Ægir - 01.01.2008, Page 24
24
B A K K A F J Ö R U H Ö F N
Bakkafjöruhöfn í útboð í mars
- stærsta einstaka framkvæmd Siglingastofnunar frá upphafi
Í burðarliðnum er risaverkefni
á íslenskan mælikvarða í
hafnamálum – nefnilega gerð
Bakkafjöruhafnar. Þetta verk-
efni mun vera stærsta verkefni
Siglingastofnunar frá upphafi
og stærsta hafnarverkefni
síðan ráðist var í gerð aðal
hafnargarða Reykjavíkurhafn-
ar árið 1917.
Þessi framkvæmd hefur
lengi verið í undirbúningi og
einnig hefur verið tekist veru-
lega á um málið á vettvangi
stjórnmálanna. En nú liggur
fyrir að farið verður í þetta
verk og strax í næsta mánuði,
mars 2008, verður fyrsti áfangi
hafnargerðarinnar, gerð grjót-
garða, borðinn út. Hluti af
þessum hluta fram-
kvæmdanna er gerð varn-
argarða meðfram Markarfljóti
austan við sjálft hafnarsvæðið.
Þá liggur fyrir að gera sjó-
varnargarða út frá ströndinni
og umtalsverð dýpkun við
núverandi höfn. Samhliða út-
boðinu í mars á grjótvarna-
garðinum verður boðin út
vegagerð á hendi Vegagerð-
arinnar að hafnarsvæðinu –
samtals 13 kílómetra vegur.
Gerð þessa vegar er forsenda
þess að hægt verði að keya
grjóti úr námu við Kattahryggi
austan Markarfljóts til að gera
varnar- og hafnargarða við
höfnina sjálfa. Um veginn
þarf að flytja um 500.000
rúmmetra af grjóti vegna
hafnargerðarinnar. Líklegt er
að gerð verði sérstök bráða-
birgðabrú yfir Markarfljót til
þessara þungaflutninga.
Ferjuhöfnin í Bakkafjöru
verður afmörkuð af tveimur
bogadregnum brimvarnar-
görðum. Hvor þeirra er um
600 m á lengd. Þeir ná út á
um 7 m dýpi við hafnarmynni
og eru þar um 70-75 m breið-
ir við botn. Næst landi, við
fjöruborð, verða garðarnir um
45 m breiðir við botn.
Einnig útboð á
Bakkafjöruferju
Fram kemur á vef Vegagerð-
arinnar að undangengnu for-
vali hafi fjórum aðilum verið
gefinn kostur á að bjóða í
Bakkafjöruferju – þ.e. Eim-
skip, Samskip, Nýsi og
Vinnslustöðinni/Vestmanna-
eyjabæ. Í útboðsgögnum
vegna ferjunnar kemur fram
að ferjan komi til með að
annast fólks-, bíla- og vöru-
flutninga milli Eyja og Bakka-
fjöru. Heildarflutningsmagn
með ferjunni til og frá Vest-
mannaeyjum og Þorlákshöfn
hefur verið um 120 þúsund
farþegar á ári og yfir 30 þús-
und bílar á ári sem og 2.500
flutningabílar.
Gert er ráð fyrir að sigl-
ingatími milli Bakkafjöru og
Vestmannaeyja verði sem
næst 30 mínútur, miðað við
15 sjómílna siglinghraða ferju.
Jákvæð áhrif
Í skýrslu Rannsóknastofnunar
Háskólans á Bifröst um mat á
áhrifum Bakkafjöruhafnar á
þróun byggðar í Vestmanna-
eyjum og þróun byggðar í
landi kemur margt áhugavert
fram. Meðal annars að mestu
áhrifin verði í ferðaþjónust-
unni – bæði í Eyjum og á
Suðurlandi. Áhrif á verslun og
þjónustu verði jákvæð, fast-
eignaverð í Eyjum muni
hækka og svokölluð tvöföld
búseta aukist, bætt aðgengi
fyrirtækja að mörkuðum muni
hafa jákvæð áhrif á þróun at-
vinnutekna í Eyjum, samstarf
við nágrannasveitarfélögin á
fastalandinu muni aukast og
atvinnusvæði, t.d. hjá iðn-
aðarmönnum, muni stækka.
Horft til Vestmannaeyja. Myndin er tekin úr Fljótshlíðinni og horft í suður yfir sandana. Mynd: Sigurður Bogi Sævarsson.
Gert er ráð fyrir að siglingatími milli Bakkafjöru og Vestmannaeyja verði sem næst 30 mínútur, miðað við 15 sjómílna sigling-
hraða ferju.