Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 18
18
Hægt er að lækka fóðurverð
fyrir eldisþorsk um allt að því
30% og lækka þar með fram-
leiðslukostnað um 15% með
því að draga úr próteinnotkun
og auka fitu. Þá er hægt að
lækka fóðurkostnað með því
að nota ódýrara fiskimjöl og
hráefni úr jurtaríkinu í fóðrið,
aðallega hjá stærri fiski. Þetta
eru helstu niðurstöður viða-
mikils rannsóknaverkefnis um
þróun sjófiskafóðurs, sem var
samstarfsverkefni Matís, Fóð-
urverksmiðjunnar Laxár,
Háskólans á Hólum, Versins á
Sauðárkróki og Háskólans á
Akureyri. Verkefnið var styrkt
af AVS rannsóknasjóði.
Jón Árnason, deildarstjóri
á eldisdeild Matís, segir mik-
ilvægt að rannsaka sérstak-
lega fóður fyrir fiskeldi því
það sé langstærsti einstaki
kostnaðarliður eldisfyrirtækja
vegna framleiðslunnar, eða í
kringum 55% af rekstrarkostn-
aði við framleiðslu á hvert kg
af þorski. „Stór hluti rann-
sókna á fóðri á heimsvísu
hefur hingað til verið unninn
innan fóðurfyrirtækja og þess
vegna eru niðurstöður oft
ekki opinberar. Því skiptir
miklu máli fyrir fiskeldisfyr-
irtæki hér á landi að fá í
hendur nýjar rannsóknir um
hvernig þau geti lækkað
kostnað,” segir Jón.
Jón segir að þorskur
bregðist við mismunandi hrá-
efnum í fóðri, hann hafi þörf
fyrir ýmis næringarefni en
einkum mikla þörf fyrir pró-
tein, sem sé nauðsynlegur
þáttur til uppbyggingar á fisk-
holdi. Próteinið er hins vegar
dýrasta meginhráefnið í fóð-
urgerð. „Það skiptir þorskinn
ekki öllu máli að fá allt pró-
teinið úr hágæða fiskimjöli,
heldur getur hann að vissu
marki nýtt sér aðrar gerðir
fiskimjöls og prótein úr jurta-
ríkinu,“ segir Jón.
Niðurstöður tilrauna með
mismikið prótein í fóðri sýna
að ekki sé tölfræðilegur mun-
ur á vexti ef prótein er aukið
umfram 48% í 70 gramma
fiski. Þá sé ekki ávinningur af
því að auka prótein umfram
39-43% í fóðri fyrir 600
gramma fisk. Það er því hægt
að lækka hráefniskostnað
með því að lækka prótein-
innihald í fóðri frá því sem er
í dag án þess að það komi
niður á vexti.
Þá segir Jón að aukning
fitu í fóðri valdi einhverri
aukningu í lifrarprósentu 500-
800 gramma þorsks, en hún
sé innan þess sem fundist
hafi í villtum þorski við land-
ið. Þó sé marktæk hærri lifr-
arprósenta í smærri þorski við
aukna fitu í fóðri. Þetta þýðir
að hægt er að skipta út pró-
teini fyrir fitu upp að vissu
marki.
Niðurstöður verkefnisins
benda til þess að ýmsir
möguleikar séu fyrir hendi til
þess að lækka fóðurkostnað.
Hægt sé að nota mismunandi
hráefni og lækka prótein mið-
að við notkun dagsins í dag.
Þá er ennfremur mögulegt að
nota meiri fitu, einkum í
stærri fiski. Jón segir að af-
rakstur rannsókna á fóðri fyrir
þorskeldi hér á landi séu ótví-
ræðar.
„Niðurstöður benda til
þess að hægt sé að lækka
fóðurverð um 30% og lækka
þar með framleiðslukostnað á
þorski um 15%, ef tekið er
mið af hráefnisverði frá því á
fyrrihluta síðasta árs. Þá eru
tækifæri til þess að lækka
fóðurkostnað enn frekar með
því að stilla nákvæmlega af
hlutföll hráefna í fóðri með
hliðsjón af meltanleika nær-
ingarefnanna í þeim.“
Þ O R S K E L D I
Viðamikil rannsókn leiðir í ljós að unnt er að
lækka fóðurverð fyrir eldisþorsk um 30%:
Felur í sér 15% lægri
framleiðslukostnað
„Niðurstöður benda til þess að hægt sé að lækka fóðurverð um 30% og lækka þar með framleiðslukostnað á þorski um 15%,
ef tekið er mið af hráefnisverði frá því á fyrrihluta síðasta árs,“ segir Jón Árnason, deildarstjóri á eldisdeild Matís.