Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 40
40
„Vertu ekki hræddur við að
vaxa hægt. Óttastu aðeins að
standa kyrr“, var yfirskrift
texta kynningar sem Marel
Food Systems efndi til fyrir
hérlenda matvælaframleið-
endur fyrrihluta janúar í húsa-
kynnum sínum í Garðabæ. Á
kynninguna mættu um 200
gestir sem starfa við matvæla-
framleiðslu á Íslandi – fólk
sem starfar í fiskvinnslu og
kjötvinnslu. Tilgangur kynning-
arinnar var að gera mönnum
grein fyrir því hversu víð vöru-
flóra Marel er orðin eftir að
Marel Foods Systems eign-
aðist AEW Delford, Scanvaegt,
Carnitech og Dantech.
Guðjón Stefánsson, sölu-
stjóri Marels á Íslandi segir að
að á sýningunni hafi verið
kynnt Innova – ný kynslóð
hugbúnaðar sem Marel Food
Systems hefur ákveðið að
verði framtíðarvara fyrirtæk-
isins í hugbúnaði. Einnig voru
sýndar vinnslulínur fyrir kjöt
og fisk, sjálfvirkni í matvæla-
pökkun með „robor” frá
AEW, nýjungar í skurðarvél-
arlausnum, fjölbreyttar pökk-
unarvogir, ferskfiskpökkunar-
lausnir, gæðaskoðunarstöð
QC, SensorX beinaleitartækni,
ProLine flokkun fyrir ná-
kvæmari skömmtun, ITM
snyrtivél fyrir lax og hvítfisk
auk fleiri lausna.
Margar athyglisverðar
nýjungar
Meðal þess sem var sýnt á
þessari kynningu var Linden
kjötvinnslukerfi, fyrir Linden
Foods á Norður-Írlandi. Þessi
nautakjötvinnslulína er önnur
tveggja slíkra lína fyrir Linden
Foods, sem fyrirtækið fær af-
hentar núna í febrúar. Afköst-
in í gegnum slíka línu eru um
10 tonn á dag.
Marel kynnti einnig AEW –
IPL róbot sem raðar á sjálf-
virkan hátt fersku og/eða eld-
uðu kjöti, beikoni, kjúklingi
eða fiski í pakka/bakka.
Ný kynslóð/hönnun af
flokkurum var kynnt, þar sem
mikið hefur verið lagt í að
einfalda alla smíði og með
því fæst ódýrari flokkun jafn-
framt því sem búnaðurinn er
auðveldari í þrifum.
Kynntar voru nokkur
vinnslukerfi. Í fyrsta lagi 12
stæða vinnslulína með upp-
lýsinga skjástöðvum og sex
afurðaleiðum, fjórum A-hólf-
um og 2 B-hólfum. Þessi lína
er með sjálfvirkri innstýringu
að öllum stæðum. Línan getur
flokkað A-afurðir í fyrirfram
ákveðna stærðarflokka og
skráir einnig allar afurðir frá
öllum stæðum. Í öðru lagi var
T Æ K N I
Fjölmargar tækni-
nýjungar frá Marel
Einn af starfsmönnum Marels ræðir málin við gesti á sýningunni.