Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 41
41
kynnt átta hliða útkast-/af-
urðaleiðir ásamt M 6000
gæðaskoðunarstöð, þar sem
hægt er að skrá bæði afurðir í
vinnslu og fullunnar afurðir.
Einnig getur skráning vegna
umhverfisskoðunar verið
framkvæmd á stöðinni. Í
þriðja lagi var kynnt þriggja
stæða pökkunarlína með lím-
miðaskráningu fyrir ferskar
afurðir.
Þá kynnti Marel IPM
tveggja brauta skurðarvél fyrir
hvítfisk og fjölbreytt úrval
voga til vigtunar og flokk-
unar. Þá má nefna Samvals-
vélar sem eru notaðar til þess
að búa til skammta af fyr-
irfram ákveðinni stærð með
lágmarksyfirvigt. Dæmi um
hráefni sem hægt er að
skammta má nefna fisk – t.d.
uppsjávarfisk eins og loðnu
og síld, fersk og frosin flök
eða bita, kjöt og kjötbita og
ýmsar B-afurðir í magnpakkn-
ingar, kjúkling – kjúklingabita
og ýmsar B-afurðir í magn-
pakkningar og grænmeti. Vél-
arnar geta búið til allt að 25
skammta á mínútu og afköst-
in geta því verið allt að 17
tonn á klukkustund.
Þá skal nefnt að Marel
kynnti SenxorX röntgenvél,
sem skynjar bein og aðskota-
hluti í fiskflökum. Vélin notar
röntgentæki til að finna bein-
in og birtir þau á skjá þannig
að þau séu auðsjáanleg.
Að síðustu kynnti Marel
ITM snyrtivélina, sem snyrtir
laxaflökk – fjarlægir fiturönd-
ina, ugga, himnur og sporð-
enda.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga
• Ísnet Húsavík - Uggahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
www.isfell.is
Hnífar og brýni
í miklu úrvali
T Æ K N I
Innova verður framtíðar hugbúnaður fyrir allar framleiðslu-
vörur Marel Food Systems, en þessi búnaður er hannaður til
að ná fram fullkominni framleiðslustýringu. Innova minnkar
tímann sem verksmiðjustjórinn þarf að nota til að vakta
framleiðsluferlið þar sem Innova gefur honum betri upplýs-
ingar til að geta stjórnað og færir honum aukinn tíma til að
stjórna beint og milliliðalaust .
Tæknin byggist á hinni víðtæku reynslu sem fengist
hefur við þróun hugbúnaðar hjá hinum fjórum alþjóðlegu
vörumerkjum Marel Food Systems, en þau eru Aew Del-
ford, Carnitech, Marel og Scanvaegt. Þessi nýja afurð mark-
ar tímamót en hún er fimmta kynslóð hugbúnaðar frá fyr-
irtækinu og kemur í stað MPS frá Marel, Multiflex frá
Scanvaegt og Mercury framleiðsluhugbúnaðarins AEW frá
Delford.
Marel notar
Innova hugbúnað
Að sögn Guðjóns Stefánssonar, sölustjóra Marels á Íslandi, tókst sýningin í ársbyrjun mjög vel og mæting var prýðileg.