Ægir - 01.01.2008, Qupperneq 27
27
er mikilvægara en nokkru
sinni að vinnslubúnaður fari
vel með hráefnið. Fisktegund-
ir eru misviðkvæmar og er
þorskur og þó sérstaklega ýsa
mjög viðkvæmar tegundir. Því
er ýsu, sem selja skal ferska,
nær undantekningalaust hand-
pakkað í dag. Nákvæmni nýju
línunnar er hinsvegar slík að
vandræðalaust er að pakka
ýsu með sjálfvirkum hætti.
Slíkt getur aukið arðsemi út-
flutnings á ferskri ýsu til
muna.
Flök og lundir – punktur og
prik
Þunginn í starfsemi Nýfisks í
dag er vinnsla á flökum og
lundum úr þorski, ýsu og
steinbít sem fara á markað í
löndum Mið-Evrópu. Afurð-
irnar er fluttar utan í þriggja,
fimm og átján kílóa frauð-
plastkössum með Icelandair
Cargo, en hráefnisöflun og
vinnsla hvers dags ræðst al-
farið af pöntunum sem eru að
berast fram á miðjan dag.
„Fiskurinn sem hér er unnin
yfir daginn fer upp á flugvöll
síðdegis. Er kominn út til
Belgíu um miðnætti að þar-
lendum tíma og strax í versl-
anir næsta morgun. Virð-
iskeðjan er mjög hröð,“segir
Gunnar Bragi.
Í hverja þriggja kílóa
pakkningu hjá Nýfiski þarf á
bilinu átta til tólf stykki. Mik-
ilvægt er að í hverja pakkn-
ingu flokkist saman stykki
þannig að þyngdin standist
upp á punkt og prik. Slíkt er
tæplega gerlegt í handpökk-
T Æ K N I
Fyrirtækið Nýfiskur hf. í Sandgerði var stofnað árið 1993 og
er að stærstum hluta í eigu Birgis Kristinssonar og fjölskyldu
hans. Vöxtur fyrirtækisins síðasta áratug hefur verið býsna
hraður. Þunginn í starfseminni er útflutningur ferskra afurða
og þar er Nýfiskur í samvinnu við belgíska fyrirtækið Pieter´s
sem aftur er eitt dótturfyrirtækja sjávarútvegsrisans Marine
Harvest.
„Við höfum fyrst og fremst verið í vinnslu á þorski - flök-
um og lundum - sem eru flutt utan með flugi. Árið 2006
unnum við úr 5.000 tonnum af þorski og 4.300 tonnum á
síðasta ári eða um 4,0% af þorskafla landsmanna. Samdrátt-
ur í veiðiheimildum á þorski hefur hins vegar krafið okkur
um að róa á ný mið og fara út í vinnslu á til dæmis ýsu,
steinbít og karfa en heildarframleiðslugeta Nýfisks er um
7.000 tonn á ári,” segir Gunnar Bragi Guðmundsson aðstoð-
arframkvæmdastjóri, sem kom til starfa hjá fyrirtækinu fyrir
um fimm árum.
Stutt í flug og fiskimið
Gunnar Bragi segir einfalda staðreynd, að sé hráefnið gott
og rétt að allri vinnslu staðið verði útkoman gæðaafurðir.
„Hráefnis höfum við aðallega aflað frá fiskmörkuðum á Suð-
urnesjum, Snæfellsnesi og víðar. Að undanförnu höfum við
svo aukið eigin hráefnisöflun, meðal annars með kaupum á
tveimur smábátum auk þess að vera með báta í föstum við-
skiptum,” segir Gunnar sem telur Sandgerði henta öðrum
stöðum betur fyrir fyrirtæki sem eru í beinum útflutningi
ferska fiskafurða. Stutt sé á fengsæl fiskmið og alþjóðflug-
völlur í næsta nágrenni.
Erum þjónustufyrirtæki
„Við skilgreinum okkur sem þjónustufyrirtæki, frekar en
hráefnisvinnslu,“ segir Gunnar Bragi. „Hráefnisöflun okkar
og framleiðsla ráðast alfarið af þörfum og kröfum markaðar-
ins hverju sinni. Hér hefst vinnsla snemma á morgnana og
pantanir berast okkur fram til klukkan tvö á daginn og
tveimur stundum síðar sendum við bíl upp á flugvöll með
framleiðslu dagsins sem er komin í verslanir ytra snemma
næsta dags. Vissulega er þetta fyrirkomulag knappt, en með
góðu fyrirkomulagi gengur þetta upp.“
Nýfiskur vinnur 4% af þorskafla landsmanna:
Framleiðslan ræðst af
kröfum markaðarins
Stjórnendur Nýfisks; Gunnar Bragi Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri,
til vinstri, og Birgir Kristinsson, framkvæmdastjóri og aðaleigandi.
Vélasamstæðan nýjan var þróuð með samstarfi Völku og Nýfisks, þar sem báðir
aðilar kostuðu kapps að mæta kröfum hins.