Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 38
38
Rafmagnstöflur eru frá
Raftíðni.
Spilkerfi kemur frá Héðni.
Í fyrsta lagi 5,4 tonna akkeris-
vinda, í öðru lagi 21 tonna
togvindur, í þriðja lagi 8,2
tonna grandaravindur, í fjórða
lagi 14,2 tonna gilsavindur, í
fimmta lagi 14,8 tonna flot-
trollsvindur, í sjötta lagi 8,2
tonna pokavinda, í sjöunda
lagi 8,2 tonna úthalaravinda
og í áttunda lagi 8,2 tonna
hjálparvindur.
Búnaður í brú
Í Dala-Rafni er heildarbún-
aður frá Friðriki A. Jónssyni
ehf., sem hér segir: Simrad
radarar – RA84 12 kW & RA85
25 kW með ARPA og AIS.
Olex plotter með þvívídd og
öðrum möguleikum eins og
AIS, ARPA, straumskráningu,
botnhörkuskráningu, vind- og
logupplýsingum. Simrad HS52
GPS-kompás. Simrad RGC50
gýrókompás. GPS staðsetn-
ingartæki frá Simrad og JMC
Simrad AI80 AIS. Simrad sjálf-
stýring AP50. Simrad IS15
upplýsingaskjáir. NMEA
gagnamiðlunarstöð fyrir sigl-
inga-, fiskileitar- og fjarskipta-
tækni. Simrad dýptarmælar ES
60 38 KHz split-beam með
stærðargreiningu og fiski-
plotti. Simrad ES 60 50 & 200
KHz botnmælir. Navtex JMC
NT 2000 með LCD-skjá. Sim-
rad AX 50 handtalstöðvar.
Simrad EP 50 EPIRB neyð-
arbauja. Simrad SA 50 rad-
arsvari. Simrad RS82 VHF tal-
stöð með tveimur talfærum.
JMC FX-220 veðurkortaritari.
Airmar veðurstöð Vingtor
ETB-10 kallkerfi fyrir brú, vél,
stýrisvél, mesa og dekk. Sím-
kerfi og símstöð með gjald-
mæli. GSM og NMT farsímar.
Linksys netkerfi. Sjónvarps-
og útvarpskerfi. Sérsmíðað
sjónvarps- og FM kerfi fyrir
móttöku og dreifingu á TV-
SAT og FM merki í klefa
ásamt útsendingu á FM-rásum
fyrir dekk og vinnslu. Mynda-
vélakerfi Sony JCC-IR 431 W
litamyndavélar ásamt skiptara
og skjáum, Tölva, prentari,
fax og ljósritunartæki fyrir
skrifstofu. Flatskjáir og útvörp
í íbúðir og setustofu ásamt
heimabíókerfi.
Margvíslegur búnaður
Siglingatölvur eru af gerðinni
MaxSea frá R. Sigmundssyni
ehf.
Veiðistjórnunarkerfi er frá
Marport ehf., en það sam-
anstendur af MBAR viðtæki
með tveim skáum, hleranem-
um með nákvæmnis hita og
dýpismælingu á báðum hler-
um ásamt hlerahallanemum.
Höfuðlínumælir er einnig
með hita og dýpi ásamt því
að sýna halla á tveim ásum.
Þá eru aflnemar með
innbyggð um hallanemum.
Kerfið tengist einnig ýmsum
jaðarbúnaði svo sem staðsetn-
ingartækjum og vindubúnaði
frá Rolls Royce og birtir í
skjámyndakerfi sínu. Allar
upp lýsingar eru vistaðar í
minni og er hægt er að kalla
þær fram þegar þörf krefur. Í
þessum nemum er ýmis ný
byltingarkennd tækni, sem
Marport hefur verið að þróa
og hefur vakið mikla athygli.
Fiskaðgerðarbúnaður á
vinnsluþilfari er frá Vélaverk-
stæðinu Þór ehf. í Vestmanna-
eyjum. Krapavélin kemur frá
Kælingu ehf. Færibanda-
búnaður er frá Vélaverkstæð-
inu Þór. Veiðarfæri og bún-
aður er frá Ísfelli.
Skipið var allt málað með
málningu frá International
málningu frá Sérefni ehf.
Nautic ehf. hannaði Dala-
Rafn en B.P. Skip hafði yf-
irumsjón með smíði skipsins.
Skipið er vel útbúið. Í því
eru sex íbúðir fyrir fjórtán
manns; sex tveggja manna
klefar og tveir eins manns
klefar.
Eyþór skipstjóri Þórðarson
Þrír ættliðir stýrðu Dala-Rafni
heim til Íslands frá Póllandi –
Þórður Rafn, Eyþór Þórðarson
og Ingi Rafn Eyþórsson. Við
komuna til Eyja greindi Þórð-
ur Rafn frá því að eftir að
hafa verið í hálfa öld til sjós
hefði hann ákveðið að fela
Eyþóri, syni þeirra hjóna,
skipstjórn á hinu nýja skipi.
Fyrsti stýrimaður er Elías
Jensson, Sigurður Óli Stein-
grímsson er annar stýrimaður,
Erlingur Pétursson er yfirvél-
stjóri, Kristján Birgisson vél-
stjóri og Kristinn Jónsson er
matsveinn.
Í meira en þrjátíu ár hafa
þau hjónin gert út skip með
þessu nafni, Dala-Rafn, frá
Vestmannaeyjum og er óhætt
að segja að útgerðin hafi jafn-
an verið farsæl. Þetta nýja
skip er hið fimmta sem ber
þetta nafn.
Kvóti Dala-Rafns er um
1400 þorskígildistonn og er
afli skipsins seldur á fisk-
markaði hér heima og erlend-
is.
N Ý T T S K I P
Þrír ættliðir. Frá vinstri: Eyþór Þórðarson, Ingi Rafn Eyþórsson og Þórður Rafn Sigurðsson. Myndir: Óskar P. Friðriksson.