öflum helmings
fjárins hér á Íslandi. Við vilj-
um þannig bjóða Íslendingum
upp á þátttöku að hálfu leyti.
Við byrjuðum að vinna að
þessu í septemberbyrjun og
lögðum upp með að það
myndi taka fjóra mánuði. Ég
geri alveg eins ráð fyrir því
að þessi vinna muni teygjast í
fimm til sex mánuði. Mat fjár-
festingabankans sem við höf-
um samið við um fjármögn-
unina er það að ekki sé
minnsti vafi á að við munum
fá þá fjármuni sem við þurf-
um, en hins vegar sé spurn-
ing um verðmatið.“
Að sníða sér stakk eftir vexti
Jón Bragi segir að fyrirtækið
hafi alltaf sniðið sér stakk eft-
ir vexti og aldrei farið út fyrir
þolmörk fjárráða þess. Þrír
starfsmenn eru á launum, en
Jón Bragi segist sjálfur aldrei
hafa reiknað sér laun í þessu
frumkvöðlastarfi. „Umsvifin
eru eins lítil og mögulegt er.
Við höfum það að leiðarljósi
að gera ekkert umfram það
sem efni leyfa“ segir Jón
Bragi.
Varðandi heildarfjárfest-
ingu í Ensímtækni það sem af
er segir Jón Bragi að hann
hafi ekki tekið hana saman.
Erfitt sé líka að meta hvað
eigi að nefna til sögunnar í
þeim efnum og hvað ekki. Sé
talið það sem hluthafarnir
hafi lagt til verkefnisins megi
áætla fjárfestinguna á 75 millj-
ónir, en þegar allt er talið, ef
til dæmis væru reiknuð laun
á þá sem ekki hafa þegið
laun í verkefnu, megi meta
heildarfjárfestinguna á allt að
250 milljónir króna. „Mesti
kostnaðurinn hefur verið
einkaleyfiskostnaðurinn. Við
höfum lagt inn einkaleyfi í
um þrjátíu löndum og kostn-
aður vegna þessa er veruleg-
ur. “
Ákveðin tímamót
Jón Bragi dregur ekki dul á
að ákveðin tímamót séu hjá
Ensímtækni. Næstu sex mán-
uðir eða svo skeri töluvert úr
um hvert stefni. „Ég er ekki í
neinum vafa um að fyrirtækið
muni ná árangri. Eina óvissu-
atriðið í mínum huga er
hversu hratt það verður. Við
N Ý S K Ö P U N
Ástríða og trúverðug-
leiki eru lykilatriði
- segir Jón Bragi Bjarnason, prófessor við HÍ og framkvæmdastjóri Ensímtækni
Ég er ekki í neinum vafa um að fyrirtækið
muni ná árangri. Eina óvissuatriðið í mínum
huga er hversu hratt það verður.
Það þarf mikla ábyrgð á mörgum sviðum, ekki
síst á fjármálasviðinu. Það auðveldasta í
heimi er að setja slíkt fyrirtæki á hausinn.