Ægir - 01.10.2007, Síða 42
2
K R O S S G Á T A
V É L S T J Ó R A R
Á þingi Norræna vélstjórasam-
bandsins (NMF), sem er sam-
nefnari meira 27.000 vélstjóra
á Norðurlöndum og Félag vél-
stjórnar- og málmtæknimanna
á aðild að, í október sl., kom
fram að mikill skortur er á vél-
stjórum og framtíðarþörf fyrir
nýliðun í stéttinni verður mjög
mikil.
Í samþykkt þingsins koma
fram áhyggjur með stöðu
mála, enda geti skortur á vél-
stjórum leitt til þess að dregið
verði úr kröfum um menntun
og þjálfun vélstjóra. Í tilkynn-
ingu frá Norræna vélstjóra-
sambandinu kemur fram að
þegar upp komi skortur á vél-
stjórum megi búast við að
dregið verði úr kröfum um
menntun vélstjóra um borð í
fiskiskipum, sem aftur geti
mögulega leitt til þess að ör-
yggið um borð minnki til
muna.
„Á útgerðarmönnum hvílir
því mikil ábyrgð, ekki síst
hvað varðar það að kynna
stéttina, vekja áhuga á starf-
inu og taka höndum saman
um að fjölga nemum og ný-
liðum í stéttinni. Skapa áhuga
hjá ungu fólki bæði á mennt-
uninni og störfunum að námi
loknu. Í dag kýs mikill fjöldi
vélstjóra að starfa ekki á sjón-
um að loknu námi þess í stað
við hin fjölbreyttustu störf
sem bjóðast í landi að námi
loknu. NMF horfir jákvæðum
augum á allar tilraunir sem
gerðar eru til þess að auka
áhuga fyrir starfinu og hvetja
unga vélstjóra til að gera vél-
stjórastarfið að framtíðarstarfi
sínu. NMF vill vekja sérstaka
athygli á því að í íslenska
fiskiskipaflotanum hafa kom-
ið upp nokkur tilvik þar sem
útgerðarmenn fiskiskipa hafa
fækkað vélstjórum á grund-
velli heimildar um tímabund-
ið mannlaust vélarúm, en
áfram látið vélstjórana standa
vakt allan sólarhringinn. Af
því tilefni tekur þingið skýrt
fram að heimildin ein og sér
er ekki forsenda til þess að
fækka vélstjórum, þess í stað
verður að reka vélarúmið án
vaktar í allt að 12 klst á sól-
arhring til þess að tilætlaður
ávinningur náist. Þingið for-
dæmir fækkun án breytinga á
vaktstöðu þar sem með því er
verið að rýra bæði öryggi
skips og áhafnar,“ segir orð-
rétt í tilkynningu frá Norræna
vélstjórasambandinu.
Norræna vélstjórasambandið:
Áhyggjur af skorti
á vélstjórum
Norræna vélstjórsambandið hefur áhyggjur af því að mikill skortur sé á vélstjórum
á sama tíma og framtíðarþörf fyrir nýliðun í stéttinni verður mjög mikil.